Hættir sem þjálfari Bayern München

Karólína Lea Vilhjálmsdóttir, Glódís Perla Viggósdóttir og Cecilía Rán Rúnarsdóttir …
Karólína Lea Vilhjálmsdóttir, Glódís Perla Viggósdóttir og Cecilía Rán Rúnarsdóttir eru samningsbundnar Bayern München. Ljósmynd/Bayern München

Jens Scheuer mun láta af störfum sem þjálfari kvennaliðs Bayern München í knattspyrnu eftir yfirstandandi keppnistímabil.

Þetta tilkynnti félagið á samfélagsmiðlum sínum í dag en Scheuer hefur stýrt liðinu frá árinu 2019 og gerði liðið að Þýskalandsmeistara á síðustu leiktíð.

Landsliðskonurnar Cecilía Rán Rúnarsdóttir, Glódís Perla Viggósdóttir og Karólína Lea Vilhjálmsdóttir eru allar samningsbundnar Bayern München.

Scheuer fékk þær allar til liðs við félagið en Bæjarar mun enda í öðru sæti þýsku 1. deildarinnar á leiktíðinni þegar ein umferð er eftir af tímabilinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert