Kári hvetur fólk til að draga andann og bíða gagna um nýtt afbrigði Hólmfríður Gísladóttir skrifar 26. nóvember 2021 07:58 Hvað varðar spádóma japanskra vísindamanna um að Delta-afbrigðið væri að því komið að útrýma sjálfu sér með stökkbreytingum sagði Kári þá jarðsyngja veiruna sprelllifandi. „Hún er þarna ennþá, kát og glöð, og þeytist manna á milli og veldur búsifjum,“ sagði hann. Það er fræðilega mögulegt og líklega hafa menn einhverjar vísbendingar um að nýtt afbrigði SARS-CoV-2 sé meira smitandi og líklegra til að komast hjá ónæmisvörnum líkamans en það hefur alls ekki verið sannað enn sem komið er.
Þetta ítrekaði Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, í samtali við Reykjavík síðdegis í gær, þar sem rætt var um afbrigðið B.1.1.529. Afbrigðið er með fjölda stökkbreytinga í svokölluðu bindiprótíni og uggur vegna þess hefur orðið til þess að Bretar hafa bannað flug frá nokkrum Afríkuríkjum. 77 tilvik hafa verið staðfest í Suður-Afríku, fjögur í Botswana og eitt í Hong Kong en þar var um að ræða ferðalang sem var að koma frá Suður-Afríku. „Ég hef ekki séð gögn sem hægt er að rýna í sem benda til slíks,“ sagði Kári um þann möguleika að nýja afbrigðið væri smitnæmara en önnur. „Ætli það sé ekki enn einu sinni að menn séu kannski svolítið á undan sjálfum sér í að draga ályktun. Ég veit ekki hvernig við förum að því að bera saman útbreiðslu á veirunni í Botswana og til dæmis í Evrópu. „Það sem ræður útbreiðslu þessarar veiru er ekki bara hversu smitandi hún er heldur ræðst hún líka af hegðun manna. Þannig að vissu leyti er Covid-19 sjúkdómurinn hegðunarsjúkdómur; það er að segja líkurnar á því að menn smitist ráðast töluvert mikið af hegðun þeirra. Þannig að ég held að við eigum bara að draga djúpt andann og bíða svolítið. Ég held að það sé ekkert enn sem gerir það að verkum að við þurfum að rjúka upp til handa og fóta vegna enn smitnæmara afbrigðis í Botswana,“ sagði Kári. Bólusetning barna muni hafa meiriháttar áhrif Spurður um stöðu kórónuveirufaraldursins hérlendis og horfurnar fyrir jól segist Kári vonast til þess að þriðji skammturinn af bóluefnunum muni hafa mikil áhrif á útbreiðslu veirunnar. „Mér skilst að býsna stór hundraðshluti af smitum sé hjá krökkum, sem hafa ekki verið bólusettir. Mér sýnist á tölum sem berast frá sjúkrastofnunum að alltof stór hundraðshluti þeirra sem er að lasnast núna sé óbólusettur. Þannig að ég vona að bólusetningarnar sem slíkar komi til með að hafa meiriháttar áhrif,“ svaraði Kári. „Ég vona að við komumst í gegnum þessi jól glöð og kát og án of mikilla áhrifa frá pestinni.“ Fregnir bárust af því í gær að Lyfjastofnunn Evrópu hefði heimilað bólusetningu barna á aldrinum 5 til 11 ára með bóluefninu frá Pfizer. Kári segist telja að það muni hafa meiriháttar áhrif, þar sem veiran sé að smokra sér manna á milli í gegnum börnin. Þá segir hann líklegt að börnin verði bólusett þrisvar, líkt og fullorðnir, en þess ber að geta að þau fá minni skammt.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Bólusetningar Heilbrigðismál Reykjavík síðdegis Tengdar fréttir Bretar bregðast við nýju afbrigði kórónuveirunnar Yfirvöld í Bretlandi hafa ákveðið að setja takmarkanir á ferðamenn frá ákveðnum löndum í Suður-Afríku vegna ótta við nýtt afbrigði kórónuveirunnar. Flug frá tilgreindum löndum til Bretlands verður lagt niður. 