Handbolti

Ís­land endar í tólfta sæti á HM

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Gísli Þorgeir Kristjánsson í leik á HM.
Gísli Þorgeir Kristjánsson í leik á HM. Vísir/Vilhelm

Þegar nær öllum leikjum dagsins á HM í handbolta er lokið er orðið ljóst að Ísland endar í 12. sæti á mótinu. Fyrr í dag var Ísland í tíunda sæti en eftir sigra Serbíu og Króatíu fellur Ísland niður í tólfta sætið.

Sigur Króatíu á Barein þýðir að Króatía endar í 9. sæti og Slóvenía fer úr níunda sætinu niður í 10. sætið. Sigur Serbíu á Hollandi lyftir Serbum upp í 11. sæti og Íslandi þar af leiðandi niður í 12. sæti.

Í stuttu máli eru öll liðin sem enduðu í 3. sæti í milliriðlunum fjórum með fleiri stig eða betri markatölu en Ísland:

  • 9. Króatía 7 stig (+28)
  • 10. Slóvenía 6 stig (+25)
  • 11. Serbía 6 stig (+14)
  • 12. Ísland 6 stig (+11)

Ísland getur ekki fallið neðar þar sem sætum þar fyrir neðan hefur verið ráðstafað. Á eftir Íslandi koma Portúgal, Holland, Pólland, Barein, Brasilía, Svartfjallaland, Argentína, Bandaríkin, Belgía, Katar, Grænhöfðaeyjar og Íran.

Með þessu eru möguleikar Íslands að komast í forkeppni Ólympíuleikanna 2024 orðnir að litlu sem engu. Liðið þarf að verða Evrópumeistari á næsta ári eða enda eins ofarlega og mögulegt er á EM og vona að það skili sæti í forkeppni Ólympíuleikanna sem fram fer vorið 2024.


Tengdar fréttir

Króatía keyrði yfir Bar­ein í síðari hálf­leik

Lærisveinar Arons Kristjánssonar í Barein léku einkar vel í fyrri hálfleik gegn Króatíu í síðasta leik liðanna í milliriðli IV á HM í handbolta. Í síðari hálfleik reyndist Króatía mun sterkari aðilinn og vann á endanum 11 marka sigur, lokatölur 43-32.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×