Lögregla telur yfirkjörstjórn hafa brotið kosningalög Eiður Þór Árnason skrifar 20. október 2021 10:22 Ingi Tryggvason, formaður yfirkjörstjórnar í Norðvesturkjördæmi vísir/tryggvi páll Lögreglustjórinn á Vesturlandi hefur boðið allri yfirkjörstjórn Norðvesturkjördæmis að ljúka máli sem varðar framkvæmd atkvæðatalningar í kjördæminu með sekt.
Samkvæmt heimildum fréttastofu varðar sektargerðin brot á 104. grein kosningalaga um frágang kjörgagna. Greint hefur verið frá því að yfirkjörstjórnin hafi skilið eftir óinnsigluð atkvæði í sal Hótels Borgarness eftir að talningu lauk. Fyrst var greint frá sektargerðunum í frétt RÚV en þar segir að Ingi hafi fengið hæstu sektargerðina upp á 250 þúsund krónur. Hinir meðlimir yfirkjörstjórnarinnar hafi svo fengið sektargerð upp á 150 þúsund krónur. Ef þau fallast ekki á að greiða sektina tekur lögreglustjórinn á Vesturlandi ákvörðun um hvort gefin verði út ákæra. Samkvæmt heimildum fréttastofu hefur fólkið ekki enn greitt sektina. Rannsókn lauk í seinustu viku Karl Gauti Hjaltason, oddviti Miðflokksins í Suðurkjördæmi, kærði talningu atkvæða í kjördæminu til lögreglu. Rannsókn lauk í síðustu viku og fór málið þá til ákærusviðs. Ingi Tryggvason, formaður yfirkjörstjórnar, vildi ekki tjá sig um málið þegar eftir því var leitað. Karl Gauti hyggst sömuleiðis ekki ræða málið að svo stöddu. Í 104. grein kosningalaga segir að yfirkjörstjórn skuli setja alla notaða kjörseðla undir innsigli og halda gildum og ógildum kjörseðlum sér. Ingi hefur sjálfur greint frá því að kjörgögn hafi ekki verið innsigluð að talningu lokinni í kjördæminu. Fleiri ljósmyndir teknar af atkvæðum í salnum Samkvæmt heimildum fréttastofu hefur lögregla aflað ljósmynda sem þrír starfsmenn Hótels Borgarness tóku inn í salnum þar sem atkvæðin voru talin, annars vegar klukkan 8:07 og 9:40 morguninn eftir kjördag. Myndirnar voru teknar á meðan yfirkjörstjórn var fjarverandi og sýna að kjörgögn voru ekki geymd í lokuðum kössum eða undir innsigli. Áður hafði einungis verið greint frá einu setti af ljósmyndum sem birt var á samfélagsmiðlinum Instagram. Þeim var síðar eytt út af miðlinum.
Endurtalning í Norðvesturkjördæmi Norðvesturkjördæmi Alþingiskosningar 2021 Lögreglumál Tengdar fréttir Segja öryggismyndavélar sýna fólk ganga inn og út úr salnum Kjarninn hefur greint frá því að á öryggismyndavélum við tvo innganga í sal þar sem óinnsigluð kjörgögn voru geymd í Norðuvesturkjördæmi sjáist fólk ganga inn og út á þeim tíma sem yfirkjörstjórn var heima á milli talningar og endurtalningar. 20. október 2021 10:28 Búinn að kæra kosningarnar til lögreglunnar Karl Gauti Hjaltason hefur sent kæru til lögreglunnar á Vesturlandi vegna framkvæmdar kosningar í Norðvesturkjördæmi. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu hefur lögreglan á Vesturlandi móttekið kæruna. 28. september 2021 10:27 Ekki staðfest að rétt hafi verið staðið að talningu í Norðvesturkjördæmi Landskjörstjórn hefur ekki fengið staðfestingu frá yfirkjörstjórn í Norðvesturkjördæmi um að meðferð og varðveisla kjörgagna á talningastað í kjördæminu hafi verið fullnægjandi. 28. september 2021 18:24 Lítið tal um innsigli í greinargerðinni sem vakti áhyggjur landskjörstjórnar Morguninn eftir að lokatölur voru gefnar út í Norðvesturkjördæmi kom í ljós að átta atkvæði sem tilheyrðu lista Sjálfstæðisflokksins og eitt sem tilheyrði Framsókn hafi verið í atkvæðabunka Viðreisnar. 29. september 2021 20:07 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Meinleysisgrey sem séu lífríkinu afar mikilvæg Innlent Fico ekki talinn í lífshættu Erlent Sjö smáskjálftar við Sýlingarfell og Veðurstofan fylgist vel með Innlent Um 800 börn bíða eftir leikskólaplássi í Reykjavík Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent „Þetta reddast“ voru fyrstu orðin sem hann lærði Innlent Segir seinlæti First Water stórfurðulegt Innlent Gjörbreytt bílpróf en segja hvergi slegið af kröfum Innlent „Heill vinnustaður er dreginn sundur og saman í háði“ Innlent Þróun ES-30 flugvélarinnar flutt frá Svíþjóð til Kaliforníu Erlent Fleiri fréttir Um 800 börn bíða eftir leikskólaplássi í Reykjavík Meinleysisgrey sem séu lífríkinu afar mikilvæg Sjö smáskjálftar við Sýlingarfell og Veðurstofan fylgist vel með „Þetta reddast“ voru fyrstu orðin sem hann lærði Lögreglan þurfi nauðsynlega auknar rannsóknarheimildir Mikill meirihluti hlynntur dánaraðstoð Fátt ef nokkuð stöðvar eldislaxinn Segir seinlæti First Water stórfurðulegt Hæstiréttur segir tíma í flugvél vera vinnutíma Vill ræða brottvísun til Nígeríu í nefnd: „Skelfileg ásýnd á þessu máli“ Gjörbreytt bílpróf en segja hvergi slegið af kröfum Fagna framfaraskrefi ráðherra en vilja afnema tilvísanakerfið Þórdís í sendinefnd til Georgíu vegna umdeildra laga Maðurinn fannst heill á húfi Hundaskítur fyrir utan kosningamiðstöð Baldurs vekur spurningar Skilur uppnám skólasamfélagsins í Laugardal en horfa þurfi á staðreyndir Bréf Eggerts kom flatt upp á bæjarstjórnarmenn Flugvél Icelandair þurfti að snúa við Píratar hafa áhyggjur af skorti á eftirliti með lögreglu Úr 256 pakkningum á mánuði upp í sex þúsund Útlendingalög, tilvísanir og skólabygging í Laugardal Fólk setji símana á akstursstillingu til að koma í veg fyrir slys Hundrað milljarða fjárfesting í uppnámi Beðnir um að senda börnin sín með net vegna flugnafaraldurs „Nú verður þú bara að spyrja Bjarna“ Halla þótti standa sig best Ísland hástökkvari á Regnbogakortinu Stefni í endurtekningu á síðasta vori Nýir fatasöfnunargámar á leið til landsins Forsetaframbjóðendur mæta í kappræður á Stöð 2 og Vísi Sjá meira
Segja öryggismyndavélar sýna fólk ganga inn og út úr salnum Kjarninn hefur greint frá því að á öryggismyndavélum við tvo innganga í sal þar sem óinnsigluð kjörgögn voru geymd í Norðuvesturkjördæmi sjáist fólk ganga inn og út á þeim tíma sem yfirkjörstjórn var heima á milli talningar og endurtalningar. 20. október 2021 10:28
Búinn að kæra kosningarnar til lögreglunnar Karl Gauti Hjaltason hefur sent kæru til lögreglunnar á Vesturlandi vegna framkvæmdar kosningar í Norðvesturkjördæmi. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu hefur lögreglan á Vesturlandi móttekið kæruna. 28. september 2021 10:27
Ekki staðfest að rétt hafi verið staðið að talningu í Norðvesturkjördæmi Landskjörstjórn hefur ekki fengið staðfestingu frá yfirkjörstjórn í Norðvesturkjördæmi um að meðferð og varðveisla kjörgagna á talningastað í kjördæminu hafi verið fullnægjandi. 28. september 2021 18:24
Lítið tal um innsigli í greinargerðinni sem vakti áhyggjur landskjörstjórnar Morguninn eftir að lokatölur voru gefnar út í Norðvesturkjördæmi kom í ljós að átta atkvæði sem tilheyrðu lista Sjálfstæðisflokksins og eitt sem tilheyrði Framsókn hafi verið í atkvæðabunka Viðreisnar. 29. september 2021 20:07