Kosningabarnið svo tillitsamt að mæta á mánudeginum Snorri Másson skrifar 21. maí 2022 20:32 Stefán Þór Eysteinsson oddviti hins félagshyggjusinnaða Fjarðalista í Fjarðabyggð kljáðist við heldur umfangsmikið hliðarverkefni í aðdraganda nýliðinna sveitarstjórnarkosninga; sambýliskona hans Freyja Viðarsdóttir var komin að barnsburði og von var á tíðindum á hverri stundu. Aðsend mynd Á meðan lítið þokast í meirihlutaviðræðum í Reykjavík, er kominn gangur í viðræður í Fjarðabyggð. Það væri kannski ekki í frásögur færandi nema af því að þar fæddist oddvita félagshyggjuframboðsins barn í miðjum viðræðum - sem var þó svo tillitsamt að koma ekki á kosninganótt.
Fjarðabyggð er 10. fjölmennasta sveitarfélag landsins - felur í sér Neskaupstað, Eskifjörð og Reyðarfjörð. Að ekki sé minnst á Breiðdalsvík, Stöðvarfjörð, Fáskrúðsfjörð og Mjóafjörð. Stefán Þór Eysteinsson oddviti hins félagshyggjusinnaða Fjarðalista í Fjarðabyggð kljáðist við heldur umfangsmikið hliðarverkefni í aðdraganda nýliðinna sveitarstjórnarkosninga; sambýliskona hans Freyja Viðarsdóttir var komin að barnsburði og von var á tíðindum á hverri stundu. „Kosninganóttina sjálfa var Freyja bara með samdrætti. Ég átti alveg eins von á að hún kæmi þá á kosningavökunni, eiginlega. En hún ákvað að bíða með þetta þar til á mánudaginn,“ segir Stefán í samtali við fréttastofu og Freyja bætir við: „Mjög tillitssöm stelpa greinilega.“ Fréttastofa ræddi stuttlega við foreldrana og barnið í kvöldfréttum Stöðvar 2, sem má sjá hér að ofan. Íhugaði að fela símann Meirihluti Fjarðalistans með Framsóknarflokknum hélt þótt Sjálfstæðisflokkur sé stærsti flokkurinn og í hönd fóru meirihlutaviðræður Framsóknar og Fjarðalistans í þessu fimm þúsund manna sveitarfélagi. „Það er búið að vera smá púsluspil að ná þessum fundum saman en það eru allir búnir að vera mjög tillitsamir við okkur í þessu. Og svo er Freyja búin að vera ævintýralega skilningsrík í þessu. En það hafa já allir sýnt þessu mikinn skilning,“ segir Stefán. Að mestu leyti mikinn skilning, það er að segja: „Ég var alveg tvisvar búin að íhuga að fela símann, það var alveg kominn sá tímapunktur,“ segir Freyja. Allir flokkar stefna í sömu átt í Fjarðabyggð Foreldrunum hafa borist hamingjuóskir þvert á flokka, ekki að undra, á minni svæðum sem þessum eru allir aðeins meiri vinir en á stærri svæðum, segir Stefán. sem má vera að sé í ætt við að öllu meiri sátt virðist ríkja um stjórnmálin á minni svæðum, eins og Stefán lýsir. „Við erum öll að stefna í sömu átt og átökin eru ekki mikil, enda er það í raun óþarfi,“ segir Stefán. En aftur að því sem máli skiptir. Er komið nafn? „Ekki enn þá. Við erum að máta nokkur nöfn,“ segir Stefán. Freyja: „Ég held að það sé meiri ósætti þar en í kosningunum." Á höfuðborgarsvæðinu eru málin í meiri hnút en í Fjarðabyggð – þar hefur lítið hreyfst í viðræðum, en þreifingar halda að sjálfsögðu áfram. Í Mosfellsbæ var í dag sagt frá því að Vinir Mosfellsbæjar eru úr leik í meirihlutaviðræðunum, Framsókn, Viðreisn og Samfylking halda áfram að tala saman.
Sveitarstjórnarkosningar 2022 Fjarðabyggð Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Áfall þegar samskipti Katrínar og Kára voru birt Innlent Óljóst hvort þyrlan sé fundin Erlent Þekkir dæmi um endalaus uppköst og garnalömun vegna lyfjanna Innlent „Fólk er bara að bíða“ Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Konurnar hafi gert allt til að setja ekki svartan blett á starfsemina Innlent Bæjarstjóri sakaður um að vera njósnari: „Enginn veit hver hún er“ Erlent Íranski forsetinn í óljósu þyrluslysi Erlent Segir Helgu fara með rangt mál Innlent Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra Innlent Fleiri fréttir Glæsilegt fuglasafn í veiðihúsinu við Hítará Varasamt að ferðast á sumardekkjum í kvöld Óttast um afdrif Íransforseta og ferðaveðrið í beinni Stuðningur Katrínar við sóttvarnarlækni sjálfsagður „Fólk er bara að bíða“ Tveir prestar og tveir djáknar vígðir í Skálholti Lægð yfir landinu og snjókoma fyrir norðan Áfall þegar samskipti Katrínar og Kára voru birt Aukin skjálftavirkni og erjur um Erfðagreiningu Örlítil aukning í skjálftavirkni undir Svartsengi Forsetakosningar, mansal og samningar Reykjavíkur við olíufélögin Segir Helgu fara með rangt mál Þekkir dæmi um endalaus uppköst og garnalömun vegna lyfjanna Konurnar hafi gert allt til að setja ekki svartan blett á starfsemina Með vopn og fíkniefni í útistöðum við dyravörð Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra 40 tungumál eru töluð í leik- og grunnskólum Árborgar Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Þungar áhyggjur af þyngdarstjórnunarlyfjum Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Nauðsynlegt að fresta atkvæðagreiðslu um umdeilda verksmiðju Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Átök í Ölfusi og offitulyf Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Sjá meira