Dortmund flaug í úrslitin

Leikmenn Borussia Dortmund fagna einu af fimm mörkum sínum í …
Leikmenn Borussia Dortmund fagna einu af fimm mörkum sínum í kvöld. AFP

Borussia Dortmund lenti ekki í miklum vandræðum með B-deildarlið Holstein Kiel þegar liðin mættust í undanúrslitum þýsku bikarkeppninnar í kvöld. Fimm mörk Dortmund í fyrri hálfleik gerðu skjótt og örugglega út um leikinn.

Bandaríski vængmaðurinn Giovanni Reyna skoraði fyrstu tvö mörk leiksins, á 16. og 23. mínútu, og Marco Reus skoraði það þriðja á 26. mínútu.

Thorgan Hazard vildi vera með í teitinu og skoraði á 32. mínútu og 10 mínútum síðar rak Jude Bellingham smiðshöggið með fimmta markinu.

Þar með var staðan 5:0 í hálfleik, sem reyndust sömuleiðis lokatölur.

Dortmund mætir því RB Leipzig í úrslitum þýsku bikarkeppninnar þann 13. maí næstkomandi.

Erling Braut Haaland var ekki í leikmannahópi Dortmund í kvöld.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert