Fótboltamenn krefjast greiðslu fyrir notkun upplýsinga um þá Sindri Sverrisson skrifar 12. október 2021 15:00 Alls konar gögn um knattspyrnumenn eru nýtt af fyrirtækjum án þess að þeir fái greiðslur fyrir. Getty/Michael Regan Ýmis fyrirtæki nýta sér upplýsingar um hæð og þyngd knattspyrnumanna, meðalfjölda marka sem þeir skora í leik, spilaðar mínútur, fiskaðar vítaspyrnur og margt fleira. Nú krefjast hundruð knattspyrnumanna í Bretlandi þess að þeim sé greitt fyrir notkun á gögnum um þá.
Russell Slade, fyrrverandi knattspyrnustjóri Cardiff, Leyton Orient og Yoevil Town, fer fyrir hópi 850 leikmanna sem krefjast þess að fá bætur vegna notkunar fyrirtækja á upplýsingum um þá síðustu sex árin. Þeir vilja jafnframt fá árlegar greiðslur frá fyrirtækjum sem ætla sér að nýta þessar upplýsingar. Hópurinn hefur sent erindi til sautján slíkra fyrirtækja, sem meðal annars starfa í veðmálaheiminum og afþreyingariðnaði, og hótað málsókn. Yfir 150 fyrirtæki eru á lista hjá hópnum yfir fyrirtæki sem hann telur að brjóti lög með notkun gagna um leikmenn. Lögfræðingateymi Slades segir að það sé brot á lögum um gagnavernd, sem voru hert árið 2018, að nota upplýsingar um leikmenn án þess að fá til þess leyfi og greiða fyrir það. „Ótrúlegt að sjá hvar þessar upplýsingar eru notaðar“ Slade segir að greiðslur til leikmanna í ensku úrvalsdeildinni, fyrir notkun upplýsinga um þá, hafi vissulega kannski ekki mikil áhrif á fjárhaginn hjá þeim. Þegar horft sé til neðri deilda, í karla- og kvennafótboltanum, sé hins vegar um meira hagsmunamál að ræða fyrir leikmenn. „Það er ótrúlegt að sjá hvar þessar upplýsingar eru notaðar. Það var til að mynda hægt að finna einhver 7.000 upplýsingabrot um einn leikmann, og það var ekki leikmaður í ensku úrvalsdeildinni eða jafnvel næstefstu deild,“ sagði Slade við BBC. „Það eru fyrirtæki sem að safna þessum upplýsingum og nýta þær án þess að leikmenn gefi leyfi fyrir því,“ sagði Slade og sagði hópinn staðráðinn í að breyta ástandinu sem svo sannarlega einskorðist ekki við fótboltaheiminn heldur eigi við um allar íþróttir. Kennara eða lögfræðingi myndi ekki líða vel með þetta Tölfræðiupplýsingar eru nýttar með afar víðtækum hætti í íþróttum og svo hefur lengi verið. Knattspyrnufélög og leikmenn nýta þær til að mæla árangur og setja sér markmið, og ótengd fyrirtæki hafa nýtt upplýsingar meðal annars til að ákvarða stuðla eða til notkunar í ýmiss konar leikjum. Dave Edwards, fyrrverandi landsliðsmaður Wales, segir að leikmenn vilji hafa meira um það að segja hvernig gögn um þá séu nýtt: „Eftir því sem ég hef skoðað það betur hvernig upplýsingar um okkur eru nýttar, hve víða þær fara og öll fyrirtækin sem nota þær, þá finnst mér sem leikmanni að við ættum að ráða meiru um það hver fær að nota þær,“ sagði Edwards. „Það myndu allir aðrir í heiminum fá að hafa eitthvað um það að segja. Bara af því að við erum fótboltamenn og þannig opinberar persónur þá er horft framhjá þessu. Ef að það væri verið að deila svona upplýsingum um kennara eða lögfræðing þá myndi viðkomandi ekki líða vel með það. Ég tel að við sem einstaklingar séum ekkert ólíkir varðandi það,“ bætti hann við.
Enski boltinn Fótbolti Mest lesið Barnshafandi eftir langt ferli sem tók á andlega Íslenski boltinn Dæmd í bann eftir að ljúga til um krabbamein til að sleppa við bann Sport Einar Árni hættur hjá Hetti Körfubolti Segir að Ten Hag sé búinn að vera Enski boltinn Kári Vagn náði níu pílna leik og stefnir á Ally Pally Sport Losnar stjarna Aþenu úr frystiklefa Brynjars Karls? Körfubolti „Mér fannst ódýrt af Arnari að bera þetta saman“ Íslenski boltinn Ótrúlegur lækningamáttur í dalnum vekur furðu Íslenski boltinn Fannst Pogba týna sjálfum sér eftir að hann varð heimsmeistari Enski boltinn Forest vill hljóðupptöku dómaraherbergins frá leiknum gegn Everton Enski boltinn Fleiri fréttir Ótrúlegur lækningamáttur í dalnum vekur furðu „Sýna að þetta sé Chelsea FC en ekki Cole Palmer FC“ „Mér fannst ódýrt af Arnari að bera þetta saman“ Fannst Pogba týna sjálfum sér eftir að hann varð heimsmeistari Barnshafandi eftir langt ferli sem tók á andlega Segir að Ten Hag sé búinn að vera Forest vill hljóðupptöku dómaraherbergins frá leiknum gegn Everton „Karakter í mínum stelpum, þær gáfust aldrei upp“ „Þetta fór svolítið mikið yfir á þeirra forsendur“ Uppgjörið: Fylkir - Þróttur 1-1 | Nýliðarnir björguðu stigi undir lokin Inter Ítalíumeistari eftir sigur á nágrönnum sínum í AC Milan „Sé okkur ekkert þurfa að elta þær“ Uppgjörið: Breiðablik - Keflavík 3-0 | Öruggt í fyrsta heimaleik nýja þjálfarans Uppgjör, viðtöl og myndir: Stjarnan - Víkingur 1-2 | Nýliðarnir byrja á sigri Glódís Perla og stöllur enn taplausar á toppnum Uppgjör og viðtöl: Tindastóll - FH 0-1 | Hafnfirðingar byrja á sigri Bologna styrkti stöðu sína í fjórða sæti Ólafur frá næstu vikurnar Á barmi gjaldþrots og Ásdís gæti misst fríar máltíðir Var sagður taka við Liverpool en hefur rætt við West Ham Gæti krafist þess að El Clásico verði endurtekinn vegna draugamarks Helena skiptir um lið í fyrstu umferð „Maður vill ekki fara að vorkenna þeim“ „Kem því ekki í orð hversu léleg frammistaðan var“ Sjáðu sýningu Amöndu gegn Akureyringum Finnur Arnar fyrir pressunni? „Þjálfari félags sem svífst einskis til að ná árangri“ Sjáðu mörkin úr stórleiknum, öðrum stórsigri ÍA í röð og sögulegum sigri Vestra Hjólaði alla leið frá Mongólíu til að sjá United spila Antony gagnrýndur fyrir fagnið Xavi aftur brjálaður: „Þetta er til skammar og við ætlum ekki að þegja“ Sjá meira