Telur símtöl Áslaugar Örnu ekki afskipti af rannsókn máls Kjartan Kjartansson skrifar 4. mars 2021 19:53 Halla Bergþóra Björnsdóttir, lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu, ræddi í tvígang við dómsmálaráðherra í síma eftir að lögreglan greindi frá viðveru ráðherra úr flokki hans á samkomu sem lögreglan hafði afskipti af á Þorláksmessu. Vísir/Vilhelm Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu segist ekki telja að Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, dómsmálaráðherra, hafi haft afskipti af rannsókn sakamáls hjá embættinu með tveimur símtölum á aðfangadag þegar lögreglan greindi frá því að ráðherra hefði verið á meðal gesta á samkomu þar sem sóttvarnareglur voru brotnar.
Áslaug Arna og Halla Bergþóra Björnsdóttir, lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu, ræddu í tvígang saman í síma í desember í kjölfar þess að í dagbók lögreglu sem var send fjölmiðlum á aðfangadagsmorgun hafi komið fram að ráðherra hafi verið á samkomu í Ásmundarsal þar sem gestir voru fleiri en samkomutakmarkanir heimiluðu og fáir voru með grímur. Síðar kom í ljós að þar var á ferð Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra og samflokksmaður dómsmálaráðherra. Bjarni baðst afsökunar í kjölfarið. Spurningar hafa vaknað um hvort að Áslaug Arna hafi með símtölum sínum haft óeðlileg afskipti af störfum lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Embættið lét kanna vinnubrögð í kjölfar gagnrýni á að greint hefði verið frá viðveru ráðherra í dagbókarfærslunni. Niðurstaða þess var að dagbókarfærslan hefði ekki verið „tilkynningarskyldur öryggisbrestur“. Engu að síður voru reglur um dagbókarfærslur áréttaðar við starfsmenn sem sjá um að skrifa þær. Áslaug Arna hefur sagt að með símtölunum til lögreglustjóra hafi hún aðeins reynt að afla sér upplýsinga vegna fyrirspurna fjölmiðla. Hún hafi spurt út í verklagsreglur um dagbókarfærslu lögreglu og persónuverndarsjónarmið. Hún segist hafa ákveðið að svara svo ekki fyrirspurnum fjölmiðla um málið. Símtölin hafi verið að hennar eigin frumkvæði en ekki að beiðni Bjarna. Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis kallaði Áslaugu Örnu á sinn fund vegna málsins á mánudag og Höllu Bergþóru í gær. Í skriflegu svari við fyrirspurn Vísis segir Halla Bergþóra að hennar mat sé að ósk ráðherra um upplýsingar hafi fallið undir yfirstjórnunar- og eftirlitsheimildir hennar. Samkvæmt stjórnarskrá geti ráðherra krafið stjórnvald undir yfirstjórn hans um hverjar þær upplýsingar og skýringar sem honum er þörf á til að sinna yfirstjórnarhlutverki sínu. „Ég tel ekki að ráðherra hafi með þessu haft afskipti af rannsókn sakamáls hjá embættinu,“ segir í svari Höllu Bergþóru. Hún svaraði ekki spurningu Vísis um hvort að Áslaug Arna hefði lagt til við sig eða velt því upp hvort að tilefni væri fyrir lögregluna að gera breytingar á dagbókarfærslu lögreglunnar sem var send út á aðfangadagsmorgun.
