Sigrún Eyjólfsdóttir hefur verið ráðin markaðs- og kynningarstjóri hjá Lífsverki lífeyrissjóði og hefur þegar tekið til starfa. Hún mun sinna fjölbreyttum verkefnum á sviði markaðs- og kynningarmála ásamt starfi persónuverndarfulltrúa.

Sigrún hefur á sínum ferli starfað lengst af í fjármálageiranum, hjá Straumi-Burðarási, Skilanefnd Kaupþings, MP banka og Kviku banka, meðal annars á sviði markaðs- og mannauðsmála. Þá hefur hún starfað undanfarin ár í ferðaiðnaðinum við markaðs- og kynningarmál.

Sigrún er með MS gráðu í mannauðsstjórnun frá Háskóla Íslands og lauk grunnnámi í spænsku og sagnfræði frá sama skóla.

Lífsverk er lífeyrissjóður fyrir háskólamenntaða sem getur boðið hærri ávinnslu réttinda vegna inntökuskilyrða og samsetningar sjóðfélaga að sögn sjóðsins. Lífsverk var stofnað árið 1954 og var í upphafi eingöngu fyrir verkfræðinga en nú geta allir sem lokið hafa grunnnámi frá háskóla sótt um aðild að sjóðnum.