Verulega dró úr tapi Sýnar milli ára Kristín Ólafsdóttir skrifar 24. febrúar 2021 18:21 Heiðar Guðjónsson, forstjóri Sýnar. Vísir/vilhelm Tap fjarskipta- og fjölmiðlafyrirtækisins Sýnar nam 405 milljónum króna árið 2020 samanborið við 1.748 milljóna króna tap árið áður. Tap milli ára dróst því saman um 76 prósent. Tekjur ársins 2020 hækkuðu jafnframt um 975 milljónir milli ára, eða um 4,9 prósent.
Þetta kemur fram í ársreikningi Sýnar fyrir árið 2020 sem samþykktur var á stjórnarfundi félagsins í dag. Tekjur á fjórða ársfjórðungi 2020 námu 5.413 milljónum króna sem er aukning um 478 milljónir króna frá sama tímabili árið 2019, samkvæmt tilkynningu. Þá jukust tekjur Sýnar um 4,9 prósent árið 2020 miðað við árið áður, líkt og áður segir. Heimsfaraldur kórónuveiru hafi þó haft talsvert áhrif á bæði reikitekjur og auglýsingatekjur félagsins. EBITDA ársins 2020 nam 5.739 m.kr. og hækkaði um 230 m.kr. miðað við árið 2019. EBITDA hlutfallið er 27,6% á árinu 2020 samanborið við 27,8% á árinu 2019. Tap á fjórða ársfjórðungi 2020 nam þremur milljónum króna samanborið við 2.132 milljón króna tap á sama tímabili 2019. Tap ársins 2020 nam 405 milljónum króna samanborið við 1.748 milljón króna tap árið 2019. „Virðisrýrnun að fjárhæð 2.452 m.kr. var færð í 4F 2019. Söluhagnaður að fjárhæð 872 m.kr. vegna sölu á færeyska dótturfélaginu P/F Hey er innifalinn í hreinum vaxtagjöldum árið 2019,“ segir í tilkynningu Sýnar. Undir Sýn heyra fjarskipti Vodafone og fjölmiðlar undir merkjum Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar.Vísir/vilhelm Handbært fé frá rekstri á árinu 2020 nam 5.912 milljónum samanborið við 5.377 milljónir árið 2019, sem er aukning um 10%. Eiginfjárhlutfall félagsins var 27,8% í lok ársins 2020. Sýn segir í tilkynningu að áætlanir félagsins geri ráð fyrir að heimsfaraldurinn haldi áfram að hafa áhrif á reksturinn, sér í lagi reikitekjur og kostnað í erlendri mynt. Væntingar séu um að dragi úr neikvæðum áhrifum þegar líður á árið. Haft er eftir Heiðari Guðjónssyni forstjóra Sýnar í tilkynningu að árangur af nýrri stefnu félagsins hefði skilað hagnaði árið 2020, ef leiðrétt er fyrir áhrifum heimsfaraldursins. Þá hafi tekist að fjölga viðskiptavinum Stöðvar 2 um 14 prósent á árinu 2020 auk þess sem samkomulag hafi tekist í öllum meginatriðum varðandi sölu á óvirkum innviðum farsímakerfisins. Stefnt sé að því að undirritun samninga takist vel fyrir birtingu árshlutauppgjörs fyrsta ársfjórðungs 2021. Vísir er í eigu Sýnar hf.
Fjölmiðlar Fjarskipti Markaðir Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Netflix, Stöð2+, Prime og Disney greiði til menningar Viðskipti innlent Segja markaðstorg blóðmjólka fyrirtæki Viðskipti innlent „Svo hefst kapphlaupið í það hver er fyrstur að ná sturtunni!“ Atvinnulíf Dagar Workplace eru taldir Viðskipti erlent Há laun og dýr bjór séu vandamál ÁTVR Viðskipti innlent Fyrirtæki hvött til að halda upp á daginn í dag og gera sér dagamun Atvinnulíf Rauf sátt vegna Max-málsins og gæti átt yfir höfði sér refsimál Viðskipti erlent Base parking gjaldþrota Viðskipti innlent Starfsfólk fær 150 milljónir í hlutabréfum Viðskipti innlent VÍS gefið yfir 1.100 fjölskyldum barnabílspegla í sængurgjöf Samstarf Fleiri fréttir Eignast Securitas að fullu Netflix, Stöð2+, Prime og Disney greiði til menningar Segja markaðstorg blóðmjólka fyrirtæki Há laun og dýr bjór séu vandamál ÁTVR Hnífjöfn atkvæðagreiðsla sem gæti endað fyrir dómi Segir arðgreiðslur ÁTVR hafa lækkað um 400 milljónir vegna netsölu Fóru í fyrsta flugið milli Calgary og Keflavíkurflugvallar Segir að Play sé og verði áfram með höfuðstöðvar á Íslandi Guðmundur tilnefndur til Evrópsku nýsköpunarverðlaunanna 2024 Forstjóri Play íhugar að fljúga frekar til Íslands en frá Base parking gjaldþrota Endurkjörinn formaður og fimm koma ný inn í stjórn Þjónusturof hjá alþjóðlegum birgja Samkaup, Heimkaup og Orkan hefja samrunaviðræður Stefna á opnun fyrsta skammtíma raforkumarkaðarins á næsta ári Bein útsending frá Nýsköpunarviku Sparisjóður hagnaðist um 205 milljónir króna Starfsfólk fær 150 milljónir í hlutabréfum Magnús eignast Latabæ á nýjan leik Ráðin framkvæmdastjóri Rue de Net Almennt útboð Íslandshótela hefst á morgun Ætlar að gera Grillhúsið að heitasta staðnum í Borgarnesi Landsvirkjun selur í fyrsta skipti í raforkukauphöll Ráðin forstöðukona Nýrra orkukosta Eigendur TGI Fridays kaupa Grillhúsið Freyr ráðinn til Eflingar Tilnefndur sem besti leikur fyrir snjalltæki á Norðurlöndum MAST olli Brúneggjum tjóni en RÚV sýknað Tilboðið afturkallað og Eik öðlast frelsi til athafna á ný Brottfarirnar í apríl nokkuð færri en á síðasta ári Sjá meira