Frá Vestfjörðum á Austfirði

Nemanja Knezevic er kominn til Hattar.
Nemanja Knezevic er kominn til Hattar. Ljósmynd/Höttur

Körfuknattleiksmaðurinn Nemanja Knezevic hefur gert samning við Hött og mun hann leika með liðinu á næstu leiktíð. Hann kemur til félagsins frá Vestra.

Knezevic lék alla 22 leiki Vestra á leiktíðinni og skoraði í þeim 12 stig, tók 12 fráköst og gaf 3 stoðsendingar að meðaltali í leik.

Vestri féll hinsvegar úr deild þeirra bestu og Höttur fór upp um deild og mun Knezevic því enn spila í efstu deild.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert