Úlfur Arnar Jökulsson hefur verið ráðinn nýr þjálfari meistaraflokks karla hjá Fjölni. Félagið staðfesti þetta í dag.
Úlfur hefur undanfarin ár verið þjálfari hjá öðrum flokki Fjölnis. Samhliða því stýrði hann einnig 4. deildarliði Vængja Júpíters í sumar.
Gunnar Sigurðsson verður Úlfi til aðstoðar. Hann hefur verið í þjálfarateymi liðsins í mörg ár.
Fjölnir hafnaði í 3. sæti Lengjudeildarinnar í sumar. Í fyrra féll liðið úr Pepsi Max-deildinni.
Það er knattspyrnudeild Fjölnis sönn ánægja að tilkynna Úlf Arnar Jökulsson sem nýjan aðalþjálfara meistaraflokks karla.
Með Úlla í þjálfarateyminu verður Gunnar Sigurðsson aðstoðarþjálfari.#FélagiðOkkar pic.twitter.com/fLg4XYfXpH
— Fjölnir FC (@Fjolnir_FC) September 24, 2021