Erlendir borgarar og ungt fólk tekið þungt högg í faraldrinum Kjartan Kjartansson skrifar 15. október 2020 19:26
Erlendir ríkisborgarar og ungt fólk hefur tekið þyngsta efnahagslega höggið vegna kórónuveirufaraldursins. Framkvæmdastjóri Alþýðusambands Íslands segir þörf á sértækum vinnumarkaðsaðgerðum til þess að mæta þeim hópum. ASÍ kynnti skýrslu sérfræðingahóps verkalýðshreyfingarinnar um efnahagsleg áhrif faraldursins í dag. Niðurstaðan hópsins var að efnahagskreppan af völdum faraldursins hefði komið sérstaklega þungt niður á ungu fólki og erlendum ríkisborgurum hér á landi. Þannig er atvinnuleysi á meðal erlendra ríkisborgara sagt mikið og langt umfram meðaltal á landinu. Halla Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri ASÍ, sagði í kvöldfréttum Stöðvar 2 að erlendir ríkisborgarar manni oft stöður í ferðaþjónustunni og tengdum greinum. Sá hópur sé með hærri atvinnuþátttöku hér en annars staðar á Norðurlöndunum. Hann hafi tekið þungan skell en eigi oft ekki sama stuðningsnet og aðrir. Þá er bent á að atvinnuleysi ungs fólks fari vaxandi og mælist nú rúm 18% í aldurshópnum 16-24 ára. Halla sagði að þeim fari fjölgandi sem eru hvorki í vinnu né í námi. „Þetta er eitthvað sem við teljum að sértækar vinnumarkaðaðgerðir þurfi að mæta,“ sagði hún. Faraldurinn er einnig sagður hafa haft í för með sér aukið álag á kvennastéttir og inni á heimilum. Konur sinni einkum umönnunarstörfum og eigi þess vegna ekki kost á því að sinna störfum sínum í fjarvinnu ólíkt mörgum öðrum. Konur í lægri menntunar- og tekjuflokkum verði fyrir mestum áhrifum í samdrættinum nú. „Við höfum séð það að þær stéttir sem hafa verið í framlínunni í heilbrigðis- og félagsþjónustunni eru mikið til mannaðar af konum. Samhliða hefur álag á heimilum aukist þannig að við erum að reyna að greina þessi kynbundnu áhrif og teljum að það þurfi að fylgjast með þeim áfram í gegnum þessa kreppu,“ sagði Halla. Atvinnuleysi hefur komið af miklum þunga niður á íbúum Suðurnesja og Suðurlands, tveggja landshluta þar sem ferðaþjónusta hefur verið fyrirferðarmikil á undanförnum árum. Í skýrslunni kemur fram að hlutfallsleg aukning atvinnuleysis á Suðurnesjum sé 92% frá marsmánuði. „Sérfræðingahópurinn hvetur stjórnvöld til að setja sér heildstæða atvinnustefnu sem sé um leið verkfæri til að takast á við afleiðingar COVID-kreppunnar og stuðla að uppbyggingu til framtíðar,“ segir í tilkynningu um skýrsluna á vef ASÍ.
Kjaramál Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Innlent „Skrímsladeildin“ hafi skorið upp herör gegn mótframbjóðendum Katrínar Innlent Sló til starfsmanns og beit viðskiptavin Innlent Halla Hrund eigi langt í land með að tryggja sér embættið Innlent Hvernig ætlar ríkið að sækja milljónirnar 360 sem Haraldur gaf? Innlent Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Innlent Hefur ekki áhuga á slúðurfréttum af öðrum frambjóðendum Innlent Ríflega fjörutíu prósent líst illa á Katrínu Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Varaforsetaefni í bobba vegna hundsdráps og meints fundar með Kim Erlent Fleiri fréttir Öruggara Suðurland“ – nýtt og spennandi verkefni Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Landsmenn ánægðir með frammistöðu Höllu Tómasdóttur í kappræðunum Sló til starfsmanns og beit viðskiptavin „Skrímsladeildin“ hafi skorið upp herör gegn mótframbjóðendum Katrínar Hefur ekki áhuga á slúðurfréttum af öðrum frambjóðendum Tólf tíma tökudagar og svo forsetaframboð Hvernig ætlar ríkið að sækja milljónirnar 360 sem Haraldur gaf? Flottustu Mustang bílarnir landsins til sýnis í dag Halla Hrund eigi langt í land með að tryggja sér embættið Rýnt í forsetakappræður og fylgst með Bakgarðshlaupi „Ég get ekki annað en sagt satt“ Ríflega fjörutíu prósent líst illa á Katrínu „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Sigu niður í Gretti sterka og dældu úr honum sjó Ók á tvö hundruð með lögguna á hælunum Sólríkasta byrjun árs í Reykjavík í 77 ár Hafa rukkað þá sem valda sinubruna um kostnað við útkall Ótrúlegustu aðskotahlutir gera óskunda í dósatalningarvélum Fjöldi verkfallsboðana á Keflavíkurflugvelli áhyggjuefni Kosið um sameiningu Húna- og Skagabyggðar í júní Nýjustu skoðanakannanir, verkfallsaðgerðir á flugvellinum og týndur gaffall Halla Hrund líka vinsæll annar kostur Kolbeinn hafi strokið kynfæri stúlkunnar ítrekað Segja lýðræðis- og mannréttindabakslag staðreynd Ný sendiskrifstofa opnuð í Síerra Leóne Baldur segir niðurstöður nýjustu kannana vonbrigði Halla Hrund mælist með mest fylgi í nýrri könnun Maskínu Tilvísunum vegna skekkju á höfuðkúpu ungbarna fjölgað mikið Fréttaskýring Maríu Sigrúnar kemur út á mánudag Sjá meira