Fótbolti

Ákvörðunin um Eið á sér langan aðdraganda | Stjórnin ræðir áfengismálin

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Vanda Sigurgeirsdóttir mætir á ársþing KSÍ í haust þar sem hún var kjörinn formaður, fyrst kvenna.
Vanda Sigurgeirsdóttir mætir á ársþing KSÍ í haust þar sem hún var kjörinn formaður, fyrst kvenna. Vísir/Hulda Margrét

Vanda Sigurgeirsdóttir, formaður KSÍ, rauf þögnina í dag er hún sendi frá sér yfirlýsingu varðandi málefni Eiðs Smára Guðjohnsen sem er að hætta sem aðstoðarþjálfari karlalandsliðsins.

Vanda kaus að tjá sig ekki um starfslokin í gær og hefur ekki svarað ítrekuðum fyrirspurnum íþróttadeildar um viðtal.

Í yfirlýsingunni kemur fram að starfsfólk KSÍ muni ekki ræða tildrög starfsloka Eiðs í smáatriðum af virðingu við einkalíf hans. Þar verði Eiður að stýra ferðinni sjálfur.

Þó er tekið fram að ákvörðunin eigi sér langan aðdraganda og hafi verið tekin að vel ígrunduðu máli.

Vanda segir einnig í yfirlýsingu sinni að stjórn KSÍ sé enn að ræða hvort ástæða til þess að hætta að veita áfengi í hóflegu magni að loknum verkefnum.

Yfirlýsing frá Vöndu Sigurgeirsdóttur formanni KSÍ

Líkt og fram hefur komið þá tóku stjórn KSÍ og Eiður Smári Guðjohnsen sameiginlega ákvörðun um starfslok hans sem aðstoðarþjálfari A-landsliðs karla. Í kjölfarið hafa fjölmiðlar leitað svara um málið.

Af sjálfsagðri virðingu við einkalíf Eiðs Smára þá höfum við, ég sem formaður KSÍ, stjórn og starfsfólk KSÍ, farið þá leið að tjá okkur ekki í smáatriðum um tildrög starfsloka hans. Við viljum ekki og getum ekki rætt hans persónulegu mál í fjölmiðlum. Þar þarf hann að stjórna ferðinni sjálfur.

Ákvörðun sem þessi er alltaf þungbær, á sér langan aðdraganda og er ekki tekin nema að vel ígrunduðu máli. Aftur óskum við Eiði velfarnaðar og þökkum honum góð störf.

Stjórn KSÍ hefur þegar rætt og mun ræða áfram hvort ástæða sé til þess að hætta að veita hóflega áfengi að verkefnum loknum.

Nú tekur við vinna við leit að nýjum aðstoðarþjálfara þar sem þjálfari liðsins, Arnar Þór Viðarsson, mun að sjálfsögðu ráða ferðinni. Vonandi gengur sú leit hratt og örugglega fyrir sig og við finnum réttan aðila í starfið við hlið Arnars til að leiða áframhaldandi uppbyggingu á þessu unga og spennandi landsliði.

Kveðja,

Vanda Sigurgeirsdóttir, formaður KSÍ




Fleiri fréttir

Sjá meira


×