Stjórn LIVE hafi ekki gætt að því að meta hæfi stjórnarmanna

Fjármálaeftirlit Seðlabankans segir að stjórn Lífeyrissjóðs verzlunarmanna hafi ekki gætt að því að meta hæfi stjórnarmanna við undirbúning og ákvörðun um hvort taka skyldi þátt í hlutafjárútboði Icelandair.

Upplýsingagjöf sjóðsins til fjármálaeftirlitsins í tengslum við athugunina er sögð hafa verið „ábótavant og misvísandi“.
Upplýsingagjöf sjóðsins til fjármálaeftirlitsins í tengslum við athugunina er sögð hafa verið „ábótavant og misvísandi“.
Auglýsing

Fjár­mála­eft­ir­lit Seðla­bank­ans telur að stjórn Líf­eyr­is­sjóðs verzl­un­ar­manna hafi ekki gætt að því að meta hæfi ein­stakra stjórn­ar­manna við und­ir­bún­ing og ákvörðun um hvort sjóð­ur­inn tæki þátt í hluta­fjár­út­boði Icelandair Group. Þetta kemur fram í nið­ur­stöðu bank­ans vegna athug­unar á stjórn­ar­háttum hjá sjóðn­um, sem birt var í dag.

Þar segir einnig að Seðla­bank­inn hafi farið fram á að stjórn líf­eyr­is­sjóðs­ins tryggi fram­vegis að full­nægj­andi umræða fari fram á stjórn­ar­fundum um hæfi stjórn­ar­manna þegar til­efni sé til lögum sam­kvæmt og að stjórn­ar­mönnum verði tryggður kostur á að koma á fram­færi upp­lýs­ingum sem varða hæfi þeirra í tengslum við þau mál sem eru til umræðu, eftir því sem til­efni er til hverju sinni.

Einnig segir í nið­ur­stöðu fjár­mála­eft­ir­lits Seðla­bank­ans að upp­lýs­inga­gjöf sjóðs­ins til bank­ans vegna athug­un­ar­innar á stjórn­ar­háttum sjóðs­ins hafi verið „ábóta­vant og mis­vísand­i“. Það hafi meðal ann­ars tafið afgreiðslu máls­ins.

Auglýsing

Athugun fjár­mála­eft­ir­lits­ins hófst í sept­em­ber í fyrra, vegna álita­mála sem komu upp í tengslum við und­ir­bún­ing ákvörð­unar stjórnar sjóðs­ins um hvort taka skyldi þátt í hluta­fjár­út­boði Icelandair Group eða ekki.

Til athug­unar var hvort stjórn líf­eyr­is­sjóðs­ins hefði gætt að því með full­nægj­andi hætti að meta hæfi ein­stakra stjórn­ar­manna við und­ir­bún­ing og ákvörðun um hvort sjóð­ur­inn tæki þátt í hluta­fjár­út­boð­inu í sam­ræmi við kröfur laga nr. 129/1997 um skyldu­trygg­ingu líf­eyr­is­rétt­inda og starf­semi líf­eyr­is­sjóða og stjórn­sýslu­laga nr. 37/1993.

Seðla­bank­inn afl­aði meðal ann­ars upp­lýs­inga og gagna um ákvörð­un­ar­ferli stjórnar sjóðs­ins vegna útboðs­ins og átti fundi með stjórn­ar­mönnum sjóðs­ins þar sem farið var yfir sömu mál­efni.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent