Gaupi fékk morðhótanir á miðju heimsmeistaramóti Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. júní 2023 09:01 Íþróttafréttamaðurinn Guðjón Guðmundsson las í gær íþróttafréttir í síðasta skipti á Stöð 2. Vísir/Hulda Margrét Guðjón Guðmundsson kláraði sína síðustu sjónvarpsvakt á Stöð 2 í gærkvöldi og eftir íþróttafréttirnar var Ísland í dag helgað honum og meira en þremur áratugum hans sem íþróttafréttamaður.
Kolbeinn Tumi Daðason ræddi við Guðjón og fékk hann til að segja frá ferli sínum sem íþróttafréttamaður. Það voru líka sýnd skemmtileg augnablik frá tíma hans í sjónvarpinu. Guðjón sagði frá fyrstu skrefum sínum í starfinu en hann byrjaði fyrst að lýsa handboltaleikjum 1991 en fékk síðan tækifærið að koma inn í sjónvarpsfréttirnar árið 1992. Guðjón hefur tekið þátt að skapa margar nýjungar í íþróttafréttum í sjónvarpi og þar á meðal má nefna þegar Stöð 2 byrjaði með reglulegar íþróttafréttir í sjónvarpi, þegar hann var að fjalla um íþróttir í morgunsjónvarpinu og þegar hann lýsti leikjum eins og Frakkland-Ísland á Stade de France árið 1999. Það má alls ekki gleyma Sumarmótunum sem hann hefur skilað á sinn einstaka hátt og búið til ógleymanlegt myndefni af framtíðaratvinnumönnum sögunnar. Guðjón rifjaði líka upp það þegar hann fjallaði ítarlega um heimsmeistaramótið á Íslandi árið 1995. Þar sagði hann frá sögu sem ekki margir þekkja. „Árið 1995 var heimsmeistaramótið í handbolta haldið á Íslandi. Ég og Stefán Jón Hafstein vorum fengnir til þess að vera með tuttugu mínútna þátt á hverjum einasta degi í tvær vikur. Við fórum nýjar leiðir, greindum íslenska liðið í tætlur, vorum með viðtöl og vorum svolítið krefjandi,“ sagði Guðjón Guðmundsson. „Við vorum svolítið grimmir, ég skal viðurkenna það. Þetta slær í gegn og virkaði. Umfjöllunin varð meiri. Þetta gekk nú svo langt á sínum tíma að við fengum morðhótanir á meðan heimsmeistaramótinu stóð,“ sagði Guðjón. „Fólki fannst við ganga nærri íslenska landsliðinu sérstaklega og hvað þeir væru að gera. Í framhaldinu held ég að megi segja að þá fóru allir þættir í þessa sömu átt og við höfðum verið að gera,“ sagði Guðjón og hrósaði snillingunum Stefáni Jón Hafstein og Þorsteini Joð Vilhjálmsson sem vann með honum þegar HM í handbolta 2011 var á Stöð 2 Sport. Hér fyrir neðan má sjá allt Ísland í dag þegar Gaupi kvaddi í beinni í gær.
HM 2023 í handbolta Mest lesið Stuðningurinn ómetanlegur: „Farið í dýpstu leyndarmálin“ Sport Uppgjörið: Ísland - Eistland 50-25 | Stigu bensínið í botn frá fyrstu mínútu Handbolti Uppgjörið: Grindavík - Keflavík 96-71 | Gulklæddir flengdu Keflvíkinga Körfubolti Joselu hetjan þegar Real Madrid fór í úrslit í enn eitt skiptið Fótbolti Gummi Ben og félagar tímamældu leiktafir KR-ingsins Íslenski boltinn Bleyjur og klósettpappír áhorfenda kostuðu ÍBV Handbolti Rekinn þrátt fyrir að vera tilnefndur sem þjálfari ársins Enski boltinn Enrique hneykslaður: „Er þér alvara?“ Fótbolti Farangurinn flæktist fyrir Gísla: „Kom beint af flugvellinum“ Handbolti Uppgjörið: Breiðablik - Stjarnan 5-1| Blikar kláruðu dæmið í fyrri hálfleik Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Ánægður að við sýndum þá hlið að við getum verið góðir í 60 mínútur“ Þakklátur eftir fyrsta landsleikinn: „Tek bara einn dag fyrir í einu“ „Ekkert sjálfgefið að valta yfir lið“ Uppgjörið: Ísland - Eistland 50-25 | Stigu bensínið í botn frá fyrstu mínútu Skyldusigur í kvöld: „Þurfum að koma okkur inn á HM“ Einar Bragi verður einn af strákunum okkar í kvöld „Það er stórmót í húfi“ Stjörnumarkvörðurinn í vandræðum með augað á sér Ísland eignast nýtt EHF dómarapar Bleyjur og klósettpappír áhorfenda kostuðu ÍBV Enn hægt að fá miða á HM-leikinn í kvöld Farangurinn flæktist fyrir Gísla: „Kom beint af flugvellinum“ Undanúrslit í Meistaradeildinni klár „Bara að fara heim og hitta mömmu“ Fjórir frá vegna meiðsla: „Dagurinn ekkert frábær á skrifstofunni“ „Höfum spilað vel án Arons áður“ „Veit ekki hvað Elmar þarf að gera til að komast í landsliðið“ Kostar 600 þúsund að keppa með U18: „Þetta eru þakkirnar fyrir að spila fyrir landsliðið“ Uppgjör og viðtöl: FH - ÍBV 34-27 | Aronslausir FH-ingar tryggðu sér sæti í úrslitum Guðmundur og Íslendingalið Ribe-Esbjerg í undanúrslit Afturelding einum sigri frá úrslitum Magdeburg á toppinn eftir stórleik Íslendinganna Fyrsta tap lærisveina Guðjóns Vals síðan í byrjun mars Öruggt hjá Teiti Erni og félögum HSÍ lengir bann Einars: „Framganga þjálfarans var mjög ógnandi og ódrengileg“ Grótta upp í Olís eftir sigur með minnsta mun í oddaleik Hætti óvænt: Fannst hann skulda fjölskyldunni smá tíma „Ég sakna hennar á hverjum degi“ Jóhanna Margrét frábær í góðum sigri Skara Viggó fór á kostum í góðum sigri Leipzig Sjá meira