Fótbolti

Flick stað­festir að hann hætti með Bayern í sumar

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Flick í leiknum í dag. Eftir leik staðfesti hann brottför sína í sumar.
Flick í leiknum í dag. Eftir leik staðfesti hann brottför sína í sumar. EPA-EFE/MARTIN ROSE

Hans-Dieter Flick, þjálfari Þýskalandsmeistara Bayern staðfesti eftir 3-2 sigur liðsins í dag að hann myndi hætta með liðið í sumar.

Undanfarnar vikur hafa orðrómar verið á kreiki um að Hansi Flick myndi hætta með Þýskalandsmeistara Bayern að loknu tímabilinu og taka við þýska landsliðinu. Þjálfarinn staðfesti þá orðróma sjálfur í dag að loknum 3-2 sigri liðsins á Wolfsburg.

Hinn 56 ára gamli Flick tók við stjórnartaumunum hjá Bayern er Króatinn Niko Kovac var látinn fara á síðustu leiktíð. Hann gerði sér lítið fyrir og vann allt sem hægt var að vinna með Bæjara, þar á meðal þýska meistaratitilinn sem og Meistaradeild Evrópu.

Flick vildi styrkja lið Bæjara fyrir komandi tímabil en fékk það ekki. Síðan þá hafa verið orðrómar á kreiki um ósætti milli hans og stjórnarmanna félagsins. 

Eftir að liðið datt úr leik í Meistaradeildinni í vikunni var það svo gott sem staðfest að Flick myndi segja starfi sínu lausu að loknu tímabilinu.

Hann hefur nú staðfest það sjálfur og er því nær öruggt að Flick taki við þýska landsliðinu eftir EM í sumar.

Það stefnir allt í að Bayern verji titilinn enn og aftur heima fyrir en liðið er með sjö stiga forystu á RB Leipzig þegar fimm umferðir eru eftir. Óvíst er hver tekur við Þýskalandsmeisturunum en bæði Julian Nagelsmann og Jurgen Klopp hafa verið orðaður við starfið.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×