„Neyðarástand yfirvofandi“ hjá Landhelgisgæslunni Kristín Ólafsdóttir skrifar 19. nóvember 2020 16:20 Flugvirkjar að störfum hjá Landhelgisgæslunni. vísir/vilhelm
Landhelgisgæslan segir neyðarástand yfirvofandi vegna verkfalls flugvirkja. Nú blasi við að þyrlufloti Landhelgisgæslunnar stöðvist á næstu dögum, í síðasta lagi um miðja næstu viku. Engin björgunarþyrla verði þá til taks á landinu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni. Ótímabundið verkfall flugvirkja hófst 6. nóvember síðastliðinn en samningar hafa verið lausir frá 31. desember 2019. Verkfallið nær til allra flugvirkja sem starfa hjá Landhelgisgæslunni sem sinna ekki neyðarþjónustu. Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar.Vísir/vilhelm Undanþágubeiðnum hafnað ítrekað Í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni segir að ef fram fari sem horfi muni þyrlufloti Gæslunnar stöðvast í síðasta lagi um miðja næstu viku, þegar reglubundin skoðun á TF-GRO, einu starfhæfu þyrlu stofnunarinnar, þarf að fara fram. „Hin björgunarþyrlan, TF-EIR, verður ekki til taks eins og áætlað var þar sem vinna við skoðun sem hún er í hefur legið niðri í verkfallinu,“ segir í tilkynningu. Vinna við viðhaldsskipulagningu hafi jafnframt legið niðri í verkfallinu sem hafi þau áhrif að undirbúningur skoðana, eftirlit og frágangur viðhaldsgagna sé enginn. Ítrekuðum undanþágubeiðnum frá verkfalli vegna viðhaldsskipulagningar hafi verið hafnað af Flugvirkjafélagi Íslands. „Eftir sem áður þá blasir nú þegar við að ekki verður alltaf tiltæk björgunarþyrla og áhrifa verkfallsins mun gæta fram á næsta ár hvað varðar björgunarþjónustu LHG,“ segir í tilkynningu. Þyrlan gæti stöðvast fyrr Þá hafi verkefnum og æfingum verið frestað til að unnt sé að bregðast við neyðartilfellum en ljóst sé að slíkt ástand geti ekki varað lengi. „Neyðarástand skapast í síðasta lagi um miðja næstu viku þegar þyrlan stöðvast en hafa verður í huga að þyrlan getur stöðvast fyrr vegna óvæntra bilana. Engin björgunarþyrla verður þá til taks á landinu sem getur haft mjög alvarlegar afleiðingar í för með sér,“ segir í tilkynningu. Annarra áhrifa verkfallsins muni jafnframt gæta næstu vikur og mánuði. Fresta þurfi að taka leiguþyrluna TF-GNA í gagnið sem væntanleg er í janúar. Þá sé TF-SIF, eftirlitsflugvél Landhelgisgæslunnar, óflughæf sem og flugvél Isavia, TF-FMS, sem Landhelgisgæslan sinnir viðhaldi á. Ástandið þegar grafalvarlegt Haft er eftir Georg Kr. Lárussyni forstjóra Landhelgisgæslunnar í tilkynningu að úrræði Landhelgisgæslunnar séu senn á þrotum. Enn fremur verði að hafa í huga að Landhelgisgæslan sé ekki aðili að deilunni heldur sé hún á milli Flugvirkjafélagsins og ríkisins. „Það skiptir þjóðina máli að Landhelgisgæslan hafi björgunarþyrlur til taks ef vá ber að garði. Það er erfitt að hugsa þá hugsun til enda ef mannskaði verður vegna þessa. […] Hlutverk Landhelgisgæslunnar er að tryggja að hægt sé að bregðast við neyðartilfellum sem upp koma. Ástandið er þegar orðið grafalvarlegt en ljóst er að neyðarástand mun ríkja í næstu viku þegar engin þyrla verður til taks.“ Átján flugvirkjar starfa hjá Landhelgisgæslunni. Ef frá eru dregin launatengd gjöld voru meðalheildarlaun flugvirkjanna í fyrra 1.764.291 kr. á mánuði, að því er fram kom í skriflegu svari Landhelgisgæslunnar við fyrirspurn fréttastofu fyrr í mánuðinum.
Landhelgisgæslan Kjaramál Tengdar fréttir Segir verkfallið hafa alvarleg áhrif á þyrlubjörgunarþjónustu dragist það á langinn Ótímabundið verkfall flugvirkja sem starfa hjá Landhelgisgæslunni er skollið á. Forstjóri Landhelgisgæslunnar kveðst vakinn og sofinn yfir málinu og reynir að takmarka tjónið eins og kostur er. Dragist verkfallið á langinn muni það hafa alvarleg áhrif á þyrlubjörgunarþjónustu. 6. nóvember 2020 13:13 Verkfall flugvirkja Landhelgisgæslunnar hefst á miðnætti Verkfall flugvirkja sem starfa hjá Landhelgisgæslu Íslands hefst að óbreyttu á miðnætti í kvöld. 5. nóvember 2020 23:16 Flugvirkjar Landhelgisgæslunnar boða verkfall Flugvirkjafélag Íslands hefur boðað verkfall hjá þeim félagsmönnum sem starfa hjá Landhelgisgæslu Íslands. 21. október 2020 08:30 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Steinunn Ólína skýtur föstum skotum á Katrínu Innlent Skipulögðu árásir í Þýskalandi og víðar í nafni ISKP Erlent Segir borgarstjóra óttalegan vettling Innlent Tveir létust í banaslysi í Eyjafirði Innlent Ætlaði að koma upp um barnaníðing en lenti í klóm hans Innlent „Dapurlegt“ að andstæðingar bólusetninga hafi svo mikil áhrif Innlent Vilja taka upp auðlindagjald að hætti Norðmanna Innlent Eigendur sjókvíaeldis þurfa ekki að greiða auðlindagjald Innlent Kínversk ferðaskrifstofa mátti sín lítils gegn TM Innlent Segir lág laun leikskólakennara mýtu Innlent Fleiri fréttir Segir borgarstjóra óttalegan vettling Vilja taka upp auðlindagjald að hætti Norðmanna „Dapurlegt“ að andstæðingar bólusetninga hafi svo mikil áhrif Stefnir í sólríkan og hlýjan sumardag fyrsta víða um land Eigendur sjókvíaeldis þurfa ekki að greiða auðlindagjald Tveir létust í banaslysi í Eyjafirði Veturinn sá kaldasti síðan 1999 Vill rjúfa framkvæmdastopp í orkumálum Kári Stefánsson, ákall um vaxtalækkun og hinsegin list Skemmtiferðaskip um tíu metrum frá strandi við Viðey Kínversk ferðaskrifstofa mátti sín lítils gegn TM Komu litlum fiskibáti til bjargar Þyrlan í loftið vegna slasaðs vélsleðamanns Ætlaði að koma upp um barnaníðing en lenti í klóm hans Alvarlegt umferðarslys í Eyjafirði Segir lág laun leikskólakennara mýtu Alltof mörg börn misstu af bólusetningu við mislingum Leyfisveitingin ekki brot á EES-samningnum Með 19 þúsund MDMA-töflur í ferðatöskunni Hafi líka reynt að bana eldri syni sínum Steinunn Ólína segir landráðamál í uppsiglingu Stofnaði lífi átta manna í hættu „í ábataskyni og á ófyrirleitinn hátt“ Fleiri löggur á leiðinni Seðlabankinn geti ekki annað en lækkað vexti Krefja Seðlabankann um vaxtalækkun Eldur í gámi við Sundabakka Alls konar fabúleringar um vinskapinn við Bjarna Ben Lætur staðar numið í pólitíkinni Mikill reykur þegar kviknaði í einangrunarplasti Leikskólakennarar ósáttir við vettlingagjörning Sjá meira
Segir verkfallið hafa alvarleg áhrif á þyrlubjörgunarþjónustu dragist það á langinn Ótímabundið verkfall flugvirkja sem starfa hjá Landhelgisgæslunni er skollið á. Forstjóri Landhelgisgæslunnar kveðst vakinn og sofinn yfir málinu og reynir að takmarka tjónið eins og kostur er. Dragist verkfallið á langinn muni það hafa alvarleg áhrif á þyrlubjörgunarþjónustu. 6. nóvember 2020 13:13
Verkfall flugvirkja Landhelgisgæslunnar hefst á miðnætti Verkfall flugvirkja sem starfa hjá Landhelgisgæslu Íslands hefst að óbreyttu á miðnætti í kvöld. 5. nóvember 2020 23:16
Flugvirkjar Landhelgisgæslunnar boða verkfall Flugvirkjafélag Íslands hefur boðað verkfall hjá þeim félagsmönnum sem starfa hjá Landhelgisgæslu Íslands. 21. október 2020 08:30