Enn ein sprungan opnaðist í nótt Kjartan Kjartansson skrifar 10. apríl 2021 07:13 Bjarminn af eldgosinu á Reykjanesi yfir Garðabæ í nótt. Vísir/Vilhelm Sérfræðingar Veðurstofu Íslands telja líklegt að enn ein gossprungan hafi opnast á Reykjanesi í nótt. Talið er að nýjasta sprungan liggi miðja vegu milli gosstöðvanna sem opnuðust á hádegi á öðrum degi páska og sprungu sem opnaðist aðfaranótt miðvikudags.
Í tilkynningu frá Veðurstofunni kemur fram að vakt hennar hafi orðið sprungunnar vör um eða upp úr klukkan þrjú í nótt. Við sjónrænt mat af vefmyndavélum virðist megin hrauntaumurinn sameinast hraunflæði sem rennur í Geldingadali úr norðri. Einar Bessi Gestsson, náttúruvársérfræðingur hjá Veðurstofunni, segir Vísi að fyrstu vísbendingar um nýju sprunguna hafi sést á vefmyndavél mbl.is á milli klukkan þrjú og fjögur í nótt. Erfitt var að staðfesta í fyrstu hvort að ný sprunga hefði opnast eða breytingar hafi orðið á hraunflæði. Þegar líða tók á morguninn fór þó ekki á milli mála að ný sprunga hefði opnast. Sprungan opnaðist undir nýju hrauni frá sprungunum sem voru fyrir. Rauðu punktarnir á kortinu tákna gosstöðvarnar sem hafa verið opnar. Syðst er upphaflegi gosstaðurinn í Geldingadölum, í miðjunni er sprunga sem opnaðist á aðfaranótt miðvikudags og nyrst er sprunga sem opnaðist á öðrum degi páska. Nýja sprungan liggur á milli þeirri tveggja síðarnefndu.Veðurstofa Íslands Sprungan opnaðist á svæði þar sem varað hefur verið við að nýjar gossprungur gætu opnast fyrirvaralaust. Í tilkynningu frá Veðurstofunni í gærkvöldi var sérstaklega varað við þessu hættusvæði. Ekki liggur enn fyrir hvort að virkni eldgossins hafi breyst við það að ný sprunga opnaðist. Til þess að skera úr um það þarf að meta hraunflæðið úr lofti. Einar segir að af vefmyndavélum að dæma virðist áfram virkni í öllum gígum sem voru fyrir. Fréttin hefur verið uppfærð.
Eldgos í Fagradalsfjalli Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Mikill viðbúnaður vegna bráðra veikinda Innlent Sat saklaus í unglingafangelsi í tvö ár Innlent Íransforseti fórst í þyrluslysinu Erlent Ráðherrar hafi verið ítrekað varaðir við gjöf Haraldar Innlent „Ég stóð bara með sóttvarnalækni“ Innlent Saksóknari Alþjóðlega sakamáladómstólsins vill handtaka Netanjahú og Hamas-liða Erlent Erfitt að ímynda sér meiri harðlínumann en Raisi Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Tveir látnir og fimm saknað eftir slys í Dóná Erlent Leitin enn ekki borið árangur Erlent Fleiri fréttir Fimm stríðsþristar á leiðinni til landsins Samningur BÍ í höfn í Karphúsinu Ráðherrar hafi verið ítrekað varaðir við gjöf Haraldar Sungið og sungið á Sauðárkróki „Ég stóð bara með sóttvarnalækni“ Mikill viðbúnaður vegna bráðra veikinda Ósk um handtökuheimild og deilur um Erfðagreiningu Erfitt að ímynda sér meiri harðlínumann en Raisi Sat saklaus í unglingafangelsi í tvö ár Frambjóðendur geti nýtt sér skoðanakannanir Glæsilegt fuglasafn í veiðihúsinu við Hítará Varasamt að ferðast á sumardekkjum í kvöld Óttast um afdrif Íransforseta og ferðaveðrið í beinni Stuðningur Katrínar við sóttvarnarlækni sjálfsagður „Fólk er bara að bíða“ Tveir prestar og tveir djáknar vígðir í Skálholti Lægð yfir landinu og snjókoma fyrir norðan Áfall þegar samskipti Katrínar og Kára voru birt Aukin skjálftavirkni og erjur um Erfðagreiningu Örlítil aukning í skjálftavirkni undir Svartsengi Forsetakosningar, mansal og samningar Reykjavíkur við olíufélögin Segir Helgu fara með rangt mál Þekkir dæmi um endalaus uppköst og garnalömun vegna lyfjanna Konurnar hafi gert allt til að setja ekki svartan blett á starfsemina Með vopn og fíkniefni í útistöðum við dyravörð Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra 40 tungumál eru töluð í leik- og grunnskólum Árborgar Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Þungar áhyggjur af þyngdarstjórnunarlyfjum Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Sjá meira
Saksóknari Alþjóðlega sakamáladómstólsins vill handtaka Netanjahú og Hamas-liða Erlent
Saksóknari Alþjóðlega sakamáladómstólsins vill handtaka Netanjahú og Hamas-liða Erlent