Lögreglan Ráðherra í Ásmundarsal Tengdar fréttir Áslaug segir símtöl við lögreglustjóra ekki skráningarskyld Dómsmálaráðherra segir verklagsreglur ekki gera ráð fyrir að símtöl eins og þau sem hún átti við lögreglustjórann á höfuðborgarsvæðinu um jólin séu skráð sérstaklega. Fjármálaráðherra hafi ekki beðið hana að hlutast til í málinu. 2. mars 2021 19:33 Áslaug segir aðfangadagssímtölin ekki hafa verið að beiðni Bjarna Dómsmálaráðherra segir tvö símtöl við lögreglustjórann á höfuðborgarsvæðinu um hið svo kallaða Ásmundarsalarmál á aðfangadag hafa verið algjörlega að eigin frumkvæði. Fjármálaráðherra, sem var í salnum á Þorláksmessukvöld, hafi ekki beðið hana um að grennslast fyrir um málið. 2. mars 2021 12:44 Hefði verið heppilegra að sleppa símtölunum Dómsmálaráðherra var kölluð fyrir stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis í morgun vegna samskipta sinna við lögreglustjórann á höfuðborgarsvæðinu eftir Ásmundarsalarmálið. Þingmaður Pírata telur að samskiptin hefðu verið heppilegri í formlegri búning. 1. mars 2021 12:04 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Lokuðu þorpi í leit að svörum um hvarf tveggja ára drengs Erlent Stærsti gígurinn orðinn „formfagur“ Innlent Voru sérstaklega varaðir við árás frá ISKP Erlent Ísland að tapa í slagnum um ferðamenn Innlent Lýsisskip strandaði í Fáskrúðsfirði Innlent Átta ára stúlka sú eina sem lifði rútuslys af Erlent Vilja einfalda fólki að komast til sjúkraþjálfara Innlent „Það þarf að stoppa svona menn áður en þeir drepa einhvern“ Innlent „Hvergi í verklagsreglum að við séum að reka fólk í burtu“ Innlent Hætt við framboð og vonast eftir þjóðhollum og guðræknum forseta Innlent Fleiri fréttir Lýsisskip strandaði í Fáskrúðsfirði Stærsti gígurinn orðinn „formfagur“ Vilja einfalda fólki að komast til sjúkraþjálfara Vélsleðamaður lenti í snjóflóði Kvöldfréttir Stöðvar 2 Hætt við framboð og vonast eftir þjóðhollum og guðræknum forseta Ísland að tapa í slagnum um ferðamenn „Hvergi í verklagsreglum að við séum að reka fólk í burtu“ Aðstoða göngumann á Móskarðshnjúkum Íbúar Hlíða velta fyrir sér dularfullum hvelli Ísland sé í torfkofanum í meðferð alvarlegra atvika Ný og glæsileg skólaþyrping byggð á Hellu Hamfaragámur Bónus tryggir kældan mat í neyðarástandi Fullkomlega sáttur við ákvörðun sína en útilokar ekkert „Það þarf að stoppa svona menn áður en þeir drepa einhvern“ Hádegisfréttir Bylgjunnar Svipar til gamalla óupplýstra rána Sýknaður af ákæru um að hafa tekið í háls barns Bjartur skírdagur fram undan í höfuðborginni Líkamsárás til rannsóknar eftir nóttina Fjölskylda í norðurljósaleit hrakin á brott af leiðsögumönnum Vilja koma böndum á bókhald trúfélaga Ferðaóðir Íslendingar þyrpast í ferðalög innanlands sem utan Verulega brugðið yfir Hamraborgarmálinu Hátt í hundrað dauðsföll á þremur árum Týndi vinningshafinn gaf sig fram og græddi níu milljónir Felldu úr gildi friðlýsingu en mátu Mumma ekki vanhæfan Kvöldfréttir Stöðvar 2 Býr á Íslandi en dæmd í sex ára fangelsi í Rússlandi Eldur í Hafnarfirði Sjá meira
Áslaug segir símtöl við lögreglustjóra ekki skráningarskyld Dómsmálaráðherra segir verklagsreglur ekki gera ráð fyrir að símtöl eins og þau sem hún átti við lögreglustjórann á höfuðborgarsvæðinu um jólin séu skráð sérstaklega. Fjármálaráðherra hafi ekki beðið hana að hlutast til í málinu. 2. mars 2021 19:33
Áslaug segir aðfangadagssímtölin ekki hafa verið að beiðni Bjarna Dómsmálaráðherra segir tvö símtöl við lögreglustjórann á höfuðborgarsvæðinu um hið svo kallaða Ásmundarsalarmál á aðfangadag hafa verið algjörlega að eigin frumkvæði. Fjármálaráðherra, sem var í salnum á Þorláksmessukvöld, hafi ekki beðið hana um að grennslast fyrir um málið. 2. mars 2021 12:44
Hefði verið heppilegra að sleppa símtölunum Dómsmálaráðherra var kölluð fyrir stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis í morgun vegna samskipta sinna við lögreglustjórann á höfuðborgarsvæðinu eftir Ásmundarsalarmálið. Þingmaður Pírata telur að samskiptin hefðu verið heppilegri í formlegri búning. 1. mars 2021 12:04