Segir lækna hafa hlegið að sér og sagt að hún væri of ung til að greinast með krabbamein Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar 23. október 2021 20:04 Sóley Björg Ingibergsdóttir. vísir Sóley Björg Ingibergsdóttir greindist með krabbamein aðeins 27 ára. Hún segir að læknar hafi hlegið að henni og sagt að hún væri allt of ung til að greinast með krabbamein þegar hún leitaði til þeirra vegna gruns um sjúkdóminn. Hún vill að auðveldara verði fyrir ungt fólk að leita til læknis.
Í tilefni af bleikum október standa Brakkasamtökin að ljósmyndasýningunni: Of ung fyrir krabbamein? Sýningin fjallar um krabbameinsferli Sóleyjar sem greindist með með brakka tvö stökkbreytinguna 25 ára. Í mars á þessu ári, þegar Sóley var aðeins 27 ára gömul, greinist hún með krabbamein í brjósti og í eitlum. „Ég hef lent í því að fara á vaktina og það hefur verið hlegið að manni og sagt: „Þú ert allt of ung og þetta er ábyggilega bara blæðingar, einhverjar tíðarblæðingar og hnútar í brjóstinu, þú þarft ekki að pæla í þessu,“ segir Sóley Björg Ingibergsdóttir, atvinnuflugmaður og flugkennari. Fjögurra mánaða bið Sóley fann hnút í brjóstinu í októbermánuði og hringdi um leið og pantaði tíma hjá Domus Medica en fékk ekki tíma fyrr en fjórum mánuðum síðar. „En um leið og ég fékk tímann og hitti lækninn þá fór boltinn að rúlla og ég fékk myndatöku viku seinna en samt frá október til febrúar er svakalega langur tími.“ Sóley hefur rætt opinskátt um baráttu sína við krabbamein á Instagram. View this post on Instagram A post shared by Sóley Björg Ingibergsdóttir (@soleybjorg) Ljósmyndarinn Þórdís Erla fylgdi Sóleyju eftir í nokkra mánuði. Sóley hefur lokið lyfjameðferð, geislameðferð og farið í tvöfalt brjóstnám. „Svona fyrir mig að skoða þessar myndir núna er mjög átakanlegt af því að ég man ekkert eftir því að hafa verið svona svakalega veik. Ég var bara í mínum stígvélum og það var bara áfram gakk.“ Krabbamein spyrji ekki um aldur „Markmið sýningarinnar er að vekja athygli á því að krabbamein spyr ekki um kennitölu eð aldur og við getum öll lent í þessu.“ Hún skilar þökkum til allra þeirra sem studdu hana í þessu erfiða verkefni. „Ferlið þarf að vera þægilegra og það þarf að vera betra fyrir ungt fólk að geta hringt í lækni, fengið tíma af því að þetta er bara mjög alvarlegt mál.“ Ljósmyndasýningin stendur til 21. nóvember í Gallery Ramskram, Njálsgötu 49.
Heilbrigðismál Skimun fyrir krabbameini Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Icelandair flýgur til Færeyja að nýju Innlent Stutt í næsta gos komi til gosloka Innlent „Það er hart sótt að okkar fólki“ Innlent Úrskurðurinn felldur úr gildi Innlent Vilja endurupptöku í máli Weinstein Erlent Háskólanemar halda lautarferð og stofna hreyfingu fyrir Palestínu Innlent Litaðir seðlar til skoðunar og málið á mjög viðkvæmu stigi Innlent Vill hinn almenna launamann á þing Innlent Sinueldur í Munaðarneslandi Innlent Rúður skotnar í spað í verslun innflytjenda Innlent Fleiri fréttir Icelandair flýgur til Færeyja að nýju Stutt í næsta gos komi til gosloka „Það er hart sótt að okkar fólki“ Nemendur Flóaskóla slá í gegn með Langspilin sín Háskólanemar halda lautarferð og stofna hreyfingu fyrir Palestínu Jarðhræringar á Reykjanesi, flug til Færeyja og verkalýðsdagurinn Úrskurðurinn felldur úr gildi Vill hinn almenna launamann á þing Sinueldur í Munaðarneslandi Íslensk stjórnvöld haldin „sjúkri undirgefni“ Barn á Akureyri greindist með kíghósta Íslensk fjara á lista yfir bestu strendur heims Beint: Hátíðarhöld á verkalýðsdaginn 2024 Sniglar hægja á umferð Yrði gagnkynhneigður maður spurður sömu spurningar? Verkalýðsbaráttan aldrei verið jafn mikilvæg Einkamálefni forsetaframbjóðanda, verkalýðsdagurinn og háskólamótmæli „Hinsegin fólk þekkir vel að vera smættað niður í einkalíf sitt“ Hátíðardagskrá víða um land á verkalýðsdaginn Litaðir seðlar til skoðunar og málið á mjög viðkvæmu stigi Sagðist ætla að nota tíu milljón króna kókaín allt sjálfur Arnór Sighvatsson settur varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika Sér eftir Landsdómsmálinu: „Ég myndi aldrei gera þetta svona aftur“ Íslenskar stjörnur fái peninga að gjöf til að leggja undir í veðmálum Hjólastólinn í „tengdamömmuboxi“ á toppi bílsins Gæti dregið til tíðinda á næstu klukkustundum Fallið frá ráðningarferli og Hermann fylgir Sigurði Inga Allt að fimm milljóna króna sekt á hvern fisk Gamla stjarnan þótti ekki henta nútímakröfum Ekkert eftirlit með veðmálasíðum, landris við Svartsengi og milljónasektir fyrir eldislax Sjá meira