Komin með kærasta eftir skilnaðinn

Sveitasöngkonan og leikkonan Jana Kramer er komin með kærasta.
Sveitasöngkonan og leikkonan Jana Kramer er komin með kærasta. Skjáskot/Instagram

Sveitasöngkonan og leikkonan Jana Kramer er komin með kærasta rúmum átta mánuðum eftir að hún sótti um skilnað við eiginmann sinn Mike Caussin. Kramer og Caussin höfðu verið gift tæp sex ár, en á þeim tíma hafði hann haldið fram hjá henni nokkrum sinnum. 

Nýji kærastinn er einkaþjálfarinn Ian Schinelli en þau hafa bæði opinberað sambandið á Instagram. Í færslu sinni lýsir Kramer því hversu mikils hún kann að meta sambandið við Schinelli. 

„Það er góð tilfinning að finna hamingju á meðan maður er enn að jafna sig. Að finna einhvern sem lítur ekki á örin þín sem áskorun eða vandamál, heldur hjálpar þér að búa um þau og stendur með þér,“ skrifaði Kramer. 

Kramer og Caussin eiga tvö börn saman og fara með sameiginlegt forræði. Schinelli á eina dóttur úr fyrra sambandi. 

View this post on Instagram

A post shared by Jana Kramer (@kramergirl)

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Það er ástæðulaust að fyllast sektarkennd út af þeim hlutum sem ekki eru í þínu valdi að breyta. Reyndu að sýna lipurð og samstarfsvilja og þá muntu ná takmarki þínu.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riely og Lucinda Riley
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Það er ástæðulaust að fyllast sektarkennd út af þeim hlutum sem ekki eru í þínu valdi að breyta. Reyndu að sýna lipurð og samstarfsvilja og þá muntu ná takmarki þínu.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riely og Lucinda Riley
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg