Sökuðu hvor annan um að hafa ekið á

Annar mannanna keyrði á staurinn en ekki er vitað hvor …
Annar mannanna keyrði á staurinn en ekki er vitað hvor þeirra það var. mbl.is/Kristinn Magnússon

Umferðaróhapp varð í Mosfellsbæ í gærkvöldi þegar bifreið var ekið á ljósastaur. Ágreiningur kom upp á meðal þeirra sem voru í bílnum um það hvor þeirra hefði setið undir stýri.

„Tveir einstaklingar í bifreiðinni og sökuðu þeir hvor annan um að hafa ekið, en báðir einstaklingarnir eru grunaðir um að vera undir áhrifum fíkniefna,“ segir í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um málið.

Báðir einstaklingar voru handteknir og vistaðir í fangaklefa í þágu rannsóknar málsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert