Glæsimarkið frá öllum sjónarhornum (myndskeið)

Harvey Elliott skoraði stórbrotið mark fyrir Liverpool þegar liðið lagði Tottenham Hotspur að velli, 4:2, í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í gær.

Elliott kom Liverpool í 4:0 þegar hann smellti boltanum upp í samskeytin með glæsilegu skoti fyrir utan vítateig.

Markið fallega má sjá frá öllum sjónarhornum í spilaranum hér að ofan, en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samstarfi við Símann Sport.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert