Skýrsla Henrys: Draumabyrjun sem bætti geðheilsu landans Henry Birgir Gunnarsson skrifar 14. janúar 2022 23:01 Það var heldur betur kátt í höllinni í kvöld. vísir/getty Viðbjóðslegt veður, covid og janúar. Íslendingar hafa fengið nóg og þurftu sárlega á því að halda að strákarnir okkar myndu skemmta þeim gegn Portúgal. Það gerðu þeir eins og sannir listamenn.
Þó svo það vanti sterka menn í þetta lið Portúgals þá var gefið að þetta yrði snúið. Liðið spilar einn hægasta og leiðinlegasta handbolta heims en gerir það alla jafna hrikalega vel. Sem er auðvitað óþolandi. Það tók tíma að brjóta þetta portúgalska lið niður en maður sá fljótt að gæðamunur var á liðunum. Það var spurning hvenær gæðin myndu skína í gegn. Það gerðu þau svo sannarlega á endanum. Varnarleikurinn var heilt yfir geggjaður. Ýmir Örn fór fyrir honum með stoppum, vörðum skotum og fráköstum í bland við smá brjálæði. Yndislegt að horfa á hann í þessum ham. Hið frábæra samstarf hans og Elvars Arnar hélt áfram. Elvar er naut að burðum og spilar oft á tíðum eins og maður sem er 20 sentimetrum hærri og 20 kílóum þyngri. Magnaður. Sóknarleikurinn hefur fengið smá yfirhalningu hjá Guðmundi og lofar góðu. Gísli Þorgeir stýrði umferðinni eins og höfðingi. Aron skoraði sín mörk og bjó til hlaðborð fyrir félaga sína eins og venjulega. Það var pressa á íþróttamanni ársins, Ómari Inga, en hann sýndi loksins gæðin með landsliðinu. Og þvílík gæði. Nú er hann vonandi búinn að kasta þessum „hefur aldrei getað neitt með landsliðinu“ bagga af sér og blómstrar í kjölfarið. Hornamennirnir okkar eru í heimsklassa og fínt að fá smá áminningu um það. Auðvitað er smá veikleiki hvað koma fá mörk af línu en það kom ekki að sök núna. Viktor Gísli átti svo flotta innkomu í markið. Liðsheildin fræga var einfaldlega geggjuð í dag. Það voru allir að leggja lóð á vogarskálarnir. Liðið var agað, lítið um mistök og það kom ekki einu sinni slæmur kafli. Hvað viljið þið hafa það betra? Liðið er búið að æfa vel og virðist ekki bara hafa sjálfstraust heldur líka tröllatrú á því leikplani sem fyrir það er lagt. Frumsýningu er lokið. Hún tókst ljómandi vel og færir okkur von um bjartari tíma hjá liðinu. Það er aftur á móti stutt í skítinn eins og góður maður sagði um árið og þessu verður að fylgja eftir á sunnudag. Ég er bjartsýnni á gott gengi eftir að hafa séð þessa frammistöðu í einhverri 300 metra hæð þar sem blaðamenn sitja. Það hefur verið vinna að rækta þetta lið síðustu ár og uppskeran er að koma. Þetta er spennandi og skemmtilegt lið sem á vonandi eftir að bæta geðheilsu íslensku þjóðarinnar heilmikið í þessum mánuði.
EM karla í handbolta 2022 Mest lesið Bakgarðshlaupið í beinni útsendingu Sport „Ég sakna hennar á hverjum degi“ Handbolti Enginn náð í fleiri stig en McKenna síðan hann tók við Ipswich Enski boltinn „Við þurfum níu stig til að vinna titilinn“ Enski boltinn Darius Morris látinn aðeins þrjátíu og þriggja ára að aldri Körfubolti „Við höldum bara áfram þangað til að leikurinn er búinn“ Körfubolti HSÍ lengir bann Einars: „Framganga þjálfarans var mjög ógnandi og ódrengileg“ Handbolti „Við gleymum okkur á veiku hliðinni“ Körfubolti Uppgjör: Keflavík - Grindavík 84-83 | Ótrúlegur endir og allt jafnt í einvíginu Körfubolti Girona í fyrsta sinn í Meistaradeild Evrópu og tryggði Real í leiðinni titilinn Fótbolti Fleiri fréttir Öruggt hjá Teiti Erni og félögum HSÍ lengir bann Einars: „Framganga þjálfarans var mjög ógnandi og ódrengileg“ Grótta upp í Olís eftir sigur með minnsta mun í oddaleik Hætti óvænt: Fannst hann skulda fjölskyldunni smá tíma „Ég sakna hennar á hverjum degi“ Jóhanna Margrét frábær í góðum sigri Skara Viggó fór á kostum í góðum sigri Leipzig Reiður Einar hellti sér yfir eftirlitsdómarana Hættir eftir að hafa komið Fjölni upp „Við vorum bara ekki á svæðinu“ Metamfetamín fannst í báðum sýnum markmannsins Uppgjörið og viðtöl: Valur - Afturelding 39-25 | Valsmenn jafna einvígið með stórsigri PSG tókst ekki að leika ótrúlega endurkomu Kiel eftir Fjölnir tryggði sér sæti Olís deildinni á næsta tímabili Svekkjandi tap lækkar líkurnar hjá lærisveinum Arnórs Kielce kærir leikinn gegn Magdeburg Aron í myndatöku í dag vegna meiðslanna Sjáðu dramatísku vítakastskeppnina í Eyjum Elín Jóna færir sig á milli félaga á Jótlandi Ómar Ingi skaut Evrópumeisturunum áfram eftir vítakeppni „Féllu dómar í dag sem voru að mér fannst ansi augljósir“ Óheflaði Eyjapeyinn Kári Kristján: „Töpum aldrei í vítakeppnum“ Uppgjörið: ÍBV - FH 39-38 | ÍBV tryggði sér oddaleik eftir vítakastkeppni Bjarki Már og félagar úr leik Haukakonur sópuðu Fram í sumarfrí og mæta Val í úrslitum Róbert fer frá Drammen og vill spila nærri Andreu Löwen í undanúrslit þrátt fyrir fína frammistöðu Orra Freys „Vantaði meiri breidd til þess að veita þeim harðari keppni“ „Náðum að stilla spennustigið betur í hálfleik“ Uppgjörið: Valur - ÍBV 30-22 | Valskonur mættu með sópinn gegn ÍBV Sjá meira