Beinlínis hættulega lítill raki á sumum heimilum Viktor Örn Ásgeirsson skrifar 16. mars 2023 23:00 Kristinn Johnson er framkvæmdastjóri Eirbergs. Vísir Kristinn Johnson framkvæmdastjóri Eirbergs segir að það versta fyrir loftgæði heimilisins sé að loka öllum gluggum og hækka ofna í botn. Of lítill raki á heimilinu geti beinlínis verið hættulegur heilsu. „
Þessi særindi í hálsi er auðvitað slímhúðin að þorna. Við erum kannski sér á báti sem þjóð að við kyndum rosalega mikið. Bara það að kynda, út af því að því heitara sem loftið er, því meira sogar það til sín raka, og svo auðvitað opnum við svo út. Þá eiginlega erum við að henda út þessu heita og raka lofti. Og eftir stendur bara þurrt loft,“ segir Kristinn viðtali samtali í Reykjavík síðdegis. Það sem líkaminn vill Hann segir að fólk skapi jafnan óheilbrigt andrúmsloft í kringum sig – án þess endilega að gera sér grein fyrir því, til dæmis á heimilinu eða á vinnustaðnum. „Þú vilt auðvitað opna út og lofta. Ekkert hús er fulleinangrað þannig að þó að þú sért með lokaða glugga þá fer alltaf eitthvað út. En um leið og þú ert að kynda, þá leitar loftið upp og út og þá ertu að þurrka loftið. Við, sem dýrategund, viljum vera í tiltölulega röku lofti. Það er talað um fjörutíu eða fimmtíu prósent raka sem líkaminn vill – slímhúð, lungun, húðin og augun. Það er svona kjörraki.“ Kristinn segir að á veturna hafi verið að mælast allt undir tuttugu prósent raka á sumum heimilum. Það geti reynst slæmt fyrir heilsuna, parket og húsgögn. En hvað er til bragðs að taka? „Það er þessi fína lína. Þú vilt auðvitað kynda og þú vilt auðvitað hafa notalegt heima hjá þér. Það eru margar leiðir að þessu. Eitt af þessu er þetta rakatæki. Það sem hefur verið vinsælt er raka- og lofthreinsitæki sem er bæði að rakametta náttúrulega og að hreinsa loftið þá líka af ýmsum ofnæmisvökum.“ „Það er líka vitundarvakning“ Nokkur atriði skipti máli, til dæmis að passa upp á rakastigið og vera ekki með mettun af ofnæmisvökum eða rokgjörnum efnum. Rokgjörn efni geti verið í nýjum dýnum, sófum og öðrum húsgögnum, og reynst skaðleg fyrir fólk. Framleiðendur rúmdýna hafi jafnvel sumir brugðið á það ráð að hvetja fólk til að lofta sérstaklega vel út, þegar spánný dýna er keypt inn á heimilið. „Það er líka vitundarvakning. Fólk er byrjað að hugsa lengra. Við viljum auðvitað vera með hreint vatn, við viljum vita hvað við erum að setja ofan í okkur – við lesum innihaldslýsingar á matnum okkar og segjum okei: Hvað er ég að setja ofan í mig. Að því leyti er auðvitað eðlilegt að hugsa um loftgæðin.“ Fyrir þá sem eru í hugleiðingum segir Kristinn fínt að kaupa einfaldan rakamæli. Þá sé hægt að kanna stöðuna og fara þá í aðrar – og dýrari – aðgerðir, ef raki reynist langt undir eðlilegum viðmiðum. „Þú vilt vera duglegur í að vera með góð loftskipti. Hvort sem það er með lofthreinsitæki, viftu eða hreinlega opna gluggann nógu oft á dag,“ segir Kristinn að lokum. Hér er aðeins stiklað á stóru en hægt er að hlusta á viðtalið í heild sinni hér að neðan.
Loftgæði Reykjavík síðdegis Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Innlent Ríflega fjörutíu prósent líst illa á Katrínu Innlent Varaforsetaefni í bobba vegna hundsdráps og meints fundar með Kim Erlent Ók á tvö hundruð með lögguna á hælunum Innlent Flugvél Atlanta á tæpasta vaði í Ríad Erlent Halla Hrund eigi langt í land með að tryggja sér embættið Innlent Katrín efst en Jón hrynur í nýrri könnun Innlent „Ég get ekki annað en sagt satt“ Innlent Sigu niður í Gretti sterka og dældu úr honum sjó Innlent Ótrúlegustu aðskotahlutir gera óskunda í dósatalningarvélum Innlent Fleiri fréttir Hvernig ætlar ríkið að sækja milljónirnar 360 sem Haraldur gaf? Flottustu Mustang bílarnir landsins til sýnis í dag Halla Hrund eigi langt í land með að tryggja sér embættið Rýnt í forsetakappræður og fylgst með Bakgarðshlaupi „Ég get ekki annað en sagt satt“ Ríflega fjörutíu prósent líst illa á Katrínu „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Sigu niður í Gretti sterka og dældu úr honum sjó Ók á tvö hundruð með lögguna á hælunum Sólríkasta byrjun árs í Reykjavík í 77 ár Hafa rukkað þá sem valda sinubruna um kostnað við útkall Ótrúlegustu aðskotahlutir gera óskunda í dósatalningarvélum Fjöldi verkfallsboðana á Keflavíkurflugvelli áhyggjuefni Kosið um sameiningu Húna- og Skagabyggðar í júní Nýjustu skoðanakannanir, verkfallsaðgerðir á flugvellinum og týndur gaffall Halla Hrund líka vinsæll annar kostur Kolbeinn hafi strokið kynfæri stúlkunnar ítrekað Segja lýðræðis- og mannréttindabakslag staðreynd Ný sendiskrifstofa opnuð í Síerra Leóne Baldur segir niðurstöður nýjustu kannana vonbrigði Halla Hrund mælist með mest fylgi í nýrri könnun Maskínu Tilvísunum vegna skekkju á höfuðkúpu ungbarna fjölgað mikið Fréttaskýring Maríu Sigrúnar kemur út á mánudag Einar segir forsetaembættið um ekki neitt Svona gæti bensínstöðvarreiturinn við Ægisíðu litið út Ákærð fyrir að kæfa son sinn með kodda Börn lögð inn með kíghósta „Við reyndum eins og við gátum“ Framkvæmdanefnd fyrir Grindavík sett á laggirnar Sambærileg rúðubrot í Lækjargötu og á Skólavörðustíg Sjá meira