Braut viljandi á Azpilicueta og myndi gera það aftur Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 22. nóvember 2021 23:30 Zlatan sér ekki eftir neinu. Jorge Guerrero/AFP/Getty Images Það er sjaldan lognmolla í kringum hinn fertuga Zlatan Ibrahimović. Hann er leikmaður AC Milan á Ítalíu og sneri til baka í sænska landsliðið á dögunum. Þar komst hann í heimsfréttirnar fyrir að keyra harkalega inn í César Azpilicueta, leikmann Chelsea og Spánar.
Zlatan var í ítarlegu viðtali á The Guardian þar sem hann fór yfir víðan völl. Hann ræddi einnig atvikið sem átti sér stað í leik Svíþjóðar og Spánar í undankeppni HM. Framherjinn segist hafa gert heimskan hlut en að hann myndi 100 prósent gera það aftur ef þess þyrfti. Zlatan var að ræða samfélagsmiðla og þörf fólks í að vera fullkomið út á við. Hann segir að fólk þykist vera fullkomið en í raun sé enginn fullkominn, nema hann sjálfur. Zlatan Ibrahimovic: I did a stupid thing. But I will do it again, 100% https://t.co/jyPBPY8fZb— The Guardian (@guardian) November 22, 2021 „Ég segi að ég sé fullkominn þegar ég er ég sjálfur. Það þýðir auðvitað ekki að ég geri ekki mistök, en ég læri af þeim. Um daginn með landsliðinu tæklaði ég leikmann (Azpilicueta). Ég gerði það viljandi. Ég skammast mín ekki fyrir það því hann gerði heimskulegan hlut við leikmann í mínu liði.“ „Hann þóttist vera stór kall og ögraði samherja mínum Það var heimskulegt og ég vildi útskýra fyrir honum að svona gerum við ekki. Hann hefur ekki kjark í að haga sér svona við mig en ég ákvað að sýna honum hvað myndi gerast ef hann myndi reyna.“ Zlatan got a yellow card for this shoulder charge on Azpilicueta pic.twitter.com/64ipgvvm4X— ESPN FC (@ESPNFC) November 15, 2021 „Hvað ætti hann að segja? Hann hefur eflaust sagt eitthvað við samherja minn sem er of vingjarnlegur til að svara honum fullum hálsi,“ sagði Zlatan aðspurður hvort Azpilicueta hefði gert eða sagt eitthvað eftir leikinn sem Spánn vann með einu marki gegn engu. „Þetta var ekki fallega gert af mér en ég myndi samt gera það aftur. Þannig er ég bara, ég skammast mín ekki fyrir að segja það,“ sagði Zlatan að endingu um atvikið milli sín og spænska varnarmannsins. Zlatan fékk gult spjald fyrir brotið og verður í leikbanni er Svíþjóð tekur þátt í umspilinu fyrir HM 2022 í mars á næsta ári. Hann segir það litlu máli skipta, það sem skiptir máli er að vera trúr sjálfum sér og standa með eigin sannfæringu. Að því sögðu væri Zlatan eflaust til að geta hjálpað sænska landsliðinu á HM í Katar veturinn 2022. Svíþjóð getur mætt Tyrklandi, Póllandi, Norður-Makedóníu, Úkraínu, Austurríki eða Tékklandi í fyrstu umferð umspilsins.
