Þórsarar engin fyrirstaða fyrir FH

Egill Magnússon var atkvæðamestur í liði FH með sex mörk.
Egill Magnússon var atkvæðamestur í liði FH með sex mörk. mbl.is/Kristinn Magnússon

Egill Magnússon var markahæstur FH-inga þegar liðið fékk Þór í heimsókn í úrvalsdeild karla í handknattleik, Olísdeildinni, í þrettándu umferð deildarinnar í kvöld.

Leiknum lauk með níu marka sigri FH, 30:21, en Egill Magnússon skoraði sex mörk fyrir FH.

Jafnræði var með liðunum fyrstu tíu mínútur leiksins en þá hrukku Hafnfirðingar í gang og leiddu með átta mörkum í hálfleik, 18:10.

Þórsurum tókst að minnka forskot FH í fimm mörk í upphafi síðari hálfleiks en lengra komust þeir ekki og FH fagnaði öruggum sigri.

Einar Rafn Eiðsson skoraði fimm mörk fyrir FH og Phil Döhler var með 36% markvörslu og varði tólf skot.

Ihor Kopyshynskyi og Karolis Stropus voru markahæstir Þórsara með sex mörk hvor en liðið er í ellefta sæti deildarinnar með 4 stig.

FH er með 18 stig í öðru sætinu, einu stigi minna en Haukar, en Haukar eiga leik til góða á FH.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert