Svíar og Frakkar áfram en Gottfridsson meiddist Smári Jökull Jónsson skrifar 25. janúar 2023 21:24 Glenn Solberg og lærisveinar hans fagna á hliðarlínunni í kvöld. Vísir/EPA Svíþjóð og Frakkland tryggðu sér í kvöld sæti í undanúrslitum á heimsmeistaramótinu í handknattleik með sigrum á Egyptum og Þjóðverjum. Sigur Svía gæti þó orðið þeim dýrkeyptur.
Svíar eru búnir að færa sig yfir til Stokkhólms og tóku á móti Egyptum í Tele 2 Arena. Svíar voru sterkari aðilinn frá upphafi og leiddu 14-9 í hálfleik. Andreas Palicka, sem átti stórleik í sigri Svía á Íslandi, átti frábæran fyrri hálfleik og var maðurinn á bakvið fimm marka forskot þeirra í hálfleik. Í síðari hálfleik héldu Svíarnir forskotinu og unnu að lokum 26-22 sigur. Sigurinn gæti þó orðið dýrkeyptur. Lykilleikmaðurinn Jim Gottfridsson fór af velli meiddur og óttast Svíar að þátttöku hans á mótinu sé lokið. Jim Gottfridsson fór meiddur af velli í kvöld.Vísir/EPA Í frétt Aftonbladet kemur fram að Gottfridsson sé mögulega fingurbrotinn eða að fingurinn hafi farið úr lið. Hann var fluttur á sjúkrahús í myndatöku og bíða Svíar með öndina í hálsinum eftir fréttum. Niklas Ekberg var markahæstur hjá Svíum með sex mörk en Hassan Kaddah og Mohsen Mahmoud skoruðu fimm fyrir Egypta. Í hinum leik kvöldsins mættust Þjóðverjar, undir stjórn Alfreðs Gíslasonar, og margfaldir heimsmeistarar Frakka. Þjóðverjar voru betri aðilinn lengst af og leiddu allt fram í miðjan síðari hálfleik. Dika Mem reynir skot að marki Þjóðverja í leiknum í kvöld.Vísir/EPA Þá tóku Frakkar við sér. Remi Desbonnet var stórkostlegur í markinu og Frakkar náðu góðri forystu. Frakkar keyrðu einfaldlega yfir Þjóðverja síðustu tuttugu mínúturnar og unnu að lokum 35-28 sigur og tryggðu sér sæti í undanúrslitum heimsmeistaramótsins. Ludovic Fabregas og Nedim Remili skoruðu báðir fimm mörk fyrir Frakka en Johannes Golla skoraði sex mörk fyrir Þjóðverja.
HM 2023 í handbolta Mest lesið „Ég sakna hennar á hverjum degi“ Handbolti Bakgarðshlaupið í beinni útsendingu Sport „Hún er með hjartagalla en í góðum höndum núna og vonandi fer allt vel“ Íslenski boltinn „Þetta er ekki boðlegt finnst mér“ Körfubolti DeAndre Kane sleppur við bann og spilar í kvöld Körfubolti Andrea á batavegi: „Gott fyrir alla að sjá hana brosandi“ Íslenski boltinn Arsenal menn kláruðu sitt og nú er pressan á Man. City Enski boltinn „Varhugavert er að ætla starfsmanni Stöðvar 2 að hafa brugðið talsvert“ Körfubolti Í beinni: FH - Vestri | Bæði liðin á sigurbrautinni Íslenski boltinn Hætti óvænt: Fannst hann skulda fjölskyldunni smá tíma Handbolti Fleiri fréttir Hætti óvænt: Fannst hann skulda fjölskyldunni smá tíma „Ég sakna hennar á hverjum degi“ Jóhanna Margrét frábær í góðum sigri Skara Viggó fór á kostum í góðum sigri Leipzig Reiður Einar hellti sér yfir eftirlitsdómarana Hættir eftir að hafa komið Fjölni upp „Við vorum bara ekki á svæðinu“ Metamfetamín fannst í báðum sýnum markmannsins Uppgjörið og viðtöl: Valur - Afturelding 39-25 | Valsmenn jafna einvígið með stórsigri PSG tókst ekki að leika ótrúlega endurkomu Kiel eftir Fjölnir tryggði sér sæti Olís deildinni á næsta tímabili Svekkjandi tap lækkar líkurnar hjá lærisveinum Arnórs Kielce kærir leikinn gegn Magdeburg Aron í myndatöku í dag vegna meiðslanna Sjáðu dramatísku vítakastskeppnina í Eyjum Elín Jóna færir sig á milli félaga á Jótlandi Ómar Ingi skaut Evrópumeisturunum áfram eftir vítakeppni „Féllu dómar í dag sem voru að mér fannst ansi augljósir“ Óheflaði Eyjapeyinn Kári Kristján: „Töpum aldrei í vítakeppnum“ Uppgjörið: ÍBV - FH 39-38 | ÍBV tryggði sér oddaleik eftir vítakastkeppni Bjarki Már og félagar úr leik Haukakonur sópuðu Fram í sumarfrí og mæta Val í úrslitum Róbert fer frá Drammen og vill spila nærri Andreu Löwen í undanúrslit þrátt fyrir fína frammistöðu Orra Freys „Vantaði meiri breidd til þess að veita þeim harðari keppni“ „Náðum að stilla spennustigið betur í hálfleik“ Uppgjörið: Valur - ÍBV 30-22 | Valskonur mættu með sópinn gegn ÍBV Teitur Örn og félagar í undanúrslit þrátt fyrir tap Aldís Ásta frábær þegar Skara komst í undanúrslit Sigvaldi Björn markahæstur þegar Kolstad komst í úrslit Sjá meira