Fótbolti HM 2022 í Katar Ítalski boltinn Tengdar fréttir Talið að Zlatan sleppi úr búrinu og met Tottis gæti fallið Meistaradeild Evrópu í fótbolta heldur áfram í þessari viku og Zlatan Ibrahimovic fær þá tækifæri til að skrá sig í sögubækurnar sem elsti markaskorari keppninnar frá upphafi. 22. nóvember 2021 16:01 Tvenna Zlatan dugði skammt þegar AC Milan tapaði í fyrsta sinn AC Milan er ekki lengur taplaust í ítölsku úrvalsdeildinni eftir að hafa heimsótt Flórens í kvöld. 20. nóvember 2021 21:54 AC Milan ætlar að bjóða fertugum Zlatan nýjan samning Þrátt fyrir að sænski framherjinn Zlatan Ibrahimovic sé orðinn fertugur, er hann hvergi nærri hættur knattspyrnuiðkun. Ítalska stórveldið AC Milan ætlar sér að framlengja samning sínum við svíann. 2. nóvember 2021 17:49 Fertugur Zlatan snýr aftur í landsliðið Hinn fertugi Zlatan Ibrahimovic var valinn í sænska landsliðið fyrir síðustu leiki þess í undankeppni HM 2022. 2. nóvember 2021 15:02 Mest lesið Harma auglýsingar á gólfi og vilja banna þær eftir meiðsli Martins Körfubolti „Þið eruð lið fullt af feitabollum“ Enski boltinn Í beinni: Valur - Afturelding | Valsmenn mættir eftir Evrópuævintýrið Handbolti Sjáðu dramatísku vítakastskeppnina í Eyjum Handbolti Drakk átta bjóra fyrir beina útsendingu Fótbolti Möguleikar Tottenham á Meistaradeildarsæti að fjara út Enski boltinn Sló í myndavél og gæti fengið bann Körfubolti Aron í myndatöku í dag vegna meiðslanna Handbolti Vatnaskil hjá Red Bull og risafréttir fyrir Formúlu 1 Formúla 1 Segir aðeins þau hlutlausu hafa skemmt sér yfir fótbolta Ten Hag Enski boltinn Fleiri fréttir Leik lokið: Þór/KA - Þróttur | Sandra María algjörlega óstöðvandi Uppgjör: Valur - Víkingur 7-2 | Sýning hjá Amöndu og Nadía skoraði í stórsigri Valskvenna Í beinni: Fylkir - Keflavík | Nýliðarnir enn ósigraðir Í beinni: Chelsea - Tottenham | Tíminn að renna út fyrir Spurs Sjáðu mark Füllkrugs sem kom Dortmund í bílstjórasætið „Þið eruð lið fullt af feitabollum“ Besta upphitunin: „Finn ekki fyrir pressunni“ Tekur fyrir að starfsfólk Manchester United vinni að heiman Skúrkurinn endaði sem hetjan Drakk átta bjóra fyrir beina útsendingu Dortmund tók aukasætið sem ensku liðin dreymdi um Rangnick hafnar Bayern München Segir aðeins þau hlutlausu hafa skemmt sér yfir fótbolta Ten Hag FH fékk tvær sektir frá KSÍ Dortmund leiðir þökk sé þrumuskoti Füllkrug Logi kom inn af bekknum og skoraði í stórsigri Mark dæmt af Bjarka og dramatík hjá Alexöndru Sjáðu mörkin úr stórleiknum í München Júlíus og félagar unnu frækinn bikarsigur á Rosenborg Kenndi gráðugum Kim um bæði mörkin gegn Real Madrid Lewandowski gæti verið seldur á brunaútsölu Barcelona Bellingham reyndi að taka Kane á taugum fyrir vítið Heillaóskum rigndi yfir fimmtán ára hetju Fram í skólanum „Vestri hefur verið að taka leikhlé“ Courtois ekki með Belgíu á EM Einvígið galopið eftir jafntefli í Þýskalandi „Þú veist alveg svarið við þessu“ Sextán ára og skoraði hjá Arsenal eins og Rooney forðum Víkingar bjóða Grindvíkingum í Víkina á morgun „Real Madrid lofaði mér að ég yrði arftaki Modric“ Sjá meira
Talið að Zlatan sleppi úr búrinu og met Tottis gæti fallið Meistaradeild Evrópu í fótbolta heldur áfram í þessari viku og Zlatan Ibrahimovic fær þá tækifæri til að skrá sig í sögubækurnar sem elsti markaskorari keppninnar frá upphafi. 22. nóvember 2021 16:01
Tvenna Zlatan dugði skammt þegar AC Milan tapaði í fyrsta sinn AC Milan er ekki lengur taplaust í ítölsku úrvalsdeildinni eftir að hafa heimsótt Flórens í kvöld. 20. nóvember 2021 21:54
AC Milan ætlar að bjóða fertugum Zlatan nýjan samning Þrátt fyrir að sænski framherjinn Zlatan Ibrahimovic sé orðinn fertugur, er hann hvergi nærri hættur knattspyrnuiðkun. Ítalska stórveldið AC Milan ætlar sér að framlengja samning sínum við svíann. 2. nóvember 2021 17:49
Fertugur Zlatan snýr aftur í landsliðið Hinn fertugi Zlatan Ibrahimovic var valinn í sænska landsliðið fyrir síðustu leiki þess í undankeppni HM 2022. 2. nóvember 2021 15:02