„Ég var mjög hrædd og óttaslegin“ Magnús Jochum Pálsson og Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifa 22. júní 2022 15:45 Berglind Bjarney Ásgeirsdóttir, íbúi að Miðvangi 41, var mjög óttaslegin þegar hún sá hvað var um að vera á bílastæðinu fyrir framan blokkina. Vísir/Ívar Berglind Bjarney Ásgeirsdóttir, íbúi að Miðvangi 41 þar sem skotið var á tvo bíla í morgun, sagðist hafa orðið óörugg og óttasleginn vegna ástandsins sem skapaðist í morgun. Henni fannst skorta nægilega upplýsingagjöf frá lögreglunni en einu upplýsingarnar sem hún fékk um málið heyrði hún í útvarpinu.
Berglind sem býr á áttundu hæð á Miðvangi 41, blokkinni við bílastæðið þar sem skotið var á tvo bíla í morgun, var enn skjálfandi þegar fréttamaður náði tali af henni skömmu eftir að búið var að handtaka skotmanninn. Berglind sagði í viðtalinu hafa fengið hringingu frá syni sínum í morgun þegar hann var á leið í vinnuna. Hún vissi ekki hvaðan á sig stóð veðrið þegar hann tjáði henni að sérsveitin væri mætt fyrir utan blokkina hennar. Þegar hún fór svo út á svalir sá hún alla bílana fyrir utan og skildi ekkert hvað var að gerast. „Ég var mjög hrædd og óttaslegin,“ sagði hún aðspurð hvernig henni hefði liðið í morgun. „Og er enn skjálfandi af hræðslu af því maður veit ekkert. Maður verður svo rosalega óöruggur. Og fær ekkert að vita neitt.“ Skortur á upplýsingum Berglind fékk engar upplýsingar um hvað væri í gangi frá lögreglumönnunum sem voru á stigaganginum í blokkinni. Hún uppgötvaði ekki hvað væri að gerast fyrr en hún kveikti á útvarpinu. Þar að auki fór hún reglulega út í glugga til að athuga hvað væri í gangi en þorði ekki að fara niður til að kanna málið. „Klukkan rúmlega tíu fer ég til að athuga hvort ég megi fara út af því ég ætlaði að fara að líta á foreldra mína,“ segir Berglind. En þá var henni meinað að fara út og var sagt að fara aftur upp. Henni var samt ekkert sagt hvað væri um að vera og fannst óþægilegt að fá ekkert að vita nema að heyra það í útvarpinu. „Og ég vissi ekkert og fékk engar upplýsingar um hvað væri um að vera nema að kveikja á útvarpinu.“ Hún fylgdist grannt með út um gluggann og af svölunum og sá þegar lögreglan handtók manninn. Sjálf sagðist hún ekkert vita hvaða maður þetta væri.
Skotárás við Miðvang Lögreglumál Hafnarfjörður Skotvopn Tengdar fréttir Var með barnið í bílnum þegar skotið var á hann Faðir og sex ára gamall sonur hans voru í öðrum bílanna sem skotið var á við Miðvang í Hafnarfirði í morgun. Lögreglan rannsakar skothríð sjötugs karlmanns á bílana sem tilraun til manndráps. 22. júní 2022 15:25 Maður í bílnum sem skotið var á Lögreglan er sögð rannsaka skotárás á tvo bíla við Miðvang í Hafnarfirði í morgun sem tilraun til manndráps. Eigandi annars bílsins var inni í honum þegar karlmaður á sjötugsaldri skaut á hann. 22. júní 2022 14:53 Umsátrinu í Hafnarfirði lauk þegar maðurinn gaf sig fram Karlmaður á sjötugsaldri sem grunaður er um að hafa skotið á tvo bíla við Miðvang í Hafnarfirði kom út úr íbúð sinni sjálfviljugur skömmu eftir hádegi og er nú í haldi lögreglu. Þar með lauk tæplega fjögurra klukkustunda löngu umsátursástandi. 22. júní 2022 12:36 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Auglýsa eftir „eiganda“ fjármuna Innlent Trump líklegur til að græða á úrskurði Hæstaréttar Erlent Ögurstund og opnunarhóf hjá frambjóðendum Innlent Útlagar spreyjaðir gylltir Innlent „Breiðholt mesta fátæktargildra landsins“ Innlent Framboðslistar opinberaðir eftir helgi Innlent Sigríði þykir ólíklegt að hún nái undirskriftum Innlent Glæsileg þjóðbúningamessa á Hvolsvelli Innlent Helga Þórisdóttir komin með lágmarksfjölda meðmæla Innlent Pétur Einarsson leikari látinn Innlent Fleiri fréttir Framboðslistar opinberaðir eftir helgi Auglýsa eftir „eiganda“ fjármuna Glæsileg þjóðbúningamessa á Hvolsvelli Ögurstund og opnunarhóf hjá frambjóðendum Forsetaslagurinn, leit að eiganda fjármuna og rjómablíða Fjölbreytt verkefni hjá björgunarsveitum í dag Útlagar spreyjaðir gylltir Helga Þórisdóttir komin með lágmarksfjölda meðmæla Sinueldur í Reykjanesbæ Pétur Einarsson leikari látinn Kólnar á öllu landinu eftir óvenjugóðan fyrsta sumardag „Ákveðnar efasemdir um ákveðna þætti“ Fimm teravött af orku og 20 milljarðar í samgöngur Seltjarnarnesbær gengur frá sölu á Safnatröð Sigríði þykir ólíklegt að hún nái undirskriftum Umdeilt frumvarp, íslenskan og sumarveðrið Eiríkur og Bjarni takast á um nefnd um íslenska tungu Ræða mest málefni íslenskunnar á fundum enskumælandi ráðs Tíu sektaðir vegna notkunar nagladekkja „Breiðholt mesta fátæktargildra landsins“ Segir borgarstjóra óttalegan vettling Vilja taka upp auðlindagjald að hætti Norðmanna „Dapurlegt“ að andstæðingar bólusetninga hafi svo mikil áhrif Stefnir í sólríkan og hlýjan sumardag fyrsta víða um land Eigendur sjókvíaeldis þurfa ekki að greiða auðlindagjald Tveir létust í banaslysi í Eyjafirði Veturinn sá kaldasti síðan 1999 Vill rjúfa framkvæmdastopp í orkumálum Kári Stefánsson, ákall um vaxtalækkun og hinsegin list Skemmtiferðaskip um tíu metrum frá strandi við Viðey Sjá meira
Var með barnið í bílnum þegar skotið var á hann Faðir og sex ára gamall sonur hans voru í öðrum bílanna sem skotið var á við Miðvang í Hafnarfirði í morgun. Lögreglan rannsakar skothríð sjötugs karlmanns á bílana sem tilraun til manndráps. 22. júní 2022 15:25
Maður í bílnum sem skotið var á Lögreglan er sögð rannsaka skotárás á tvo bíla við Miðvang í Hafnarfirði í morgun sem tilraun til manndráps. Eigandi annars bílsins var inni í honum þegar karlmaður á sjötugsaldri skaut á hann. 22. júní 2022 14:53
Umsátrinu í Hafnarfirði lauk þegar maðurinn gaf sig fram Karlmaður á sjötugsaldri sem grunaður er um að hafa skotið á tvo bíla við Miðvang í Hafnarfirði kom út úr íbúð sinni sjálfviljugur skömmu eftir hádegi og er nú í haldi lögreglu. Þar með lauk tæplega fjögurra klukkustunda löngu umsátursástandi. 22. júní 2022 12:36