Breska sundstjarnan sem er vatnshrædd og með klórofnæmi Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 15. apríl 2021 11:30 Freya Anderson þreytir frumraun sína á Ólympíuleikum í Tókýó í sumar. epa/ROBERT PERRY Að vera vatnshrædd og með klórofnæmi ætti ekki að vera uppskrift að góðum árangri í sundi. Það hefur hins vegar ekki truflað nýjustu sundstjörnu Breta.
Freya Anderson, sem er nýorðin tvítug, er á leið á Ólympíuleikana í Tókýó í sumar þar sem hún ætlar að vinna til verðlauna. Hún hefur þegar unnið tvenn gullverðlaun og tvenn bronsverðlaun í skriðsundi á Evrópumóti og er nú örugg með Ólympíusæti. Anderson hefur þurft að yfirstíga nokkrar hindranir sem hefðu eflaust verið óyfirstíganlegar fyrir aðra sundkappa. Hún er nefnilega með ofnæmi fyrir klór og vatnshrædd. „Sumar tegundir af klór fara illa með húðina á mér. Í sumum sundlaugum fæ ég útbrot og það er mjög sársaukafullt. Þetta stendur yfir í fjóra til fimm daga en ég verð að lifa með því. Þetta er samt ekki óskastaða fyrir sundkonu,“ sagði Anderson í viðtali við Daily Mail. Hún er heldur ekki hrifin af vatni, nema það sé í sundlaug. „Ég hata sjóinn og ár og myndi ekki stinga fæti þangað þótt ég fengi borgað fyrir það. Flest sundfólk getur ekki beðið eftir því að synda í sjónum í fríunum sínum en ekki ég. Ég er hrædd við dótið á botninum og fiskana,“ sagði Anderson. Hún segist hafa verið afar feimið barn og sá ekki fyrir sér að hún ætti eftir að ná langt í sundi. „Ég var alltaf feimin, kannski því ég hef alltaf skorið mig úr,“ sagði Anderson sem er afar hávaxin, eða 1,91 metri á hæð. „Þegar ég fór í heimavistarskóla vildi ég strax fara heim eftir fyrstu vikuna, pakkaði niður og sagði mömmu að ég væri að koma heim. En ég hef öðlast meira sjálfstraust í gegnum sundið.“ Anderson tryggði sér Ólympíusæti þegar hún synti tvö hundruð metra skriðsund á 1:56,80 mínútum í síðustu viku. Lágmarkið fyrir Ólympíuleikana var 1:57,28 mínútur. Anderson vonast einnig til að keppa í hundrað metra skriðsundi og boðsundi á Ólympíuleikunum í Tókýó.
Sund Ólympíuleikar 2020 í Tókýó Mest lesið Grafalvarleg staða: „Við verðum að breyta þessu strax“ Handbolti „Annað hvort gera þeir eins og Man. City eða eins og Liverpool“ Handbolti Ten Hag segir að eigendur United séu skynsamir og muni ekki reka hann Enski boltinn Dagskráin í dag: Stór dagur fyrir Val Sport Leverkusen býður stuðningsmönnum frítt flúr til minningar um tímabilið Fótbolti „Grét rosa mikið út af öllu og engu“ Sport „Við erum helvíti seigir“ Íslenski boltinn Staðfestir verst geymda leyndarmál fótboltans Fótbolti Uppgjörið og viðtöl: Stjarnan - Fram 1-1 | Aftur komu Rúnarsmenn til baka Íslenski boltinn Casemiro komst ekki í Copa América-hóp Brassa Fótbolti Fleiri fréttir Hávær kynlífshljóð trufluðu Doncic Sjáðu frábært spil skila tveimur mörkum í Garðabæ Sá besti ekki búinn að segja sitt síðasta orð „Annað hvort gera þeir eins og Man. City eða eins og Liverpool“ Grafalvarleg staða: „Við verðum að breyta þessu strax“ Dagskráin í dag: Stór dagur fyrir Val Ten Hag segir að eigendur United séu skynsamir og muni ekki reka hann Leverkusen býður stuðningsmönnum frítt flúr til minningar um tímabilið „Við erum helvíti seigir“ Casemiro komst ekki í Copa América-hóp Brassa Bragi Karl tryggði ÍR-ingum stig á elleftu stundu Styrmir og félagar komnir í sumarfrí Uppgjörið og viðtöl: Stjarnan - Fram 1-1 | Aftur komu Rúnarsmenn til baka Fimm marka föstudagur hjá Inter Rúnar og félagar tryggðu sér titilinn með endurkomusigri Oliver með þrennu gegn gömlu félögunum Martin og félagar skelltu í lás gegn Bæjurum Andri skoraði og er markahæstur í Danmörku Staðfestir verst geymda leyndarmál fótboltans Draumagengi Guðrúnar heldur áfram Spilar með bróður sínum og fyrir föður sinn hjá Keflavík Sóley Margrét ætlar að verja Evrópumeistaratitilinn Nýliðarnir gerðu milljónarveðmál: „Hann átti ekki að segja neinum“ Sá besti í heimi á þessu CrossFit tímabili kom til Íslands til að æfa með BKG Segja vinslit hjá Tiger Woods og Rory McIlroy Kveðjuleikur Klopp í hættu? | „Meðvitaður um stöðuna“ „Big Baby“ dæmdur í fangelsi Sextán ára stelpa skoraði í Bestu eftir stoðsendingu frá einni fimmtán ára „Hrafninn svífur yfir Vesturbænum“ Eysteinn ráðinn framkvæmdastjóri KSÍ Sjá meira