114 verkefni hjá slökkviliðinu

Það var nóg að gera hjá slökkviliðinu.
Það var nóg að gera hjá slökkviliðinu. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Nóg var gera í sjúkraflutningum hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu síðasta sólarhringinn. Verkefnin voru 114 talsins og slökkviliðsbílarnir fóru í fimm minniháttar verkefni.

Meðal annars fóru þeir í hreinsun eftir minniháttar umferðarslys tveggja bíla í Hafnarfirði um tvöleytið í gær, að sögn varðstjóra hjá slökkviliðinu.

Einnig sinntu þeir vatnsleka.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert