Eyjakonur gáfu út tuttugu síðna leikskrá fyrir bikarúrslitin Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. mars 2023 14:31 Valskonur unnu bikarinn í fyrra. Hér lyfta fyrirliðarnir Hildur Björnsdóttir og Hildigunnur Einarsdóttir bikarnum. Vísir/Hulda Margrét Undanúrslit Powerade-bikar kvenna í handbolta fara fram í Laugardalshöllinni í kvöld en þetta verða fyrstu bikarúrslitin í Höllinni eftir kórónuveirufaraldurinn.
Fyrri leikur kvöldsins er leikur Hauka og Vals sem hefst klukkan 18.00. Seinni leikurinn er síðan á milli ÍBV og Selfoss og hefst hann klukkan 20.15. ÍBV og Valur eru sigurstranglegri í þessum leikjum enda tvö langefstu lið Olís deildarinnar. Eyjakonur mæta Selfossi í Suðurlandsslag en ÍBV liðið hefur unnið sextán leiki í röð í deild (14) og bikar (2) eða alla leiki sína frá og með 20. október. Selfosskonur eru sex sætum neðar í töflunni og ÍBV vann síðasta leik liðanna með 21 marki, 40-21, en hann fór fram á Selfossi í janúar. ÍBV hefur ekki komist í bikarúrslitaleikinn í ellefu ár (síðast 2012) og varð síðast bikarmeistari árið 2004 (35-32 sigur á Haukum). Selfosskonur hafa aldrei komist í bikarsúrslitaleik en síðast átti félag lið í úrslitaleiknum árið 1993 þegar karlarnir komust þangað í fyrsta og eina skiptið. Fyrri leikur kvöldsins er á milli frændliðanna Vals og Hauka. Valskonur hafa náð í tuttugu fleiri stig í deildinni í vetur og eru fjórum sætum ofar. Valsliðið hefur unnið alla þrjá innbyrðis leiki liðanna í deildinni á þessari leiktíð en þann síðasta í febrúar þó aðeins með einu marki, 27-26. Í raun hefur munurinn alltaf minnkað með hverjum leik. Valur vann fyrsta leikinn með fimmtán mörkum í september (37-22), þá með átta mörkum (34-26) í nóvemberlok og loks með einu marki á heimavelli (27-26) fyrir rúmum mánuði. Valskonur eru ríkjandi bikarmeistarar og hafa unnið hann alls átta sinnum þar af tvisvar á síðustu fjórum árum. Haukakonur komust síðast í bikarúrslitaleikinn árið 2018 og unnu bikarinn síðast árið 2007 þá í fjórða skiptið. Eyjakonur gáfu út tuttugu síðna leikskrá fyrir bikarúrslitin þar sem má meðal annars finna viðtal við fyrirliðann Sunnu Jónsdóttur, markvörðinn Mörtu Wawrzynkowsku og Vigdísi Sigurðardóttur sem er fyrrum tvöfaldur bikarmeistari með ÍBV. Það er hægt að nálgast hana hér. Haukar hituðu líka upp fyrir bikarúrslitin á Youtube síðu sinni en þáttinn má finna hér fyrir neðan.
Powerade-bikarinn Valur Haukar ÍBV UMF Selfoss Olís-deild kvenna Mest lesið Bakgarðshlaupið í beinni útsendingu Sport Stórfurðuleg atburðarás þegar markvörður KR sá rautt Íslenski boltinn Kostar 600 þúsund að keppa með U18: „Þetta eru þakkirnar fyrir að spila fyrir landsliðið“ Handbolti Aðeins einum leik frá ótrúlegu meti Fótbolti Miðvarðamartröð Man United heldur áfram Enski boltinn Albert Guðmunds: Verður að hafa sjálfstraust og trúa á sjálfan þig Fótbolti „Veit ekki hvað Elmar þarf að gera til að komast í landsliðið“ Handbolti „Ég vona innilega að ég sé ekki að væla of mikið“ Íslenski boltinn Lýsti Haaland sem „ofdekruðum krakka“ Enski boltinn „Höfum spilað vel án Arons áður“ Handbolti Fleiri fréttir „Höfum spilað vel án Arons áður“ „Veit ekki hvað Elmar þarf að gera til að komast í landsliðið“ Kostar 600 þúsund að keppa með U18: „Þetta eru þakkirnar fyrir að spila fyrir landsliðið“ Uppgjör og viðtöl: FH - ÍBV 34-27 | Aronslausir FH-ingar tryggðu sér sæti í úrslitum Guðmundur og Íslendingalið Ribe-Esbjerg í undanúrslit Afturelding einum sigri frá úrslitum Magdeburg á toppinn eftir stórleik Íslendinganna Fyrsta tap lærisveina Guðjóns Vals síðan í byrjun mars Öruggt hjá Teiti Erni og félögum HSÍ lengir bann Einars: „Framganga þjálfarans var mjög ógnandi og ódrengileg“ Grótta upp í Olís eftir sigur með minnsta mun í oddaleik Hætti óvænt: Fannst hann skulda fjölskyldunni smá tíma „Ég sakna hennar á hverjum degi“ Jóhanna Margrét frábær í góðum sigri Skara Viggó fór á kostum í góðum sigri Leipzig Reiður Einar hellti sér yfir eftirlitsdómarana Hættir eftir að hafa komið Fjölni upp „Við vorum bara ekki á svæðinu“ Metamfetamín fannst í báðum sýnum markmannsins Uppgjörið og viðtöl: Valur - Afturelding 39-25 | Valsmenn jafna einvígið með stórsigri PSG tókst ekki að leika ótrúlega endurkomu Kiel eftir Fjölnir tryggði sér sæti Olís deildinni á næsta tímabili Svekkjandi tap lækkar líkurnar hjá lærisveinum Arnórs Kielce kærir leikinn gegn Magdeburg Aron í myndatöku í dag vegna meiðslanna Sjáðu dramatísku vítakastskeppnina í Eyjum Elín Jóna færir sig á milli félaga á Jótlandi Ómar Ingi skaut Evrópumeisturunum áfram eftir vítakeppni „Féllu dómar í dag sem voru að mér fannst ansi augljósir“ Óheflaði Eyjapeyinn Kári Kristján: „Töpum aldrei í vítakeppnum“ Sjá meira