Flóttamannastofnun SÞ gerir athugasemdir við útlendingafrumvarpið Hólmfríður Gísladóttir skrifar 10. maí 2024 07:09 Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra og Bjarni Benediktsson forsætisráðherra hafa lagt áherslu á nauðsyn þess að herða útlendingalöggjöfina. Vísir/Vilhelm Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna gerir nokkrar athugasemdir við frumvarp dómsmálaráðherra um breytingar á lögum um alþjóðlega vernd, í umsögn sem hefur verið birt á vef Alþingis.
Stjórnvöld hafa margítrekað að markmiðið með breytingunum sé meðal annars að færa lögin til samræmis við útlendingalöggjöfina á hinum Norðurlöndunum en í umsögn sinni bendir UNHCR á að þar sé í sumum tilfellum pottur brotinn. UNHCR fjallar meðal annars um fyrirhugaðar breytingar á ákvæðum um fjölskyldusameiningar, sem stofnunin segir nauðsynlegar til að tryggja rétt fólks til fjölskyldulífs. Langvarandi aðskilnaður geti haft afar skaðleg áhrif bæði á hælisleitandann og fjölskyldu hans. Fjölskyldusameiningar séu þannig afar mikilvægur þáttur í því að stuðla að geðheilbrigði hælisleitenda og að rannsóknir hafi sýnt fram á bein tengsl milli fjölskyldusameininga, góðrar geðheilsu og getu viðkomandi til að aðlagast nýju samfélagi. UNHCR bendir á að Ísland sé aðili að ExCom, sem hafi lagt áherslu á að ríkjum beri að gera allt til að sameina fjölskyldur og og að fjölskyldusameiningar skuli eiga sér stað eins fljótt og auðið er. Stofnunin gerir þannig athugasemdir við breytingar sem fela í sér að fjölskyldusameining geti ekki átt sér stað fyrr en einstaklingur sem fengið hefur viðbótarvernd hér á landi hefur dvalið hér í tvö ár og fengið dvalarleyfi sitt endurnýjað. UNHCR segir Ísland horfa til Danmerkur hvað þetta varðar en þar hafi sambærilegri „þriggja ára reglu“ verið vísað til Mannréttindadómstóls Evrópu, sem komst að þeirri niðurstöðu að reglan kæmi í veg fyrir að einstaklingsbundið mat væri gert á hagsmunum fjölskyldunnar. Þrjú ár væru langur aðskilnaðartími og ekki síst þegar horft væri til þess að fjölskyldumeðlimir sætu eftir og byggju við bágar aðstæður. UNHCR beinir því einnig til stjórnvalda að gera ekki greinarmun á þeim sem fá stöðu flóttamanns og þeim sem fá viðbótarvernd, þar sem um sé að ræða hópa sem hafi almennt sömu þarfir og mæti sömu áskorunum. Þá segir í umsögninni að UNCHR hafi lengi talað fyrir því að flóttamenn og einstaklingar sem hlotið hafa dvalarleyfi á grundvelli viðbótarverndar eigi það ekki yfir höfði sér að þurfa ítrekað að sækja um endurnýjun dvalarleyfisins, þar sem það komi niður á andlegri heilsu þeirra. Enn fremur skapi það þrýsting og álag á kerfið. Umsögn UNHCR.
Sameinuðu þjóðirnar Flóttamenn Hælisleitendur Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Mikill viðbúnaður vegna bráðra veikinda Innlent Ráðherrar hafi verið ítrekað varaðir við gjöf Haraldar Innlent Sat saklaus í unglingafangelsi í tvö ár Innlent Íransforseti fórst í þyrluslysinu Erlent „Ég stóð bara með sóttvarnalækni“ Innlent Saksóknari Alþjóðlega sakamáladómstólsins vill handtaka Netanjahú og Hamas-liða Erlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Erfitt að ímynda sér meiri harðlínumann en Raisi Innlent Fimm stríðsþristar á leiðinni til landsins Innlent Handtökuskipun á hendur forsætisráðherra og kjaradeila Innlent Fleiri fréttir Þolinmæði saminganefnda á þrotum Gæsluvarðhald yfir Davíð Viðarssyni framlengt 80 til 120 herskip lágu í Hvalfirði Fyrsti stríðsþristurinn lentur Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna sé vanhæft til að takast á við aðstæðurnar Handtökuskipun á hendur forsætisráðherra og kjaradeila Séra Eva Björk ráðin biskupsritari Fimm stríðsþristar á leiðinni til landsins Samningur BÍ í höfn í Karphúsinu Ráðherrar hafi verið ítrekað varaðir við gjöf Haraldar Sungið og sungið á Sauðárkróki „Ég stóð bara með sóttvarnalækni“ Mikill viðbúnaður vegna bráðra veikinda Ósk um handtökuheimild og deilur um Erfðagreiningu Erfitt að ímynda sér meiri harðlínumann en Raisi Sat saklaus í unglingafangelsi í tvö ár Frambjóðendur geti nýtt sér skoðanakannanir Glæsilegt fuglasafn í veiðihúsinu við Hítará Varasamt að ferðast á sumardekkjum í kvöld Óttast um afdrif Íransforseta og ferðaveðrið í beinni Stuðningur Katrínar við sóttvarnarlækni sjálfsagður „Fólk er bara að bíða“ Tveir prestar og tveir djáknar vígðir í Skálholti Lægð yfir landinu og snjókoma fyrir norðan Áfall þegar samskipti Katrínar og Kára voru birt Aukin skjálftavirkni og erjur um Erfðagreiningu Örlítil aukning í skjálftavirkni undir Svartsengi Forsetakosningar, mansal og samningar Reykjavíkur við olíufélögin Segir Helgu fara með rangt mál Þekkir dæmi um endalaus uppköst og garnalömun vegna lyfjanna Sjá meira
Saksóknari Alþjóðlega sakamáladómstólsins vill handtaka Netanjahú og Hamas-liða Erlent
Saksóknari Alþjóðlega sakamáladómstólsins vill handtaka Netanjahú og Hamas-liða Erlent