Hlutfall útlána til auðugra viðskiptavina bandarískra banka hefur aukist hratt á undanförnum árum. Útlán frá eignastýringareiningum (e. wealth management units) JPMorgan Chase, Bank of America, Citigroup og Morgan Stanley námu meira en 600 milljörðum dala á öðrum ársfjórðungi og jukust um 17,5% frá sama tímabili í fyrra. Financial Times greinir frá.
Útlán eignastýringardeildanna nema 22,5% af heildarlánabók bankanna en sama hlutfall var 16,3% um mitt ár 2017. Alls hafa þessi útlán aukist um 50% á síðustu fjórum árum, samanborið við 9% aukningu í heildarlánabók bankanna.
JPMorgan og Citi lána nú meira til þessara auðugu viðskiptavini sína heldur en til milljóna viðskiptavina sem eru með kreditkort hjá þeim. Fyrir áratug síðan lánaði JP Morgan fimm sinnum meira til kreditkortahafa en til viðskiptavina eignastýringardeildanna.
Þessi lán eru oft notuð fyrir fjárfestingar í fjármálagerningum, kaup á annarri fasteign eða lúxusvara. Fjárfestar hafa einnig leitað í þessi lán til að fjárfesta í eigin fyrirtækjum en þarna fá þeir ódýrari og sneggri lán en bjóðast fyrirtækjunum sjálfum.
Bankarnir hafa varið sífellt meiri fjármunum í þessa tegund lána á síðasta áratug en umfangið jókst verulega eftir að bandaríski seðlabankinn lækkaði stýrivexti vegna heimsfaraldursins. Vextir á útlánum eignastýringarfélaganna til tveggja ára eru um 1,4% en þau eru oft með fjármálagerninga líkt og hlutabréf að veði.
„Það sem veldur mér áhyggjum er að þú ert með allt þetta fjármagn í útlánum, með það að leiðarljósi að auðuga fólkið tapi aldrei,“ er haft eftir Peter Atwater, forstjóra ráðgjafafyrirtækisins Financial Insyghts. Hann segir að varasjóðir sem bankar þurfi að leggja til hliðar vegna eignastýringarstarfseminnar séu „rýrir“.