Fótbolti

Jamaíka stefnir á HM 2022 með hjálp fimm­tán nýrra leik­manna frá Eng­landi

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Þessir fjórir eru meðal þeirra sem gætu leikið með Jamaíka í undankeppninni fyrir HM 2022 í Katar.
Þessir fjórir eru meðal þeirra sem gætu leikið með Jamaíka í undankeppninni fyrir HM 2022 í Katar. Getty/EPA

Það er ljóst að á Jamaíka eru menn stórhuga og ætla sér að mæta til leiks á HM 2022 í Katar. Knattspyrnusamband landsins ætlar sér þó óhefðbundnar leiðir í leið sinni á mótið sem fram fer undir lok árs 2022.

Þannig er mál með vexti að fjöldinn allur af leikmönnum í ensku úrvalsdeildinni og víðar á rætur að rekja til Jamaíka. Stefnt er á að þessir leikmenn fái vegabréf sem fyrst svo þeir geti tekið þátt í undankeppninni fyrir HM með Jamaíka. Nægur tími er til stefnu en undankeppnin sem ákvarðar hvort landið komist til Katar hefst ekki fyrr en í september á þessu ári.

Af þeim 15 leikmönnum sem nefndir eru í frétt Daily Mail um málið má til að mynda nefna Michail Antonio [West Ham United], Demarai Gray [Bayer Leverkusen], Max Aarons [Norwich City] og Ivan Toney [Brentford]. 

Sumir þessara leikmanna eru þó enn að bíða eftir að Gareth Southgate og enska landsliðið taki við þeim opnum örmum svo þeir eru ekki búnir að taka endanlega ákvörðun.

Aðrir leikmenn sem koma til greina eru Isaac Hayden [Newcastle United], Andre Gray [Watford] Ethan Pinnock [Brentford], Mason Holgate [Everton], Kemar Roofe [Rangers], Rolando Aarons [Huddersfield Town] Curtis Tilt [Rotherham United], Jamal Lowe [Newcastle United], Amari'i Bell [Blackburn Rovers] og Kasey Palmer [Bristol City].

Þá hefur Liam Moore, varnarmaður Reading í ensku B-deildinni, nú þegar fengið vegabréf sitt í hendurnar. Moore virðist ganga vel að sannfæra aðra leikmenn um að spila fyrir Jamaíka en Michael Ricketts – ekki fyrrum framherji Bolton Wanderers heldur forseti knattspyrnusambandsins – segir að margir leikmenn sem vilji spila fyrir Jamaíka séu við það að fá vegabréf sín í hendurnar.

Kórónufaraldurinn hefur hægt á ferlinu en Ricketts er bjartsýnn á að þegar undankeppni HM 2022 fari af stað þá verði Jamaíka með sigurstranglegri liðunum í CONCACAF-undankeppninni.

Jamaíka mætir Mexíkó og Kosta Ríka í fyrstu leikjum undankeppninnar og verður forvitnilegt að sjá byrjunarliðið þegar þar að kemur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×