Í lok vetrar verði Þjóðverjar „bólusettir, búnir að ná sér af Covid eða látnir“ Vésteinn Örn Pétursson skrifar 22. nóvember 2021 22:37 Jens Spahn, heilbrigðisráðherra Þýskalands, var ómyrkur í máli á fréttamannafundi í dag. Carsten Koall/Getty Heilbrigðisráðherra Þýskalands, Jens Spahn, undirstrikaði í dag mikilvægi þess að landar hans létu bólusetja sig. Það gerði hann á afar beinskeyttan hátt, þegar hann ræddi við fréttamenn á fundi í Berlín í dag. „
Í lok þessa vetrar verða allir Þjóðverjar bólusettir, búnir að ná sér af Covid, eða látnir,“ sagði ráðherrann. Með þessu gaf hann í skyn að þetta væru þeir þrír möguleikar sem kæmu til greina, nú þegar landið stendur í miðri fjórðu bylgju faraldursins, þeirri skæðustu til þessa. Þýskaland er með heldur lágt bólusetningarhlutfall í samanburði við aðrar vestrænar þjóðir, en 68 prósent íbúa landsins hafa hlotið fulla bólusetningu. Smittíðni fer hækkandi og hefur í raunar aldrei verið hærri. Þannig hafa rúmlega 30 þúsund manns greinst með veiruna í Þýskalandi síðasta sólarhringinn, sem er aukning um sjö þúsund nýgreindra á einum degi frá því fyrir viku. Stjórnvöld í landinu hafa tekið ákvörðun um að koma á hertari sóttvarnaaðgerðum, sem fela meðal annars í sér að óbólusettum verðum meinaður aðgangur að ákveðnum almenningsstöðum, auk þess sem jólamörkuðum víða um landið hefur verið aflýst. Spahn sagðist á fundinum vera mótfallinn því að gera bólusetningar að skyldu, en sagði það þó siðferðislega skyldu hvers manns að láta bólusetja sig, í því skyni að vernda náungann. „Frelsi fylgir ábyrgð, og það er skylda samfélagsins að láta bólusetja sig,“ sagði hann og bætti við að á næstu mánuðum myndi hver sá sem ekki er bólusettur smitast, og skorta tilhlýðilega vörn gegn alvarlegum veikindum. Milljónir skammta gætu skemmst Spahn lagði sérstaka áherslu á eitt bóluefni, nefnilega bóluefna bandaríska lyfjaframleiðandans Moderna, og sagði efnið vera „Rolls Royce bóluefnanna.“ Breska ríkisútvarpið greinir frá því að ástæðan sé sú að eftirspurn eftir bóluefni Pfizer sé svo mikil að útlit sé fyrir að skortur verði á því. Ráðherrann sagði þá að á næstu mánuðum gætu 16 milljónir skammta af Moderna-bóluefni farið til spillis, verði þeim ekki komið í gagnið. Frá upphafi faraldursins hafa ríflega 99 þúsund manns látist af völdum Covid-19, og yfir 5,4 milljónir fengið sjúkdóminn.
Þýskaland Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Kolbeinn Sigþórsson ákærður fyrir brot gegn barnungri stúlku Innlent „Það er norskur sigur í dag“ Innlent Íslendingur í gæsluvarðhaldi vegna Hamraborgarmálsins Innlent Halla vill skikka ungmenni í samfélagsþjónustu Innlent Samþykktu verkfallsaðgerðir á Keflavíkurflugvelli Innlent Betra að fá óþægilegu málin fram fyrr en seinna Innlent Útimarkaðurinn í Mosó hættir Innlent Búinn að skila inn undirskriftum eftir „óvenjulegan“ frest Innlent Katrín efst en Jón hrynur í nýrri könnun Innlent Ný skoðanakönnun á morgun og Pallborð klukkan 14 Innlent Fleiri fréttir Segir fólk eiga rétt til mótmæla en ekki til óreiðu Umfangsmikil mótmæli vegna „rússneskra“ laga í Georgíu Enn í basli með skemmdir á hitaskildi Orion Vornanen kastað úr þingflokknum Hafa engin varnarvirki til að hörfa í Yfirstandandi kosningar á Englandi prófsteinn fyrir Íhaldsflokkinn Viðbrögð Hamas við vopnahléstillögunum „neikvæð“ Hundruð lögreglumanna í viðbragðsstöðu vegna mótmæla í UCLA Vilja endurupptöku í máli Weinstein Þrjú hundruð handtekin í Columbia-háskóla Stuðningur við dönsku ríkisstjórnina aldrei verið minni Mótmælendur og gagnmótmælendur tókust á Trump sektaður um meira en milljón króna Rússar sagðir nota skotflaugar frá Norður-Kóreu Þrettán ára drengur stunginn til bana með sverði Særði minnst fimm með sverði í Lundúnum Íslendingur sem lúbarði lögreglumenn í Varsjá þarf að borga brúsann Fjórir lögreglumenn skotnir til bana í Charlotte Rostungur sem fannst í fyrra drapst af völdum fuglaflensu Hvetur Hamas til að ganga að rausnarlegum tillögum Ísrael Flugvöllur Færeyinga fær að taka við stærri þotum Yousaf segir af sér sem ráðherra og formaður Skoska þjóðarflokksins Sánchez hættir við að segja af sér Grafið undan fjölmiðlafrelsinu víða í Evrópu Vopnahlé í sjónmáli? Tveir látnir eftir að bíll hafnaði í sjónum við Stokkhólm Fjölmenn mótmæli vegna ofbeldisbylgju í Ástralíu Vasaúr ríkasta manns Titanic seldist á 210 milljónir Þúsundir hvöttu Sánchez til að segja ekki af sér Skoða að færa Mónu Lísu í eigið herbergi Sjá meira