Hlíðaskóla skellt í lás vegna veirunnar

Veiran hefur stungið sér niður í Hlíðaskóla og þurfa nemendur …
Veiran hefur stungið sér niður í Hlíðaskóla og þurfa nemendur að fara í hraðpróf, eða PCR-próf séu þau í sóttkví, áður en þau snúa aftur í skólann á miðvikudag. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Skólahald fellur niður í Hlíðaskóla í Reykjavík á morgun og þriðjudaginn vegna fjölmarga Covid-smita í skólanum.

Þetta kemur fram í frétt á vef skólans.

Þar segir enn fremur að allir nemendur skólans, sem eru frá 1. til 10. bekk, þurfi að fara í Covid-próf, áður en þeir mæta aftur í skólann.

Mælt er með því að fara í skimun seinnipart þriðjudags til að niðurstaða hafi borist á miðvikudagsmorgun.

Bent er á að börn sem hafa verið í sóttkví þurfi að fara í PCR-próf en aðrir fari í hraðpróf.

Hlíðaskóli í Reykjavík er við Hamrahlíð.
Hlíðaskóli í Reykjavík er við Hamrahlíð. mbl.is/Sigurður Bogi
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert