Töfratálgari í Hveragerði Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar 7. desember 2021 10:08 Andrína Guðrún Jónsdóttir er með góðu vinnuaðstöðu í gamla barnaskólanum í Hveragerði þar sem nokkrir aðrir listamenn úr bæjarfélaginu eru líka með starfsaðstöðu fyrir sína list. Magnús Hlynur Hreiðarsson Útskurðarhnífar Andrínu Guðrúnar í Hveragerði hljóta að vera einhverskonar töfrahnífar því fuglarnir, sem hún tálgar verða svo fallegir í höndunum á henni. Mesta áskorun Andrínu er að tálga hrafninn.
Andrína Guðrún Jónsdóttir er með góðu vinnuaðstöðu í gamla barnaskólanum þar sem hún töfrar fram með útskurðahnífnum sínum allskonar fugla. Hún sér svo um að mála þá og gera þá fína áður en þeir fara upp í hillu og svo til þeirra, sem kaupa þá af henni. Andrína segist una sér best þegar hún er að tálga í sínum eigin heimi án alls áreitis. „Ég er aðallega að tálga íslenska spörfugla og vaðfugla og svo bætti ég við nokkrum dönskum vetrarfuglum. Það er mjög skemmtilegt að tálga því það er svona notalegt. Ein, sem var með mér hérna í vinnustofunni sagði að þegar ég væri að pússa þá væri hljóðið svo notalegt,“ segir Andrína hlægjandi. En er úr hvaða viði tálgar Andrína fuglana? „Ég er að tálga í Linditré frá Rússlandi, sem Húsasmiðjan flytur inn. Það er svo gott að tálga í þann við því hann er svo mjúkur og þéttur í sér“. Andrína er með sérstaka síðu á Facebook þar sem hægt er að skoða fuglana hennar. Síðan heitir Stúdíó Spói.Magnús Hlynur Hreiðarsson En hvaða fugl er erfiðasta að tálga? „Mér finnst hrafninn alltaf erfiðastur því ég næ ekki að gera hann eins úfinn og hann þarf að vera og ég hef ekki farið í mávana einhverja hluta vegna,“ segir Andrína. Þeir sem hafa áhuga á að fylgjast nánari með Andrínu og fuglunum hennar geta farið inn á Facebookarsíðu hennar, Stúdíó spói og svo er hún meira og minna við á vinnustofunni sinni í gamla barnaskólanum, ekki síst núna í jólamánuðinum. Fuglarnir hjá Andrínu eru ótrúlega vel gerðir og fallegir.Magnús Hlynur Hreiðarsson
Hveragerði Handverk Eldri borgarar Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Áfall þegar samskipti Katrínar og Kára voru birt Innlent Þekkir dæmi um endalaus uppköst og garnalömun vegna lyfjanna Innlent Konurnar hafi gert allt til að setja ekki svartan blett á starfsemina Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Bæjarstjóri sakaður um að vera njósnari: „Enginn veit hver hún er“ Erlent Segir Helgu fara með rangt mál Innlent Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra Innlent Íranski forsetinn í óljósu þyrluslysi Erlent „Fólk er bara að bíða“ Innlent Færeyingar draga í land með ferðamannaskatt Erlent Fleiri fréttir „Fólk er bara að bíða“ Tveir prestar og tveir djáknar vígðir í Skálholti Lægð yfir landinu og snjókoma fyrir norðan Áfall þegar samskipti Katrínar og Kára voru birt Aukin skjálftavirkni og erjur um Erfðagreiningu Örlítil aukning í skjálftavirkni undir Svartsengi Forsetakosningar, mansal og samningar Reykjavíkur við olíufélögin Segir Helgu fara með rangt mál Þekkir dæmi um endalaus uppköst og garnalömun vegna lyfjanna Konurnar hafi gert allt til að setja ekki svartan blett á starfsemina Með vopn og fíkniefni í útistöðum við dyravörð Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra 40 tungumál eru töluð í leik- og grunnskólum Árborgar Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Þungar áhyggjur af þyngdarstjórnunarlyfjum Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Nauðsynlegt að fresta atkvæðagreiðslu um umdeilda verksmiðju Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Átök í Ölfusi og offitulyf Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Of þung en annars hraust á Ozempic Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Sjá meira