Körfubolti

KR-ingar með átta sigra í Ljónagryfjunni á síðustu tíu tímabilum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Björn Kristjánsson og Logi Gunarsson í leik KR og Njarðvíkur.
Björn Kristjánsson og Logi Gunarsson í leik KR og Njarðvíkur. Vísir/Bára

Fornir fjendur mætast í Njarðtaks-gryfjunni í beinni á Stöð 2 Sport í kvöld en þetta hefur verið einn uppáhalds útivöllur Íslandsmeistaranna síðasta áratuginn.

Njarðvíkingar taka á móti erkifjendum sínum í KR í kvöld í stórleik kvöldsins í tólftu umferð Domino´s deild karla í körfubolta en KR-ingar hafa kunnað afar vel við sig í Njarðvík undanfarin ár.

Leikur Njarðvíkur og KR hefst klukkan 20.15 en útsendingin á Stöð 2 Sport hefst klukkan 20.10. Dominos Tilþrifin eru síðan strax á eftir leiknum.

KR-ingar hafa unnið átta deildarleiki í Ljónagryfjunni á síðustu tíu árum eða fjórum sinnum fleiri en heimamenn í Njarðvík.

Frá og með 2010-11 tímabilinu þá er KR-liðið með 80 prósent sigurhlutfall í Njarðvík en er á sama tíma aðeins með örlítið hærra sigurhlutfall á heimavelli sínum í Frostaskjóli eða 80,9 prósent.

9. nóvember 2018 er sérstakur dagur fyrir Njarðvíkinga en þá vann liðið sinn eina heimasigur á KR í deildinni frá því að sigurganga KR-liðsins hófst á 2013-14 tímabilinu.

Njarðvík vann leikinn með átján stigum, 85-67, en þrír síðustu sigrar KR á Njarðvík suður með sjó hafa aðeins verið samtals ellefu stigum.

Í þessum umrædda og sjaldgæfa heimasigri Njarðvíkingar á KR-ingum þá var Njarðvíkurliðið komið 25 stigum yfir í hálfleik, 52-27. Mario Matasovic með 24 stig, Maciek Baginski skoraði 17 stig og Jeb Ivey bætti við 16 stigum. Julian Boyd skoraði 25 stig fyrir KR í leiknum og Jón Arnór Stefánsson var með 10 stig.

Njarðvík vann tólf stiga sigur á KR í Vesturbænum í haust og Njarðvíkingar þekkja það mun betur að vinna KR í DHL-höllinni en í Njarðvík síðustu tímabil. Sigurinn á heimavelli KR í október síðastliðnum var þannig fjórði deildarsigur Njarðvíkur í DHL-höllinni frá árinu 2016.

Njarðvík hefur því unnið KR fimm sinnum í deildarkeppninni frá árinu 2016 en aðeins einn af þessum sigrum landaði liðið í Ljónagryfjunni.

Zvonko Buljan var stigahæstur Njarðvíkina í október með 25 stig en hann er nú leikmaður ÍR. Maciek Baginski var líka mjög flottur með 22 stig en Njarðvíkingar endurheimtu hann úr meiðslum í síðasta leik. Matthías Orri Sigurðarson og Roberts Stumbris skoruðu báðir 21 stig en sá síðarnefndi yfirgaf Vesturbæinn í langa COVID-hlénu.

Fyrir utan þessa tíu deildarleiki í Ljónagryfjunni undanfarin áratug þá hafa liðin einnig mæst sex sinnum í úrslitakeppninni á sama stað. Njarðvík hefur unnið fjóra af þeim sex leikjum og hafa því staðið sig mun betur á móti KR í úrslitakeppninni. Liðin hafa líka unnið sitthvoran bikarleikinn í Njarðvík á þessum tíma.

Síðustu deildarleikir NJarðvíkur og KR í Ljónagryjunni:

  • 2019-20: KR vann 6 stiga sigur (87-81)
  • 2018-19: Njarðvík vann 18 stiga sigur (85-67)
  • 2017-18: KR vann 4 stiga sigur (73-69)
  • 2016-17: KR vann 1 stigs sigur (81-80)
  • 2015-16: KR vann 11 stiga sigur (100-89)
  • 2014-15: KR vann 10 stiga sigur (86-76)
  • 2013-14: KR vann 9 stiga sigur (83-74)
  • 2012-13: Njarðvík vann 11 stiga sigur (88-77)
  • 2011-12: KR vann 10 stiga sigur (98-88)
  • 2010-11: KR vann 20 stiga sigur (91-71)



Fleiri fréttir

Sjá meira


×