Handknattleikurinn liggur niðri út árið

Frá leik Fram og FH í haust.
Frá leik Fram og FH í haust. mbl.is/Árni Sæberg

Keppni á Íslandsmótinu í handknattleik mun ekki fara í gang að nýju fyrr en á næsta ári.

„Í ljósi ákvörðunnar heilbrigðisráðherra um framlengingu á sóttvarnarreglum er ljóst að áfram verður æfinga- og keppnisbann á 16 ára og eldri hér á landi til 9. desember hið minnsta,“ segir í fréttatilkynningu frá HSÍ. 

„Það er því að ljóst að keppni í handknattleik getur ekki hafist fyrr en á nýju ári. Stefnt er að því að hefja keppni í byrjun janúar í öllum aldursflokkum og deildum að óbreyttu að Olís deild karla undanskilinni, en hún ætti að að geta hafið uppúr 20. janúar.

Skrifstofa HSÍ vinnur nú að nýrri uppröðun leikja í deildunum og verður nýtt leikjaplan kynnt félögunum í desember,“ segir ennfremur í tilkynningu frá HSÍ. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert