„Ég verð ekkert rosalega stressuð“ Sindri Sverrisson skrifar 3. júní 2023 09:01 Sveindís Jane Jónsdóttir fer einbeitt inn í úrslitaleikinn gegn Barcelona í dag. Getty/Boris Streubel Það er hægt að nota ýmis lýsingarorð um Sveindísi Jane Jónsdóttur og eitt af því er hvað hún er svöl. Það er engin tilviljun að Wolfsburg nýtir hana til að kynna nýju treyjurnar sínar, og að hún hefur blómstrað í stórleikjum gegn Bayern München og Arsenal í vor. Og nú er komið að því að halda kúlinu í stærsta leik ársins.
Sveindís, sem fagnar 22 ára afmæli á mánudaginn, spilar í dag úrslitaleik gegn Barcelona í Meistaradeild Evrópu, fyrir framan troðfullan leikvang í Eindhoven í Hollandi. Leikurinn, sem hefst klukkan 14, verður í beinni og opinni útsendingu DAZN um allan heim, meðal annars á Vísi. Þó að óumdeilanlega sé um að ræða stærsta leik sem Sveindís hefur spilað, og tækifæri fyrir hana til að verða þriðji Íslendingurinn til að vinna Meistaradeild Evrópu í fótbolta (á eftir Söru Björk Gunnarsdóttur og Eiði Smára Guðjohnsen), er ekki á Keflvíkingnum að heyra að hún sé annað en svöl: „Ég verð ekkert rosalega stressuð fyrir leiki en það er alltaf smá fiðringur í maganum. Ég er meira spennt heldur en stressuð. Ef ég fæ að byrja þennan leik þá verður bara klikkað að labba inn á völlinn, Champions League lagið í gangi, troðfullur völlur. Þetta er náttúrulega bara draumur allra og ég get ekki beðið,“ segir Sveindís í viðtali við Vísi. Klippa: Sveindís um stóru stundina „Þær fá alla pressuna á sig“ Wolfsburg steinlá gegn Barcelona fyrir ári síðan, þegar liðin mættust í tveggja leikja undanúrslitaeinvígi, en fyrri leikurinn fór 5-1 fyrir framan yfir 90.000 manns á Camp Nou. Börsungar spila nú til úrslita í keppninni þriðja árið í röð, hafa endurheimt bestu knattspyrnukonu heims því Alexia Putellas er komin af stað eftir meiðsli, og Sveindís viðurkennir að spænska liðið sé sigurstranglegra. „Í fyrra töpuðu þær úrslitaleiknum svo þær koma örugglega betur gíraðar núna, og vilja væntanlega ekki tapa tveimur úrslitaleikjum í röð. Það er þá líka meiri pressa á þeim. Þær fá alla pressuna á sig. Við erum „underdogs“. Ég held að það hjálpi okkur líka. Putellas er komin til baka og hefur verið að koma inn á í spænsku deildinni. Hún gæti mögulega byrjað inn á en ég held að það sé allt eins gott fyrir okkur að hún geri það. Hún er ekki komin í 100% leikform svo ég held að það breyti ekki miklu fyrir okkur hvort hún byrji leikinn eða komi inn á. Við hugsum fyrst og fremst um okkur sjálfar, og ef við spilum okkar leik er allt opið. Við gerðum það ekki í fyrri leiknum á móti þeim í fyrra. Ef við spilum betur en þá, þá eigum við alveg séns,“ segir Sveindís sem verður dyggilega studd af fjölskyldu og vinum í Eindhoven í dag. „Þetta er mjög stórt fyrir margar af okkur“ Wolfsburg hefur lengi verið í fremstu röð í Evrópu en tapað síðustu þremur úrslitaleikjum sínum í Meistaradeildinni, árin 2016, 2018 og 2020. Hungrið er því mikið í þýska félaginu. „Það eru ekki margar í hópnum sem hafa unnið Meistaradeildina, þó að einhverjar hafi gert það. Þetta er mjög stórt fyrir margar af okkur, að taka þátt í svona risaleik, þó við séum með mjög mikla reynslu. Það er mjög mikið hungur í okkur, við erum allar með augun á verðlaununum, vitum hvað við ætlum að gera og komum ótrúlega stemmdar í leikinn. Við viljum gera það sem við gerðum í seinni leiknum á móti þeim í fyrra þegar við sýndum að við getum alveg unnið Barcelona,“ segir Sveindís. Sveindís Jane Jónsdóttir smellir kossi á bikarinn eftir að hafa orðið bikarmeistari í Þýskalandi með Wolfsburg á dögunum.Getty/Alex Grimm Hún hefur þegar orðið þýskur bikarmeistari á þessari leiktíð, en þurfti rétt að horfa á eftir þýska meistaratitlinum til Íslendingaliðsins Bayern München. Voru það vonbrigði? „Já og nei. Við bætum það vonandi upp með því að vinna Meistaradeildartitil, sem er aðeins stærri titill. Við tókum bikarmeistaratitilinn en auðvitað viljum við vinna deildina líka. En við stóðum okkur bara ekki nógu vel í deildinni og áttum það ekki skilið eftir allt saman. Mér finnst við ekki vera með verra lið en Bayern, sem við sáum vinna Barcelona í Meistaradeildinni, svo við vitum að þetta er alveg jafnt. Við erum ekkert langt á eftir Barcelona þó við séum „underdogs“ í þessum úrslitaleik.“ Úrslitaleikur Wolfsburg og Barcelona hefst klukkan 14 í dag að íslenskum tíma og hægt verður að horfa á beina útsendingu DAZN á Vísi.
Meistaradeild Evrópu í fótbolta kvenna Mest lesið Stuðningurinn ómetanlegur: „Farið í dýpstu leyndarmálin“ Sport Gummi Ben og félagar tímamældu leiktafir KR-ingsins Íslenski boltinn Bleyjur og klósettpappír áhorfenda kostuðu ÍBV Handbolti Í beinni: Ísland - Eistland | Strákarnir okkar þurfa góð úrslit ætli þeir á HM Handbolti Rekinn þrátt fyrir að vera tilnefndur sem þjálfari ársins Enski boltinn Í beinni: Grindavík - Keflavík | Allt jafnt og mikilvægi leiksins mikið Körfubolti Í beinni: Real Madrid - Bayern München | Úrslitaleikur í boði Fótbolti Farangurinn flæktist fyrir Gísla: „Kom beint af flugvellinum“ Handbolti Enrique hneykslaður: „Er þér alvara?“ Fótbolti Ísland eignast nýtt EHF dómarapar Handbolti Fleiri fréttir Fiorentina aftur í úrslit Sambandsdeildarinnar Í beinni: Real Madrid - Bayern München | Úrslitaleikur í boði Gamli FH-ingurinn kom Fredrikstad áfram í bikarnum Í beinni: Breiðablik - Stjarnan | Hafa unnið fyrstu þrjá leikina sína 3-0 Í beinni: Keflavík - Valur | Botnliðið tekur á móti meisturunum Í beinni: FH - Þróttur | Tapliðið mun sitja í fallsæti Dæmdur fyrir aðstoð við morð en valinn í landslið Síle Enrique hneykslaður: „Er þér alvara?“ „Spáin hjálpar okkur frekar en eitthvað annað“ Stolni gullhnöttur Maradona boðinn upp „Mbappé kann ekki að vera hetja“ Gummi Ben og félagar tímamældu leiktafir KR-ingsins Sjáðu Hummels gera það sem Mbappé og félögum tókst ekki Stórveldi með gjörólíka hugmyndafræði berjast um sæti í úrslitum Rekinn þrátt fyrir að vera tilnefndur sem þjálfari ársins „Höfum vaxið með hverjum leik“ Dortmund í úrslit eftir sigur í París Telja að Man United hafi saknað leiðtogahæfileika Martínez Þurfa leyfi til að taka þátt í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð Arnar í tveggja leikja bann Aðeins einn uppalinn Valsmaður í Bestu deild karla „Maður hefur verið milli tannanna á fólki síðan maður var ungur“ „Tveir Víkingar? Ég er bara hissa“ Adam hundfúll og Arnar beint í símann Vatnstjónið vísar Stólum til Akureyrar Forest í bullandi fallhættu vegna bulls í fjármálum Napoli í kapphlaupið um Albert Segir að Viðar hafi ekki mætt á æfingu á leikdegi Segir að Casemiro hafi verið aðhlátursefni gegn Palace Sjáðu aukaspyrnumark Gylfa, umdeildan rangstöðudóm og rauðu spjöldin Sjá meira