Úr „helvíti“ í hóp hjá United í kvöld Sindri Sverrisson skrifar 22. september 2021 07:31 Svo virðist sem að hlutirnir séu loks að ganga upp hjá hinum 29 ára gamla Phil Jones. Getty/Matthew Peters Manchester United og West Ham mætast í annað sinn á fjórum dögum þegar þau eigast við í enska deildabikarnum í fótbolta í kvöld. Phil Jones snýr aftur í leikmannahóp United eftir 20 mánaða fjarveru. Miðvörðurinn Jones, sem leikið hefur yfir 200 leiki fyrir United, hefur lengi verið þjakaður af meiðslum. Hann kvaðst um síðustu helgi hafa gengið í gegnum „helvíti“ og aftur til baka, þegar hann barðist við að jafna sig af meiðslunum. „Ég er svo glaður fyrir hönd Phil,“ sagði Ole Gunnar Solskjær, knattspyrnustjóri United. „Hann er búinn að klára tvo 90 mínútna leik með U23-liðinu, búinn að spila nokkrar mínútur fyrir luktum dyrum, og hefur ekki fundið fyrir neinu í hnénu. Hann hefur lagt afar mikið á sig,“ sagði Solskjær og staðfesti að Jones yrði í hópnum í kvöld eins og hann ætti svo sannarlega skilið. „Ég veit hvaða áskoranir hann hefur þurft að glíma við, andlega, spyrjandi sig hvort hann myndi nokkurn tímann geta spilað fótbolta aftur eða bara gengið um og leikið sér við börnin sín í garðinum,“ sagði Solskjær. Líklegt að Lingard byrji Bakvörðurinn Alex Telles snýr einnig aftur eftir ökklameiðsli og Edinson Cavani gæti snúið aftur eftir vöðvatognun. Enn virðist hins vegar bið í að Marcus Rashford og Amad Diallo byrji að spila. Solskjær gaf einnig í skyn að Jesse Lingard, sem tryggði Manchester-liðinu 2-1 sigur gegn West Ham á sunnudaginn, fengi tækifæri í byrjunarliðinu á móti sínum gömlu félögum frá því að hann var á láni hjá West Ham á síðustu leiktíð. Leikur Manchester United og West Ham hefst klukkan 18.45 og er í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 2. Á hliðarrásum eru sýndir leikir Chelsea og Aston Villa, og Wolves og Tottenham. Carabao Cup er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Carabao Cup er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði. Enski boltinn Mest lesið Harma auglýsingar á gólfi og vilja banna þær eftir meiðsli Martins Körfubolti „Þið eruð lið fullt af feitabollum“ Enski boltinn Sjáðu dramatísku vítakastskeppnina í Eyjum Handbolti Drakk átta bjóra fyrir beina útsendingu Fótbolti Sló í myndavél og gæti fengið bann Körfubolti Aron í myndatöku í dag vegna meiðslanna Handbolti Vatnaskil hjá Red Bull og risafréttir fyrir Formúlu 1 Formúla 1 Segir aðeins þau hlutlausu hafa skemmt sér yfir fótbolta Ten Hag Enski boltinn Fengið nóg af því að vera ruslakista fyrir viðbjóð frá fólki Körfubolti Rangnick hafnar Bayern München Fótbolti Fleiri fréttir Í beinni: Chelsea - Tottenham | Tíminn að renna út fyrir Spurs „Þið eruð lið fullt af feitabollum“ Tekur fyrir að starfsfólk Manchester United vinni að heiman Segir aðeins þau hlutlausu hafa skemmt sér yfir fótbolta Ten Hag Sextán ára og skoraði hjá Arsenal eins og Rooney forðum „Mo Salah sá sem að gekk of langt“ Manchester-liðin og Aston Villa á móti því að eyðsluþak verði sett á Nær allir leikmenn Man Utd til sölu fyrir rétt verð Thiago Silva hættir hjá Chelsea en vonast til að synirnir spili þar áfram Hundraðasti sigur Arteta kom gegn erkifjendunum: „Stoltur af leikmönnunum“ „Ekki boðlegt á þessu getustigi“ Fowler hjálpaði Man City að styrkja stöðu sína á toppnum Meistarar Man City halda í við topplið Arsenal Bournemouth fór illa með Brighton Arsenal vann kaflaskiptan Norður-Lundúnaslag Segir að VAR skaði ímynd enska boltans Stendur með Salah og skilur pirring hans Ten Hag segir sitt lið þróttmikið og eitt af þeim skemmtilegri í deildinni Chelsea hjálpaði Tottenham með því að ná í stig gegn Villa Klopp: Verð hamingjusamur ef rétt ákvörðun er tekin Newcastle setti met þegar það skaut Sheffield niður um deild Enn ein vonbrigðin fyrir United Salah eftir rifrildið við Klopp: „Ef ég tala mun allt loga“ Klopp og Salah rifust á hliðarlínunni Antonio eyðilagði endurkomu Rauða hersins Biðst afsökunar á að hafa rætt við West Ham Arteta hefur beðið Wenger um ráð hvernig eigi að verða meistari Ten Hag bannaði þremur fjölmiðlum að spyrja spurninga Leicester í úrvalsdeildina eftir rassskellingu Leeds Stólpagrín gert að Terry vegna stjörnustæla hans Sjá meira
Miðvörðurinn Jones, sem leikið hefur yfir 200 leiki fyrir United, hefur lengi verið þjakaður af meiðslum. Hann kvaðst um síðustu helgi hafa gengið í gegnum „helvíti“ og aftur til baka, þegar hann barðist við að jafna sig af meiðslunum. „Ég er svo glaður fyrir hönd Phil,“ sagði Ole Gunnar Solskjær, knattspyrnustjóri United. „Hann er búinn að klára tvo 90 mínútna leik með U23-liðinu, búinn að spila nokkrar mínútur fyrir luktum dyrum, og hefur ekki fundið fyrir neinu í hnénu. Hann hefur lagt afar mikið á sig,“ sagði Solskjær og staðfesti að Jones yrði í hópnum í kvöld eins og hann ætti svo sannarlega skilið. „Ég veit hvaða áskoranir hann hefur þurft að glíma við, andlega, spyrjandi sig hvort hann myndi nokkurn tímann geta spilað fótbolta aftur eða bara gengið um og leikið sér við börnin sín í garðinum,“ sagði Solskjær. Líklegt að Lingard byrji Bakvörðurinn Alex Telles snýr einnig aftur eftir ökklameiðsli og Edinson Cavani gæti snúið aftur eftir vöðvatognun. Enn virðist hins vegar bið í að Marcus Rashford og Amad Diallo byrji að spila. Solskjær gaf einnig í skyn að Jesse Lingard, sem tryggði Manchester-liðinu 2-1 sigur gegn West Ham á sunnudaginn, fengi tækifæri í byrjunarliðinu á móti sínum gömlu félögum frá því að hann var á láni hjá West Ham á síðustu leiktíð. Leikur Manchester United og West Ham hefst klukkan 18.45 og er í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 2. Á hliðarrásum eru sýndir leikir Chelsea og Aston Villa, og Wolves og Tottenham. Carabao Cup er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Carabao Cup er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði.
Carabao Cup er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Carabao Cup er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði.
Enski boltinn Mest lesið Harma auglýsingar á gólfi og vilja banna þær eftir meiðsli Martins Körfubolti „Þið eruð lið fullt af feitabollum“ Enski boltinn Sjáðu dramatísku vítakastskeppnina í Eyjum Handbolti Drakk átta bjóra fyrir beina útsendingu Fótbolti Sló í myndavél og gæti fengið bann Körfubolti Aron í myndatöku í dag vegna meiðslanna Handbolti Vatnaskil hjá Red Bull og risafréttir fyrir Formúlu 1 Formúla 1 Segir aðeins þau hlutlausu hafa skemmt sér yfir fótbolta Ten Hag Enski boltinn Fengið nóg af því að vera ruslakista fyrir viðbjóð frá fólki Körfubolti Rangnick hafnar Bayern München Fótbolti Fleiri fréttir Í beinni: Chelsea - Tottenham | Tíminn að renna út fyrir Spurs „Þið eruð lið fullt af feitabollum“ Tekur fyrir að starfsfólk Manchester United vinni að heiman Segir aðeins þau hlutlausu hafa skemmt sér yfir fótbolta Ten Hag Sextán ára og skoraði hjá Arsenal eins og Rooney forðum „Mo Salah sá sem að gekk of langt“ Manchester-liðin og Aston Villa á móti því að eyðsluþak verði sett á Nær allir leikmenn Man Utd til sölu fyrir rétt verð Thiago Silva hættir hjá Chelsea en vonast til að synirnir spili þar áfram Hundraðasti sigur Arteta kom gegn erkifjendunum: „Stoltur af leikmönnunum“ „Ekki boðlegt á þessu getustigi“ Fowler hjálpaði Man City að styrkja stöðu sína á toppnum Meistarar Man City halda í við topplið Arsenal Bournemouth fór illa með Brighton Arsenal vann kaflaskiptan Norður-Lundúnaslag Segir að VAR skaði ímynd enska boltans Stendur með Salah og skilur pirring hans Ten Hag segir sitt lið þróttmikið og eitt af þeim skemmtilegri í deildinni Chelsea hjálpaði Tottenham með því að ná í stig gegn Villa Klopp: Verð hamingjusamur ef rétt ákvörðun er tekin Newcastle setti met þegar það skaut Sheffield niður um deild Enn ein vonbrigðin fyrir United Salah eftir rifrildið við Klopp: „Ef ég tala mun allt loga“ Klopp og Salah rifust á hliðarlínunni Antonio eyðilagði endurkomu Rauða hersins Biðst afsökunar á að hafa rætt við West Ham Arteta hefur beðið Wenger um ráð hvernig eigi að verða meistari Ten Hag bannaði þremur fjölmiðlum að spyrja spurninga Leicester í úrvalsdeildina eftir rassskellingu Leeds Stólpagrín gert að Terry vegna stjörnustæla hans Sjá meira