Haraldur Þorleifsson, stofnandi Ueno, sem Twitter keypti í janúar segist aldrei ætla að taka að sér að verða forstjóri fyrirtækis á ný. Í færslu á Twitter segir hann að í starfi forstjórans felist að halda fjölmörgum boltum á lofti, þar sem hlutirnir skarist oft á og taki stöðugum breytingum. Það sé ómögulegt að gera allt rétt — óhjákvæmilega verði mistök gerð og einhverjir verði sárir. Því ætli hann ekki að taka að sér á ný að verða forstjóri.
Being a CEO means trying to constantly balance thousands of different, sometimes conflicting, things. All while everything is constantly changing.
— Halli (@iamharaldur) February 22, 2021
It's an impossible job to get right. So many decisions will be wrong, people hurt, mistakes made.
I'm never doing that again.
Haraldur segist vera að vinna úr því hvað áhrif starfið hafi haft á sig, fjölskyldu sína og vini. Þó hafi margt verið gott við að stýra eigin fyrirtæki en smátt og smátt hafi álagið tekið á. Sér í lagi á síðasta ári.
Haraldur stofnaði Ueno árið 2014 og var valinn viðskiptafræðingur ársins árið 2019 af Félagi viðskipta- og hagfræðinga. Umsvif fyrirtækisins hafa aukist hratt á síðustu árum. Fyrirtækið velti 2,1 milljarði árið 2019 og hagnaðist um 115 milljónir króna. Ueno hefur unnið fyrir mörg af stærstu fyrirtækjum heims á borð við Google, Facebook og Apple, Walmart og svo auðvitað Twitter sem keypti fyrirtækið í byrjun ársins.
Sjá einnig: Óvenjuleg saga Haraldar og Ueno
Haraldur greindi nýlega frá því á Twitter að hann myndi greiða alla skatta af sölunni á Ueno á Íslandi. Hann vilji gefa til baka til kerfisins sem studdi hann.
I was born in Iceland to low income parents. I have a serious disability.
— Halli (@iamharaldur) January 30, 2021
But because this country has free schools and free healthcare I was able to thrive.
I am proud to say that all taxes from the Ueno sale will be paid in Iceland to support a system that supported me.