Alls kyns sögur um vistaskipti og leikmannakaup

Færri komust að en vildu á úrslitaeinvígi Vals og Tindastóls …
Færri komust að en vildu á úrslitaeinvígi Vals og Tindastóls á Íslandsmóti karla í körfubolta. mbl.is/Óttar Geirsson

Þó keppnistímabilinu í körfuboltanum hafi lokið með dramatískum sigri Tindastóls á Val í síðustu viku er ekki hægt að segja að íþróttin sem slík sé komin í sumarfrí.

Í enska fótboltanum er þessi hluti ársins kallaður „silly season.“ Þegar tímabilinu lýkur fara alls kyns sögur á flug um vistaskipti og leikmannakaup. Sumar sannar, aðrar sem eitthvað er til í og svo hinar sem enginn fótur er fyrir. En eru stundum þær skemmtilegustu.

Þannig er þetta í íslenska körfuboltanum þessa dagana, þar sem liggur við að heilu liðin séu sögð vera á faraldsfæti og færi sig úr einum herbúðum í aðrar, ef marka má orðið á götunni.

Nú er nýtt félag komið í úrvalsdeild karla og farið að gera sig gildandi á markaðnum. Álftanes er búið að krækja sér í tvo reynda landsliðsmenn og allt stefnir í fjörugan vetur í „Forsetahöllinni.“

Bakvörðinn má sjá í heild sinni á íþróttasíðum Morgunblaðsins í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert