„Bestu hugmyndirnar verða oft til í einhverju skemmtilegu hliðarspaugi“ Elma Rut Valtýsdóttir skrifar 21. júlí 2021 17:04 Sigtryggur Baldursson er viðmælandi í nýjasta þættinum af Bransakjaftæði. ÚTÓN Sigtryggur Baldursson er viðmælandi Bergþórs Mássonar í nýjasta þætti hlaðvarpsins Bransakjaftæði. Sigtryggur hefur komið víða við í tónlist og er í dag framkvæmdastjóri ÚTÓN, Útflutningsskrifstofu íslenskrar tónlistar. Sigtryggur er að eigin sögn pönkari úr Kópavogi. Hann dróst inn í pönk-senuna undir lok 8. áratugarins þegar hann gekk til liðs við unglingahljómsveit. „Ég var að vinna í skógræktinni í Kópavogi og kynnist þar Hilmari Agnarssyni og dett þar inn í hljómsveit sem hann var að stofna sem heitir Þeyr og var svona fyrsta alvöru hljómsveitin.“ Hljómsveitin var stofnuð árið 1980 og kom fram í myndinni Rokk í Reykjavík. Stjórnendur útvarpsþáttarins Áfanga á Rás eitt, kölluðu svo saman hina ýmsu tónlistarmenn sem höfðu komið fram í Rokk í Reykjavík og bjuggu til draumahljómsveit til þess að búa til tónlist fyrir lokaþátt Áfanga. Úr varð hljómsveitin Kukl sem starfræk var í þrjú ár. Pönkarar sem fóru út í popp „Síðan varð til svona samkrull af súrrealista bókmenntahóp úr Breiðholti og þessari hljómsveit Kukl sem voru svona pönk „survivors“ úr íslensku pönk senunni og verður til þarna Smekkleysa sem er svona hugsað sem regnhlífarsamtök fyrir alls konar uppreisnargjarna list. Þannig litum við eiginlega á okkur.“ Þessi samtök veittu til dæmis Smekkleysuverðlaunin og hlaut Hrafn Gunnlaugsson, þáverandi dagskrárstjóri sjónvarpsins fyrstu verðlaunin fyrir að láta sjónvarpið kaupa sýningarétt af myndunum sínum. Innan þessa hóps var svo tekin ákvörðun í hálfgerðu gríni, að búa til popphljómsveit í þeim tilgangi að þéna peninga - úr varð hljómsveitin Sykurmolarnir. Sykurmolarnir slógu í gegn og unnu meðal annars úti í London. Þeir störfuðu erlendis í fjögur ár og byrjuðu að túra um heiminn árið 1988. Sveitin fann fyrir meðbyr en var að sögn Sigtryggs ekkert sérstaklega vinsæl á Íslandi á þessum tíma. Eftir að Sykurmolarnir lögðu upp laupana stofnaði Sigtryggur „pöbba-bandið“ Bogomil Font og Milljónamæringarnir, sem upphaflega átti að vera grínhljómsveit. „Oft nefnilega verða bestu hugmyndirnar til þannig í einhverju skemmtilegu hliðarspaugi.“ Hljómsveitin sprakk út og segir Sigtryggur hana hafa orðið vinsælli en Sykurmolarnir voru hér á landi. Segir tónlistarmenn njóta meiri stuðnings í dag Með sína áralöngu reynslu að baki getur Sigtryggur borið saman umhverfi tónlistarmanna þá og nú. „Það var ekkert stuðningsbatterí og við gátum ekki sótt í neina sjóði eða neitt slíkt fyrir okkar verkefni. Þannig við vorum bara að gera þetta sjálf og borguðum okkar flugmiða til og frá landinu. Það er miklu betra stuðningsumhverfi í dag og það er miklu betra að verða sér út um upplýsingar.“ Sigtryggur gegnir í dag stöðu forstöðumanns ÚTÓN sem vinnur að því að efla og skapa sóknarfæri fyrir tónlistarmenn, bæði innanlands sem utan. Hægt er að hlusta á þáttinn í heild sinni hér að neðan. Bransakjaftæði er hlaðvarpshluti Tónatals, sem miðar að því að efla þekkingu þeirra sem starfa við tónlist og stuðningsumhverfi þeirra. Bransakjaftæði er unnið í samvinnu við Útvarp 101 og Bergþór Másson er þáttarstjórnandi annarrar seríu. Tónatal er samstarfsverkefni ÚTÓN, Tónlistarborgarinnar Reykjavík, STEF, SFH og Íslandsstofu. Þættirnir birtast vikulega á Spotify og Vísi en jafnframt verða þeir spilaðir á Útvarp 101 á miðvikudögum klukkan 16. Tónlist Bransakjaftæði Mest lesið Krabbameinið sem týndist: „Fyrst sagði ég bara fokk!“ Áskorun Veltir fyrir sér hvort hann sé dottinn úr tísku Lífið Páll Óskar genginn í það heilaga: „Besti dagur lífs okkar“ Lífið Kastast í kekki milli Carragher og kærastans Lífið Líkt við apa og klappað eins og hundi Lífið Svar við spurningu lesanda: Hvað má fróa sér oft í viku? Lífið Sandler vinnur að Happy Gilmore 2 Bíó og sjónvarp Björk á forsíðu Vogue í fyrsta sinn Tíska og hönnun Er sannkölluð Mary Poppins þegar það kemur að töskunni Tíska og hönnun Óhefðbundinn páskamatseðill að hætti Sigurðar Laufdal á OTO Lífið Fleiri fréttir Tískan sýndi trúnaðarbrest í hruninu Páll Óskar genginn í það heilaga: „Besti dagur lífs okkar“ Kastast í kekki milli Carragher og kærastans Veltir fyrir sér hvort hann sé dottinn úr tísku Óhefðbundinn páskamatseðill að hætti Sigurðar Laufdal á OTO Knattspyrnufólk og bransastjörnur fjölmenntu í bíó Líkt við apa og klappað eins og hundi Barnalán hjá Batman Svar við spurningu lesanda: Hvað má fróa sér oft í viku? „Ég get ekki gert upp á milli barna“ Þingforseti, borgarfulltrúi og Frikki Dór í fjölmennu útgáfuhófi Handboltagoðsögn selur glæsihús í Garðabæ Veglegir vinningar í páskabingói Blökastsins á skírdag Ætlaði sér alltaf að verða leikari Júlí Heiðar og Þórdís eiga von á stelpu: „Djöfull var ég tekin“ Sacha Baron Cohen æfareiður út í Rebel Wilson Chess After Dark strákarnir boða til einvígis aldarinnar Arnar Grant og Vítalía á kaffihúsi og RÚV þrenna í miðborginni Fjandinn laus þegar málshættina vantar Palli snöggreiddist þegar hann var sakaður um að hafa verið tjokkó Undurfagrar páskaskreytingar Keypti íbúðina af huggulegustu hommum landsins Myndaveisla: Bjarni Ben skálaði fyrir einstökum Audi Eyþór stillti Eivøru upp við vegg og lét hana flytja lagið Running Up That Hill „Harry Klein“ er látinn Stjörnulífið: Hlustendaverðlaunin, ferðalög og afmælisgleði Vill komast aftur í vinnuna Vaknaði einn daginn og gat ekki notað hægri höndina Missti fimmtán kíló á sjö vikum í Taílandi Hámhorfið: Hvað eru hetjur hafsins að horfa á? Sjá meira
Sigtryggur er að eigin sögn pönkari úr Kópavogi. Hann dróst inn í pönk-senuna undir lok 8. áratugarins þegar hann gekk til liðs við unglingahljómsveit. „Ég var að vinna í skógræktinni í Kópavogi og kynnist þar Hilmari Agnarssyni og dett þar inn í hljómsveit sem hann var að stofna sem heitir Þeyr og var svona fyrsta alvöru hljómsveitin.“ Hljómsveitin var stofnuð árið 1980 og kom fram í myndinni Rokk í Reykjavík. Stjórnendur útvarpsþáttarins Áfanga á Rás eitt, kölluðu svo saman hina ýmsu tónlistarmenn sem höfðu komið fram í Rokk í Reykjavík og bjuggu til draumahljómsveit til þess að búa til tónlist fyrir lokaþátt Áfanga. Úr varð hljómsveitin Kukl sem starfræk var í þrjú ár. Pönkarar sem fóru út í popp „Síðan varð til svona samkrull af súrrealista bókmenntahóp úr Breiðholti og þessari hljómsveit Kukl sem voru svona pönk „survivors“ úr íslensku pönk senunni og verður til þarna Smekkleysa sem er svona hugsað sem regnhlífarsamtök fyrir alls konar uppreisnargjarna list. Þannig litum við eiginlega á okkur.“ Þessi samtök veittu til dæmis Smekkleysuverðlaunin og hlaut Hrafn Gunnlaugsson, þáverandi dagskrárstjóri sjónvarpsins fyrstu verðlaunin fyrir að láta sjónvarpið kaupa sýningarétt af myndunum sínum. Innan þessa hóps var svo tekin ákvörðun í hálfgerðu gríni, að búa til popphljómsveit í þeim tilgangi að þéna peninga - úr varð hljómsveitin Sykurmolarnir. Sykurmolarnir slógu í gegn og unnu meðal annars úti í London. Þeir störfuðu erlendis í fjögur ár og byrjuðu að túra um heiminn árið 1988. Sveitin fann fyrir meðbyr en var að sögn Sigtryggs ekkert sérstaklega vinsæl á Íslandi á þessum tíma. Eftir að Sykurmolarnir lögðu upp laupana stofnaði Sigtryggur „pöbba-bandið“ Bogomil Font og Milljónamæringarnir, sem upphaflega átti að vera grínhljómsveit. „Oft nefnilega verða bestu hugmyndirnar til þannig í einhverju skemmtilegu hliðarspaugi.“ Hljómsveitin sprakk út og segir Sigtryggur hana hafa orðið vinsælli en Sykurmolarnir voru hér á landi. Segir tónlistarmenn njóta meiri stuðnings í dag Með sína áralöngu reynslu að baki getur Sigtryggur borið saman umhverfi tónlistarmanna þá og nú. „Það var ekkert stuðningsbatterí og við gátum ekki sótt í neina sjóði eða neitt slíkt fyrir okkar verkefni. Þannig við vorum bara að gera þetta sjálf og borguðum okkar flugmiða til og frá landinu. Það er miklu betra stuðningsumhverfi í dag og það er miklu betra að verða sér út um upplýsingar.“ Sigtryggur gegnir í dag stöðu forstöðumanns ÚTÓN sem vinnur að því að efla og skapa sóknarfæri fyrir tónlistarmenn, bæði innanlands sem utan. Hægt er að hlusta á þáttinn í heild sinni hér að neðan. Bransakjaftæði er hlaðvarpshluti Tónatals, sem miðar að því að efla þekkingu þeirra sem starfa við tónlist og stuðningsumhverfi þeirra. Bransakjaftæði er unnið í samvinnu við Útvarp 101 og Bergþór Másson er þáttarstjórnandi annarrar seríu. Tónatal er samstarfsverkefni ÚTÓN, Tónlistarborgarinnar Reykjavík, STEF, SFH og Íslandsstofu. Þættirnir birtast vikulega á Spotify og Vísi en jafnframt verða þeir spilaðir á Útvarp 101 á miðvikudögum klukkan 16.
Bransakjaftæði er hlaðvarpshluti Tónatals, sem miðar að því að efla þekkingu þeirra sem starfa við tónlist og stuðningsumhverfi þeirra. Bransakjaftæði er unnið í samvinnu við Útvarp 101 og Bergþór Másson er þáttarstjórnandi annarrar seríu. Tónatal er samstarfsverkefni ÚTÓN, Tónlistarborgarinnar Reykjavík, STEF, SFH og Íslandsstofu. Þættirnir birtast vikulega á Spotify og Vísi en jafnframt verða þeir spilaðir á Útvarp 101 á miðvikudögum klukkan 16.
Tónlist Bransakjaftæði Mest lesið Krabbameinið sem týndist: „Fyrst sagði ég bara fokk!“ Áskorun Veltir fyrir sér hvort hann sé dottinn úr tísku Lífið Páll Óskar genginn í það heilaga: „Besti dagur lífs okkar“ Lífið Kastast í kekki milli Carragher og kærastans Lífið Líkt við apa og klappað eins og hundi Lífið Svar við spurningu lesanda: Hvað má fróa sér oft í viku? Lífið Sandler vinnur að Happy Gilmore 2 Bíó og sjónvarp Björk á forsíðu Vogue í fyrsta sinn Tíska og hönnun Er sannkölluð Mary Poppins þegar það kemur að töskunni Tíska og hönnun Óhefðbundinn páskamatseðill að hætti Sigurðar Laufdal á OTO Lífið Fleiri fréttir Tískan sýndi trúnaðarbrest í hruninu Páll Óskar genginn í það heilaga: „Besti dagur lífs okkar“ Kastast í kekki milli Carragher og kærastans Veltir fyrir sér hvort hann sé dottinn úr tísku Óhefðbundinn páskamatseðill að hætti Sigurðar Laufdal á OTO Knattspyrnufólk og bransastjörnur fjölmenntu í bíó Líkt við apa og klappað eins og hundi Barnalán hjá Batman Svar við spurningu lesanda: Hvað má fróa sér oft í viku? „Ég get ekki gert upp á milli barna“ Þingforseti, borgarfulltrúi og Frikki Dór í fjölmennu útgáfuhófi Handboltagoðsögn selur glæsihús í Garðabæ Veglegir vinningar í páskabingói Blökastsins á skírdag Ætlaði sér alltaf að verða leikari Júlí Heiðar og Þórdís eiga von á stelpu: „Djöfull var ég tekin“ Sacha Baron Cohen æfareiður út í Rebel Wilson Chess After Dark strákarnir boða til einvígis aldarinnar Arnar Grant og Vítalía á kaffihúsi og RÚV þrenna í miðborginni Fjandinn laus þegar málshættina vantar Palli snöggreiddist þegar hann var sakaður um að hafa verið tjokkó Undurfagrar páskaskreytingar Keypti íbúðina af huggulegustu hommum landsins Myndaveisla: Bjarni Ben skálaði fyrir einstökum Audi Eyþór stillti Eivøru upp við vegg og lét hana flytja lagið Running Up That Hill „Harry Klein“ er látinn Stjörnulífið: Hlustendaverðlaunin, ferðalög og afmælisgleði Vill komast aftur í vinnuna Vaknaði einn daginn og gat ekki notað hægri höndina Missti fimmtán kíló á sjö vikum í Taílandi Hámhorfið: Hvað eru hetjur hafsins að horfa á? Sjá meira