Óskar eftir vitnum að líkamsárás

mbl.is/Arnþór Birkisson

Lögreglan á Norðurlandi eystra óskar eftir vitnum að líkamsárás sem átti sér stað á Strandgötu við Bifreiðastöð Oddeyrar (BSO) aðfaranótt sunnudagsins 10. október.

Lögreglan óskar einnig eftir að komast í samband við ökumann hvítrar Land Rover Discovery bifreiðar sem sótti aðila í Kaupvangsstræti við veitingastaðinn Rub umrædda nótt, skömmu eftir líkamsárásina.

Lögreglan biður þá sem hafa upplýsingar sem gætu tengst þessu að hafa samband við lögregluna í gegnum síma 4442800, netfangið nordurland.eystra@logreglan.is eða senda skilaboð í gegnum Facebook-síðu lögreglunnar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert