Fótbolti

Segir þá sem eru á móti HM á tveggja ára fresti vera hrædda við breytingar

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Gianni Infantino, forseti Alþjóðaknattspyrnusambandsins, segir að þeir sem vilja ekki halda HM á tveggja ára fresti séu hræddir við breytingar.
Gianni Infantino, forseti Alþjóðaknattspyrnusambandsins, segir að þeir sem vilja ekki halda HM á tveggja ára fresti séu hræddir við breytingar. EPA-EFE/CHRISTIAN BRUNA

Gianni Infantino, forseti Alþjóðaknattspyrnusambandsins FIFA, segir þá sem eru á móti því að Heimsmeistaramótið í fótbolta verði haldið á tveggja ára fresti í stað fjögurra, vera hrædda við breytingar.

Knatsspyrnusamband Evrópu, UEFA, sem og knattspyrnusamband Suður-Ameríku, CONMEBOL, eru meðal þeirra sem hafa sett sig á mót breytingum á fyrirkomulagi HM, ásamt því að enska úrvalsdeildin deilir sömu skoðunum. Hins vegar hafa lönd í Afríku stigið fram og sýnt hugmyndinni stuðning.

Afríska knattspyrnusambandið, CAF, varð í dag fyrsta stóra knattspyrnusambandið til að sýna hugmyndinni opinberlega stuðning, en þeir segja að ef ákvörðun yrði tekin um að halda HM á tveggja ára fresti myndi sambandið styðja ákvörðunina heilshugar.

Gianni Infantino segir að það sé eðlilegt að stærstu samböndin séu á móti hugmyndinni þar sem að það gæti ógnað stöðu þeirra á toppnum.

„Þetta gerist alls staðar þegar breytingar eiga sér stað. Þeir sem eru á toppnum vilja ekki breyta neinu af því að þeir eru á toppnum.“

„Kannski eru þeir hræddir um að ef eitthvað breytist sé staða þeirra á toppnum í hættu.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×