„Hvað gerist? Við fáum bara leikaraskap“ Sindri Sverrisson skrifar 30. nóvember 2021 13:00 Sérfræðingar Seinni bylgjunnar segja rauða spjaldið fara of oft á loft í Olís-deild karla. Stöð 2 Sport „Annað hvort kallar brotið á tveggja mínútna brottvísun eða rautt spjald. Þú getur ekki dæmt það út frá því hvort að leikmaðurinn meiddi sig eða ekki,“ sagði Róbert Gunnarsson í heitum umræðum í Seinni bylgjunni um rauð spjöld í Olís-deild karla í handbolta.
Þeir Róbert, Ásgeir Örn Hallgrímsson og þáttastjórnandinn Stefán Árni Pálsson voru hjartanlega sammála um það að dómarar í Olís-deildinni væru of gjarnir á að lyfta rauða spjaldinu. Þeir gáfu lítið fyrir þau rök að horfa ætti til afleiðinga brota. Í botnslag Víkings og HK í gær fór rauða spjaldið á loft um miðjan fyrri hálfleik þegar Hjörtur Ingi Halldórsson úr HK var rekinn af velli fyrir brot á Styrmi Sigurðarsyni. „Hvernig á hann þá eiginlega að geta spilað vörn?“ „Mér finnst þetta persónulega ekki vera rautt. Samkvæmt nýjustu reglum er þetta kannski rautt þegar verið er að horfa til afleiðinga. Ef við förum á fyrirlestur hjá dómaranefndinni þá geta þeir pottþétt réttlætt þetta, en hvað á varnarmaðurinn að gera?“ spurði Róbert en umræðuna má sjá hér að neðan. Klippa: Seinni bylgjan - Umræða um rauð spjöld Ásgeir tók í sama streng: „Hann er fyrir framan manninn allan tímann, þeir detta báðir og hinn er á fleygiferð. Ég skil ekki hvernig þetta getur verið rautt spjald. Hvernig á hann þá eiginlega að geta spilað vörn?“ spurði Ásgeir sem óttast að leikaraskapur verði meira áberandi ef dæma eigi út frá afleiðingum brota: „Menn eru alltaf að tala um þessar afleiðingar og hvað gerist? Við fáum bara leikaraskap. Við sjáum menn detta, vera eins og stunginn grís, bíða eftir því hvað dómarinn ætlar að gera og dómarinn bíður bara eftir viðbrögðum leikmannsins sem er meiddur. Þá fáum við bara ennþá fleiri rauð spjöld,“ sagði Ásgeir. „Allt of mörg rauð spjöld“ Í þættinum voru rifjuð upp fleiri rauð spjöld, sem Þrándur Gíslason úr Aftureldingu, Rúnar Kárason og Ólafur Gústafsson fengu. „Mér finnst bara komin allt, allt of mörg rauð spjöld,“ sagði Róbert. „Ég er sammála. Við erum búnir að færa línuna allt of neðarlega í þessum rauðu spjöldum. Leikurinn verður ekki eins skemmtilegur fyrir vikið. Í leik Víkings og HK er þetta risaákvörðun. Á 16. mínútu taka þeir einn besta leikmann HK bara út, í rauninni fyrir að lenda í aðstæðum sem eru slysalegar,“ sagði Ásgeir og Róbert bætti við: „Þetta býður upp á það að menn fari að krydda. Svo leikur einhver að hann sé geðveikt meiddur og þá er það rautt af því að hann meiddi sig svo mikið. Þetta er komið út í öfgar.“
Seinni bylgjan Olís-deild karla Mest lesið Var spáð falli en eru á leið í Meistaradeildina Fótbolti „Eins og að spila við landslið Þýskalands nasismans“ Sport Verstappen á ráspól og jafnaði 35 ára gamalt met Formúla 1 Ótrúlegir yfirburðir tryggðu tíunda bikarmeistaratitilinn Fótbolti Lowry hástökkvari dagsins og blandar sér í baráttuna Golf Klökkur Jóhann Berg beygði af í viðtali Enski boltinn Stutt gaman hjá Birki er Brescia missti af sæti í efstu deild Fótbolti Uppgjörið,viðtöl og myndir: Valur - Olympiacos 30-26 | Einum leik frá Evróputitli Handbolti Reykti tvo pakka, át fjögur súkkulaðistykki og drakk tvær kókdósir á fyrsta hringnum Golf Dagskráin í dag: Sófasunnudagur frá morgni til kvölds Sport Fleiri fréttir Uppgjörið,viðtöl og myndir: Valur - Olympiacos 30-26 | Einum leik frá Evróputitli Ómar og Viggó röðuðu inn mörkum í sigrum Bjarki og félagar í úrslit eftir öruggan sigur „Umgjörðin er bara engu lík, gæsahúð að hlaupa inn á völlinn“ „Þurfum bara okkar besta leik í vetur“ Tíunda tapið í röð hjá Íslendingaliði Balingen Grín sem snerist mjög fljótt upp í alvöru Uppgjörið, viðtöl og myndir: Valur - Haukar 28-25 | Valskonur Íslandsmeistarar Íslendingarnir gerðu lítið þegar Skara féll úr leik Jafnt í Íslendingaslag í undanúrslitum Blaðamannafundur fyrir úrslitaleik Vals í Evrópubikarnum Úr húsvarðarstarfi í atvinnumennsku Uppgjörið og viðtöl: Valur - Afturelding 27-29 | Mosfellingar í úrslit Teitur skoraði fimm og Flensburg heldur naumlega í við toppliðin „Okkur dauðlangar í meira“ Íslendingaliðið tryggði sér oddaleik Ólafur Gústafsson aftur heim í FH: „Gleðidagur fyrir okkur FH-inga“ Einar hættir með kvennalið Fram „Við erum alveg róleg“ Uppgjör: Haukar - Valur 22-30 | Meistararnir í 2-0 Algjör niðurlæging sveina Dags sem hafa aldrei tapað stærra Vonar að pabbi sinn komist ekki á ÓL Heimsmeistararnir stöðvaðir á síðustu stundu Uppgjörið: Eistland - Ísland 24-37 | Gengu örugglega frá Eistum og tryggðu farseðil á HM Frost í sókn en sveinar Dags mörðu sigur Segja Ísland hafa skorað fimmtíu án þess að svitna „Annað hvort gera þeir eins og Man. City eða eins og Liverpool“ Grafalvarleg staða: „Við verðum að breyta þessu strax“ Einar Bragi skrifaði undir tveggja ára samning í Svíþjóð Slóvakía skellti Póllandi óvænt í umspili HM Sjá meira