Keyra í klukkustund til að kaupa í matinn Kristján Már Unnarsson skrifar 18. nóvember 2020 22:03 Ingibjörg Birna Erlingsdóttir, sveitarstjóri Reykhólahrepps. Egill Aðalsteinsson
Ímyndið ykkur að engin verslun væri í Reykjavík og að borgarbúar þyrftu að keyra yfir fjallveg austur á Selfoss til að kaupa nauðsynjavörur í matinn. Þetta er sá veruleiki sem íbúar Reykhólasveitar búa við eftir að einu búðinni þar var lokað, að því er fram kom í fréttum Stöðvar 2. 260 íbúar Reykhólasveitar hafa ekki getað verslað í eigin heimabyggð eftir að Hólabúð og sambyggðum veitingastað var lokað í byrjun október. Hólabúð og veitingastaðurinn voru í rauða húsinu við heimreiðina að Reykhólum.Egill Aðalsteinsson „Þetta var áfall,“ segir Ingibjörg Birna Erlingsdóttir, sveitarstjóri Reykhólahrepps. Fyrir íbúana í þéttbýlinu á Reykhólum þýddi þetta að það var ekki lengur hægt að skreppa út í búð að kaupa í matinn. Næsta búð er nefnilega á Hólmavík en þangað er 50-60 mínútna akstur yfir Þröskulda. Sveitarstjórinn segir íbúana einnig sækja í Búðardal og jafnvel alla leið í Borgarnes til að gera innkaupin en í öllum tilvikum þarf að fara yfir fjallveg. „Þetta er ekki þægilegt ástand og það fer náttúrlega versnandi. Við erum búin að búa við það að það hafi verið gott veður hingað til. Það er ekki búin að vera hálka eða annað. En auðvitað þegar fara að koma snjór og hálka þá fara aðstæður að breytast og þá verður þetta mikið erfiðara.“ Frá Reykhólum. Þaðan eru 58 kílómetrar til Hólmavíkur um Þröskulda og 75 kílómetrar í Búðardal um Svínadal.Egill Aðalsteinsson En ekki er öll nótt úti enn. Reykhólabúar gætu brátt tekið gleði sína á ný. Sveitarstjórinn segir áhugasama aðila hafa gefið sig fram um að reka verslun. „Þannig að ég sé bara fram á bjarta tíma. Þetta eru ekki endalokin. Það opnast dyr þegar aðrar lokast.“ -Þannig að það verður kannski hægt að kaupa jólamatinn á Reykhólum? „Kannski ekki jólamatinn. En væntanlega mjög fljótlega eftir áramót verður hægt að kaupa í matinn á Reykhólum,“ segir Ingibjörg Birna. Hér má sjá frétt Stöðvar 2:
Reykhólahreppur Strandabyggð Dalabyggð Byggðamál Verslun Tengdar fréttir Einu matvöruverslun Reykhólasveitar lokað Eigendur Hólabúðar á Reykhólum hafa tilkynnt að versluninni verði lokað um næstu mánaðamót. Jafnframt verður rekstri veitingastaðarins 380 Restaurant hætt. Fyrir íbúa Reykhóla þýðir þetta að 50 til 60 mínútna akstur verður í næstu búð til að kaupa í matinn. 10. september 2020 15:07 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Það er norskur sigur í dag“ Innlent Íslendingur í gæsluvarðhaldi vegna Hamraborgarmálsins Innlent Halla vill skikka ungmenni í samfélagsþjónustu Innlent Samþykktu verkfallsaðgerðir á Keflavíkurflugvelli Innlent Kolbeinn Sigþórsson ákærður fyrir brot gegn barnungri stúlku Innlent Betra að fá óþægilegu málin fram fyrr en seinna Innlent Búinn að skila inn undirskriftum eftir „óvenjulegan“ frest Innlent Útimarkaðurinn í Mosó hættir Innlent Ný skoðanakönnun á morgun og Pallborð klukkan 14 Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Fleiri fréttir Kolbeinn Sigþórsson ákærður fyrir brot gegn barnungri stúlku Framboð Viktors Traustasonar er gilt Hárgreiðslustóll ekki hættulegt tæki og konan fær engar bætur Afkoma borgarinnar versnar um níu milljarða króna milli ára Samþykktu verkfallsaðgerðir á Keflavíkurflugvelli Útimarkaðurinn í Mosó hættir Atli Þór ráðinn til Pírata: „Við ætlum að koma flokknum í ríkisstjórn“ Biðlistinn á Stígamótum styttist í fyrsta sinn í þrjú ár Ný skoðanakönnun á morgun og Pallborð klukkan 14 Áfram landris og óvissa um framhaldið Tryggja þurfi tímabundin afnot náttúruauðlinda í stjórnarskrá Búinn að skila inn undirskriftum eftir „óvenjulegan“ frest „Það er norskur sigur í dag“ Grindvíkingar opna bakarí og veitingastað á ný Bakarí og veitingastaður opna í Grindavík á ný Friðrik skipaður sendiherra í Póllandi Halla vill skikka ungmenni í samfélagsþjónustu Íslendingur í gæsluvarðhaldi vegna Hamraborgarmálsins Betra að fá óþægilegu málin fram fyrr en seinna Eldur í ruslageymslu í Hafnarfirði Seinni umferð biskupskjörs hefst á hádegi í dag Icelandair flýgur til Færeyja að nýju Stutt í næsta gos komi til gosloka „Það er hart sótt að okkar fólki“ Háskólanemar halda lautarferð og stofna hreyfingu fyrir Palestínu Jarðhræringar á Reykjanesi, flug til Færeyja og verkalýðsdagurinn Úrskurðurinn felldur úr gildi Vill hinn almenna launamann á þing Sinueldur í Munaðarneslandi Íslensk stjórnvöld haldin „sjúkri undirgefni“ Sjá meira
Einu matvöruverslun Reykhólasveitar lokað Eigendur Hólabúðar á Reykhólum hafa tilkynnt að versluninni verði lokað um næstu mánaðamót. Jafnframt verður rekstri veitingastaðarins 380 Restaurant hætt. Fyrir íbúa Reykhóla þýðir þetta að 50 til 60 mínútna akstur verður í næstu búð til að kaupa í matinn. 10. september 2020 15:07