25. nóvember 2021 23:15 Hafa áhyggjur af nýju og mikið stökkbreyttu afbrigði SARS-CoV-2 Vísindamenn fylgjast nú vel með nýju afbrigði SARS-CoV-2, sem hefur 32 stökkbreytingar á bindiprótíni (e. spike protein) og er mögulega betur í stakk búið en önnur afbrigði veirunnar til að komast framhjá ónæmisvörnum líkamans. 25. nóvember 2021 06:59 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Segja „alvarlegar staðreyndavillur“ í umfjöllun Kastljóss Innlent Séra Guðrún kjörin biskup Íslands Innlent Gosið gæti þúsundfaldast við nýjan atburð Innlent Stillir viðtækið á alheimsdögunina Innlent „Skítkastið var ógeðslegt“ Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Verðhækkanir á döner-kebab eitt helsta áhyggjuefni Þjóðverja Erlent Lífverðir Selenskís sakaðir um að skipuleggja banatilræði Erlent „Massíf slysaslepping á vondu frumvarpi“ Innlent Beinagrindur og ástarsorg á Bessastöðum Innlent Fleiri fréttir Aðstæður fyrir stýrivaxtalækkun á morgun Gosið gæti þúsundfaldast við nýjan atburð Séra Guðrún kjörin biskup Íslands Segja „alvarlegar staðreyndavillur“ í umfjöllun Kastljóss SA og SSF skrifuðu undir langtímakjarasamning Agnes segir nýjan biskup taka við annarri kirkju en hún tók við Stýrivextir, Eurovision og biskupskjör „Skítkastið var ógeðslegt“ Fiskadauði í einni af mestu sjóbirtingsveiðiám landsins Valtýr ráðinn yfirlæknir Ný nálgun Samfylkingar í orkumálum konfekt í eyrum Jóns Vilja tryggja öryggi starfsfólks í vegavinnu „Massíf slysaslepping á vondu frumvarpi“ Stillir viðtækið á alheimsdögunina Þrír handteknir vegna vopnalagabrota og tveir vegna líkamsárásar Beinagrindur og ástarsorg á Bessastöðum Alþjóðanemar neyðist til að vinna svart á Íslandi „Tjónið af þessum slóðaskap hleypur á fleiri milljörðum“ Stóra stundin að renna upp: Bjartsýn en með báða fætur á jörðinni Sanngirnisbótafrumvarpið sé blekking Faðir mannsins sem lést á Litla-Hrauni krefst umbóta Kveikt í papparusli í Glæsibæ Flugfélögin grípa til ráðstafana vegna verkfallsaðgerða Skjálfti fannst vel á höfuðborgarsvæðinu Ákall frá föður látins fanga og beinagrindur á Bessastöðum Kveðst ekki svindla á neinum með happdrætti sínu Örlætisgjörningur ríkislögreglustjóra til tals á þinginu Brynjar hefur ekki orðið var við neina skrímsladeild í Valhöll Framkvæmdir muni ekki hafa marktæk áhrif á daglega starfsemi Segja varkárni ávallt hafa verið Haraldi efst í huga Sjá meira
Bretar bregðast við nýju afbrigði kórónuveirunnar Yfirvöld í Bretlandi hafa ákveðið að setja takmarkanir á ferðamenn frá ákveðnum löndum í Suður-Afríku vegna ótta við nýtt afbrigði kórónuveirunnar. Flug frá tilgreindum löndum til Bretlands verður lagt niður. 25. nóvember 2021 23:15
Hafa áhyggjur af nýju og mikið stökkbreyttu afbrigði SARS-CoV-2 Vísindamenn fylgjast nú vel með nýju afbrigði SARS-CoV-2, sem hefur 32 stökkbreytingar á bindiprótíni (e. spike protein) og er mögulega betur í stakk búið en önnur afbrigði veirunnar til að komast framhjá ónæmisvörnum líkamans. 25. nóvember 2021 06:59