Bótakröfur upp á tugi milljóna í Rauðagerðismálinu Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir og Kolbeinn Tumi Daðason skrifa 23. september 2021 11:18 Þóranna Helga Gunnarsdóttir lýsti í Kompás í vetur þeim áhrifum sem morðið hefði haft á fjölskylduna. Vísir/vilhelm Réttargæslumaður Þórönnu Helgu Gunnarsdóttur, ekkju Armando Beqirai, tveggja barna þeirra og foreldra Armandos fór fram á tæplega 70 milljónir króna í bótagreiðslu frá sakborningum í Rauðagerðismálinu. Ýmist er um miskabótakröfur að ræða eða kröfur vegna missis á framfærslu.
Munnlegur málflutningur í málinu stendur yfir í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Kolbrún Benediktsdóttir saksóknari fer fram á 16-20 ára fangelsi yfir Angjelin Sterkaj fyrir að ráða Armando bana laugardagskvöldið 13. febrúar síðastliðið. Réttargæslumaður Þórönnu Helgu lýsti bótakröfu fjölskyldunnar fyrir dómi í dag. Krafist er fimm milljóna króna í miskabætur til handa Þórönnu auk 26 milljóna króna vegna missis á framfærslu. Krafist er fimm milljóna í miskabætur til handa ungs sonar Armando og sjö milljóna vegna framfærslu missis sonarins. Þá er gerð krafa um fimm milljónir í miskabætur og átta vegna missis á framfærslu fyrir nýfædda dóttur þeirra. Þá er sömuleiðis gerð krafa um fimm milljóna króna bótagreiðslu fyrir föður Armando annars vegar og móður hins vegar. Fram kom í máli réttargæslumannsins að morðið á Armando myndi hafa veruleg áhrif á son hans sem var aðeins sextán mánaða þegar faðir hans var myrtur. Hann hafi verið sviptur þeim rétti að fá að alast upp með föður sínum. Þetta muni án efa hafa með sér stórfelldan miska og verulegt tjón sem muni hafa alvarleg áhrif á allt hans æviskeið. Dóttir þeirra hjóna kom í heiminn í lok maí. Með morðinu hafi hún verið svipt þeim grundvallarrétti að fá að kynnast og alast upp með föður sínum. Það muni fela í sér gífurlegan miska og verulegt tjón fyrir stúlkuna. Rætt var við Þórönnu Helgu í Kompás nokkrum vikum eftir morðið.
Morð í Rauðagerði Dómsmál Tengdar fréttir Farið fram á 16 til 20 ára dóm: „Hrein og klár aftaka“ Síðasti dagur aðalmeðferðar í Rauðagerðismálinu svokallaða fer fram í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur. Ákæruvaldið hefur farið fram á að Angjelin Sterkaj verði dæmdur til 16 til 20 ára fangelsisvistar. 23. september 2021 10:35 Angjelin Sterkaj fer fram á refsileysi Angjelin Sterkaj, sem er einn þeirra sem ákærð eru fyrir morðið á Armando Beqiri, fer fram á að honum verði ekki gerð refsing á grundvelli þess að hann hafi einungis farið út fyrir lögmæta neyðarvörn vegna þess að hann hafi orðið svo skelfdur að hann hafi ekki getað gætt sín fullkomlega. Hann heldur því fram að hann hafi gripið til örþrifaráðs þegar hann skaut Armando margsinnis þann 13. febrúar síðastliðinn í Rauðagerði. 17. september 2021 18:56 Faldi sig inni í herbergi af ótta við Angjelin Spænskur vinur Antons Kristins Þórarinssonar segist hafa verið hræddur við Angjelin Sterkaj. Hann hefði falið sig inni í herbergi í íbúð þangað sem Angjelin mætti daginn eftir morðið, af ótta við Angjelin. 16. september 2021 11:21 Mest lesið María Sigrún látin fara úr Kveik Innlent Svona var stemmningin á lokaspretti forsetaefnanna í Hörpu Innlent Ásdís Rán, Arnar og Ástþór mætast í Pallborðinu Innlent Dregur framboðið til baka Innlent „Ef ég get flogið þremur gerðum af þyrlum þá get ég tekið ákvörðun fyrir þjóðina“ Innlent „Þessi ákvörðun var ekki tekin í Valhöll“ Innlent Ákvörðun áfrýjunardómstólsins áfall og stórt skref aftur á bak Erlent Viktor stal senunni: Hefði ekki haft tíma til að safna ef hann væri í vinnu Innlent Auglýsa eftir „eiganda“ fjármuna Innlent „Óskiljanlegt að menn skuli leggjast svona lágt“ Innlent Fleiri fréttir Hjúkrunarfræðingurinn ekki laus allra mála enn Trúnaðarsamtöl við forsætisráðherra lykilatriði Sprakk úr hlátri „Ísdrottningin myndi bráðna ef hér kæmi kjarnorkusprengja“ Með hundruð sjálfboðaliða í liði sínu Samskiptaleysi meðal lögreglumanna olli því að fólk var sektað Verði ekki meðvirk frekar en Ólafur Ragnar Rifjaði upp þegar forsetinn bjargaði landinu Skemmdarvargar á eftir útilistaverkum eftir Einar Jónsson Krafturinn í gosinu gæti aukist verulega haldi kvikusöfnun áfram Þrettánda nafnið bætist við Fimm af tólf skiluðu einungis rafrænum meðmælum Gylfi leiðir samhæfingu vegna Grindavíkur María Sigrún látin fara úr Kveik Viktor stal senunni: Hefði ekki haft tíma til að safna ef hann væri í vinnu Forsetaefni streymdu í Hörpu Ásdís Rán, Arnar og Ástþór mætast í Pallborðinu „Ef ég get flogið þremur gerðum af þyrlum þá get ég tekið ákvörðun fyrir þjóðina“ Rekin vinalega á brott en vonast til að fá að vera áfram „Þessi ákvörðun var ekki tekin í Valhöll“ „Óskiljanlegt að menn skuli leggjast svona lágt“ Dregur framboðið til baka Niðri fyrir vegna Útlaganna Svona var stemmningin á lokaspretti forsetaefnanna í Hörpu Kínverjar vara Bandaríkjamenn við að stíga á „rauðu strikin“ Samtök hernaðarandstæðinga fordæma „kúvendingu“ á afstöðu Íslands Leyfislausar tjaldbúðir og sundsprettur eftir lokun Framboðslistar opinberaðir eftir helgi Auglýsa eftir „eiganda“ fjármuna Glæsileg þjóðbúningamessa á Hvolsvelli Sjá meira
Farið fram á 16 til 20 ára dóm: „Hrein og klár aftaka“ Síðasti dagur aðalmeðferðar í Rauðagerðismálinu svokallaða fer fram í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur. Ákæruvaldið hefur farið fram á að Angjelin Sterkaj verði dæmdur til 16 til 20 ára fangelsisvistar. 23. september 2021 10:35
Angjelin Sterkaj fer fram á refsileysi Angjelin Sterkaj, sem er einn þeirra sem ákærð eru fyrir morðið á Armando Beqiri, fer fram á að honum verði ekki gerð refsing á grundvelli þess að hann hafi einungis farið út fyrir lögmæta neyðarvörn vegna þess að hann hafi orðið svo skelfdur að hann hafi ekki getað gætt sín fullkomlega. Hann heldur því fram að hann hafi gripið til örþrifaráðs þegar hann skaut Armando margsinnis þann 13. febrúar síðastliðinn í Rauðagerði. 17. september 2021 18:56
Faldi sig inni í herbergi af ótta við Angjelin Spænskur vinur Antons Kristins Þórarinssonar segist hafa verið hræddur við Angjelin Sterkaj. Hann hefði falið sig inni í herbergi í íbúð þangað sem Angjelin mætti daginn eftir morðið, af ótta við Angjelin. 16. september 2021 11:21